Verkefni fyrir hæfniviðmið náttúrugreina
Fram eru komnar tillögur að endurskoðun greinarsviða aðalnámsskrár grunnskóla frá 2013. Þar er m.a. ítarlegar farið í þá þætti sem snerta skuli á í náttúruvísindum (og kaflinn um náttúrugreinar endurnefndur til að nota hugtakið náttúruvísindi). Hér eru töflurnar úr tillögunum (bls. 44-48) sett upp með hlekkjum á hvert undir-hæfniviðmið með það að miði að tengja megi þau inn á verkefni eða efni sem miða að því að ná þeim markmiðum.
Markmiðið er ekki að hægt sé að fara í hæfniviðmið og „tikka í boxin“ heldur frekar að gefa dæmi um hvers kyns verkefni megi nýta til að ná þess lags hæfniviðmiði. Slíkt styður við heildstæðari skoðun á efni og þeim kröfum sem kennarar gera til nemenda. Eins er vert að benda á ágæta áminningu úr tillögunni:
„Þegar sjónum er beint sérstaklega að einu hæfniviðmiði þarf að hafa í huga að nám er samfellt ferli og skapandi athöfn, fremur en söfnun afmarkaðrar þekkingar og þjálfun í tiltekinni leikni.“
Vinnulag náttúruvísinda
Yfirheiti | Við lok 4. bekkjar getur nemandi: | Við lok 7. bekkjar getur nemandi: | Við lok 10. bekkjar getur nemandi: |
---|---|---|---|
Hugtök | notað einföld hugtök í náttúruvísindum við athuganir og í umræðu, [HUG (4)] | beitt algengustu hugtökum og heitum í náttúruvísindum við athuganir, í umræðu og textaskrifum, [HUG (7)] | beitt hugtökum og heitum í náttúruvísindum við fjölbreyttar aðstæður, [HUG (10)] |
Læsi á gögn og náttúru vísindatexta | lesið einfaldan náttúruvísindatexta og endursagt helstu atriði með eigin orðum, skoðað einfaldar myndir og sagt frá efninu, [LÆS (4)] | lesið náttúruvísindatexta sér til gagns og endursagt með eigin orðum, túlkað myndrit og skoðað myndefni um náttúrufræði, umorðað
og nýtt til útskýringa, [LÆS (7)] |
lesið þyngri náttúruvísindatexta sér til gagns og endursagt og rætt helstu atriði, lesið út úr myndritum og myndefni um náttúrufræði sér til gagns, umorðað, túlkað og sett í margvíslegt samhengi, [LÆS (10)] |
Athuganir | framkvæmt einfaldar athuganir og skráð mælingar á hversdagslegum hlutum samkvæmt leiðbeiningum, [ATH (4)] | framkvæmt, skráð og safnað upplýsingum út frá einföldum athugunum og mælingum úti og inni samkvæmt fyrirmælum, [ATH (7)] | framkvæmt, skráð og safnað upplýsingum út frá athugunum og mælingum úti og inni, samkvæmt fyrirmælum og á eigin vegum, [ATH (10)] |
Miðlun | kynnt niðurstöður einfaldra athugana og upplýsingaöflunar og tekið þátt í umræðu um efnið, [MIÐ (4)] | kynnt niðurstöður rannsókna, útskýrt hvaða vinnubrögðum var beitt og tekið þátt í umræðum um efnið, [MIÐ (7)] | kynnt niðurstöður rannsókna, tekið þátt í gagnrýnum umræðum og metið gildi þess að vísindalegum upplýsingum sé miðlað á
skýran hátt, [MIÐ (10)] |
Vísindaleg vinnubrögð | sett fram spurningar, leitað svara um náttúruleg fyrirbæri og útskýrt valið viðfangsefni, [VÍS (4)] | þekkt ferli vísindalegra vinnubragða og unnið eftir þeim í stýrðum verkefnum, [VÍS (7)] | sett fram vísindalega tilgátu og beitt margvíslegum vísindalegum vinnubrögðum til að kanna hana í þekkingarleit og úrvinnslu
verkefna, [VÍS (10)] |
Eðli vísindalegrar þekkingar | rætt hvort að tiltekið atriði í samræðu eða texta sé staðreynd eða skoðun í tengslum við náttúruvísindi, [EVÞ (4)] | rætt muninn á staðreynd og skoðun, tilgátu og kenningu í tengslum við náttúruvísindi, [EVÞ (7)] | sagt frá dæmum um vísindalega þekkingarsköpun í ljósi eðli vísindalegrar þekkingar, [EVÞ (10)] |
Tengsl vísinda, tækni og menningar | útskýrt hvernig ákveðin tæki og búnaður geta hjálpað manninum að afla upplýsinga og hafa áhrif á heiminn. [VTM (4)] | rætt valin dæmi um samspil tækni, þekkingar og framfara og hvernig hugmyndir manna um heiminn hafa breyst með aukinni þekkingu. [VTM (7)] | tekið þátt í umræðu um hvernig náttúruvísindi bæði móta og mótast af tækni, menningu og heimsmynd mannsins. [VTM (10)] |
Umhverfið
Yfirheiti | Við lok 4. bekkjar getur nemandi | Við lok 7. bekkjar getur nemandi | Við lok 10. bekkjar getur nemandi |
---|---|---|---|
Hringrásir efna og orku | nefnt dæmi um samspil lífvera og lífvana þátta [HRI (4)] | lýst samspili lífvera og lífvana þátta [HRI (7)] | lýst hringrás efna og orku, náttúrulegum ferlum og flæði orku í náttúrunni [HRI (10)] |
Vistkerfi | rannsakað tegundir lífvera og helstu vistkerfi í nærumhverfi sínu [VIST (4)] | lýst mismunandi vistkerfum og nefnt dæmi um áhrif sem nýjar tegundir geta haft á umhverfi sitt [VIST (7)] | útskýrt þarfir lífvera og rætt á gagnrýninn hátt mikilvægi lífbreytileika og áhrifum hans á þróun ólíkra vistkerfa [VIST (10)] |
Náttúruvernd | tekið dæmi um náttúruvernd í nærumhverfi sínu [NÁT (4)] | rætt ástæður náttúruverndar [NÁT (7)] | fjallað um og tekið gagnrýna afstöðu til siðferðilegra þátta sem tengjast náttúruvernd [NÁT (10)] |
Veðurfar | gert sér grein fyrir nokkrum einkennum veðurfars í nærumhverfi [VEÐ (4)] | lýst helstu sérkennum veðurfars við Ísland [VEÐ (7)] | útskýrt loftslag, vinda og hafstrauma Jarðar [VEÐ (10)] |
Loftslagsbreytingar | kynnist hvaða hlutverki lofthjúpurinn gegnir fyrir líf á Jörðinni [LOF (4)] | útskýrt gróðurhúsaáhrif og tengt við loftslagsbreytingar [LOF (7)] | útskýrt loftslagsbreytingar, ástæður, afleiðingar og mótvægisaðgerðir [LOF (10)] |
Náttúruauðlindir og sjálfbær nýting | tekið þátt í umræðu um hvernig maðurinn nýtir náttúruna [NSN (4)] | áttað sig á mikilvægi þess að nýta náttúruauðlindir án þess að ganga um of á þær [NSN (7)] | gert grein fyrir verndun og nýtingu náttúruauðlinda í tengslum við sjálfbæra þróun og rýnt í eigin neysluvenjur [NSN (10)] |
Einstaklingurinn og umhverfið | áttað sig á mikilvægi þess að ganga vel um umhverfið [EOU (4)] | rætt valin dæmi um tengsl einstaklinga, nærumhverfis og umhverfismála á heimsvísu [EOU (7)] | rætt á gagnrýninn hátt tengsl einstaklinga, nærumhverfis og umhverfismála á heimsvísu [EOU (10)] |
Geta til aðgerða | komið með hugmyndir að aðgerðum sem tengjast náttúruvernd [GET (4)] | skipulagt aðgerðir er varða náttúruvernd og umhverfismál í nærumhverfi sínu [GET (7)] | tekið þátt í eða skipulagt aðgerðir er varða náttúruvernd og umhverfismál [GET (10)] |
Lífið
Yfirheiti | Við lok 4. bekkjar getur nemandi | Við lok 7. bekkjar getur nemandi | Við lok 10. bekkjar getur nemandi |
---|---|---|---|
Flokkun lífvera | rætt helstu einkenni lífvera [FLO (4)] | útskýrt einfalda flokkun lífvera [FLO (7)] | útskýrt flokkun lífvera eftir skyldleika [FLO (10)] |
Örverur | gert sér grein fyrir tilvist örvera í umhverfinu sem geta ýmist verið gagnlegar eða skaðlegar [ÖRV (4)] | nefnt dæmi um gagn og skaðsemi örvera [ÖRV (7)] | þekkt gagn og skaðsemi örvera [ÖRV (4)] |
Frumur | gert sér grein fyrir að allar lífverur eru gerðar úr frumum [FRU (4)] | áttað sig á að frumur eru grunneining lífs á Jörðinni [FRU (7)] | útskýrt gerð frumna, líffæri þeirra og starfsemi [FRU (10)] |
Þróun | áttað sig á að lífverur hafa tekið breytingum [ÞRÓ (4)] | nefnt dæmi um náttúruval og aðlögun [ÞRÓ (7)] | fjallað um þróun lífvera og tekið dæmi um hvernig lífverur hafa aðlagast umhverfi sínu [ÞRÓ (10)] |
Erfðir | skilið að lífverur erfa einkenni forfeðra sinna [ERF (7)] | útskýrt hvernig einkenni erfast á milli kynslóða [ERF (10)] | |
Bygging og starfsemi plantna | lýst ytri byggingu á helstu hlutum plantna [PLÖ (4)] | sagt frá hvernig plöntur nýta ljóstillífun til að afla næringar [PLÖ (7)] | gert grein fyrir fjölbreytileika plantna og starfsemi mismunandi plöntuhópa [PLÖ (10)] |
Bygging og starfsemi dýra | lýst helstu einkennum valinna dýra [DÝR (4)] | sagt frá einkennum helstu hópa dýra [DÝR (7)] | gert grein fyrir fjölbreytileika dýra og mismunandi einkennum [DÝR (10)] |
Líffæri og líffærakerfi | lýst byggingu og starfsemi mannslíkamans á einfaldan hátt [LÍF (4)] | lýst helstu líffærakerfum mannslíkamans og starfsemi þeirra í grófum dráttum [LÍF (7)] | lýst hlutverki og samspili helstu líffæra og líffærakerfa mannslíkamans [LÍF (10)] |
Kynheilbrigði | tjáð sig á einfaldan hátt um einkastaði líkamans og borið virðingu fyrir þeim [KYN (4)] | lýst breytingum sem verða við kynþroskaaldur og gert sér grein fyrir mikilvægi gagnkvæmrar virðingar í samskiptum kynjanna [KYN (7)] | rætt kynheilbrigði, ábyrga hegðun í kynlífi og tilgang getnaðarvarna [KYN (10)] |
Heilsa | rætt mikilvægi hreyfingar, hreinlætis, hollrar fæðu og svefns [HEI (4)] | rætt hvernig einstaklingur getur stuðlað að líkamlegu og andlegu heilbrigði [HEI (7)] | rætt á gagnrýninn hátt hvernig einstaklingur getur stuðlað að eigin velferð með ábyrgri neyslu og hegðun [HEI (10)] |
Efnin
Yfirheiti | Við lok 4. bekkjar getur nemandi | Við lok 7. bekkjar getur nemandi | Við lok 10. bekkjar getur nemandi |
---|---|---|---|
Uppbygging efna | þekkt og flokkað algeng efni og lýst helstu eiginleikum þeirra [EFN (4)] | útskýrt að allt er búið til úr frumeindum og sameindum [EFN (7)] | þekkt uppbyggingu frumeinda og sameinda og myndun jóna [EFN (10)] |
Varðveisla massans | með athugun sýnt fram á að efni geta skipt um form og breyst en hverfa ekki [VAM (4)] | nefnt dæmi um varðveislu massa og tengt við hversdagslega atburði [VAM (7)] | útskýrt varðveislu massa, tengt við hegðun efna og frumeindakenninguna [VAM (10)] |
Lotukerfið | bent á algengustu frumefni og efnasambönd [LOT (4)] | notað algeng efnatákn í umfjöllun um lotukerfið og efni í umhverfi sínu [LOT (7)] | útskýrt uppbyggingu lotukerfisins og tengt við eiginleika efna [LOT (10)] |
Efnajöfnur | þekkt algengar formúlur efnasambanda sem birtast í daglegu lífi [EJÖ (7)] | þekkt heiti frumefna og efnasambanda og unnið með þau í efnajöfnum [EJÖ (10)] | |
Efna-breytingar og eiginleikar efna | framkvæmt og útskýrt einfaldar tilraunir um efnabreytingar og hamskipti [EIG (4)] | gert grein fyrir efnabreytingum og hamskiptum og útskýrt með dæmum [EIG (7)] | lýst efnabreytingum og samspili þeirra við hitastig og orku m.a. með efnajöfnum [EIG (10)] |
Leysni | rannsakað leysni algengra efna á heimilinu [LEY (4)] | fjallað um hugtakið leysni og tengt við athafnir í daglegu lífi [LEY (7)] | unnið með leysni mismunandi efna í vökvum og lofttegundum [LEY (10)] |
Sýrustig | þekkt dæmi um hættuleg efni á heimilinu [SÝR (4)] | þekkt muninn á sýru og basa [SÝR (7)] | útskýrt og unnið með pH kvarðann [SÝR (10)] |
Orkan
Yfirheiti | Við lok 4. bekkjar getur nemandi | Við lok 7. bekkjar getur nemandi | Við lok 10. bekkjar getur nemandi |
---|---|---|---|
Orka | framkvæmt og fjallað um athuganir sem tengjast algengustu orkuformum í umhverfi sínu [ORK (4)] | lýst helstu orkuformum og lýst einföldum dæmum um varðveislu orkunnar [ORK (7)] | gert grein fyrir orku í mismunandi formum og tengt við varðveislu orkunnar [ORK (10)] |
Nýting orku | nefnt dæmi um uppruna orku og tekið þátt í umræðu um orkusparnað [NÝT (4)] | rætt dæmi um framleiðslu og nýtingu á orku í daglegu lífi [NÝT (7)] | lýst ólíkum leiðum við framleiðslu, dreifingu og nýtingu orku [NÝT (10)] |
Varmi | útskýrt muninn á heitu og köldu með einföldum tilraunum [VAR (4)] | sýnt skilning á hugtökunum varmi og hitastig og tengt þau við daglegt líf [VAR (7)] | útskýrt mismunandi varmaflutning og samspil varma og hitastigs [VAR (10)] |
Rafmagn og segulmagn | kannað eiginleika segla og rafhlaðinna hluta [RSM (4)] | lýst eiginleikum segla og notkun þeirra og kannað eiginleika rafhlaðinna hluta, [RSM (7)] | útskýrt stöðurafmagn og tengsl rafmagns og segulmagns [RSM (10)]| |
Rafmagn og rafrásir | sagt frá þróun algengra rafmagnstækja [RÁS (4)] | framkvæmt einfaldar athuganir á rafrásum og útskýrt hvernig rafmagn verður til [RÁS (7)] | útskýrt einfaldar rafrásir [RÁS (10)] |
Bylgjur | skoðað hljóð og ljós og lýst einföldum eiginleikum þeirra [BYL (4)] | lýst eiginleikum hljóðs og ljóss og ýmsum fyrirbærum með tilliti til hljóðs og lita [BYL (7)] | útskýrt bylgjur rafsegulrófsins og hljóðs og lýst eiginleikum þeirra [BYL (10)] |
Gagn og skaðsemi bylgna | framkvæmt og fjallað um athuganir á sýnilegum bylgjum [GSB (4)] | rætt um gagnsemi og hættur við helstu bylgjur í nærumhverfinu [GSB (7)] | gert grein fyrir gagnsemi og hættum við bylgjur [GSB (10)] |
Kraftar og hreyfing | framkvæmt og fjallað um athuganir sem tengjast kröftum sem birtast í daglegu lífi [AFL (4)] | þekkt og fjallað um hreyfingu og einfaldar tegundir krafta [GSB (7)] | útskýrt helstu kraftalögmál sem verka í daglegu lífi manna [GSB (10)] |
Massi | áttað sig á að efni hafa massa og stærð [MAS (4)] | áttað sig á muninum á massa og rúmmáli og helstu mælieiningum þessara eiginleika [MAS (4)] | útskýrt muninn á massa og þyngd [MAS (4)] |
Alheimurinn
Yfirheiti | Við lok 4. bekkjar getur nemandi | Við lok 7. bekkjar getur nemandi | Við lok 10. bekkjar getur nemandi |
---|---|---|---|
Jörðin | gert grein fyrir ástæðum dægraskipta [JÖR (4)] | útskýrt árstíðirnar út frá stöðu Jarðar í sólkerfinu [JÖR (7)] | gert grein fyrir stöðu og hreyfingu Jarðar og áhrifum hennar á líf á Jörðu [JÖR (10)] |
Mótun lands | nefnt dæmi um hvernig land verður til og mótast [MÓT (4)] | lýst hvernig náttúruöfl hafa áhrif á myndun og mótun lands [MÓT (7)] | útskýrt hvernig land hefur myndast og mótast á jarðsögulegum tíma [MÓT (10)] |
Tunglið | bent á hvernig tunglið tekur breytingum yfir mánuðinn [TUN (4)] | lýst gangi tunglsins um Jörðina [TUN (7)] | gert grein fyrir áhrifum tunglsins á Jörðina [TUN (10)] |
Sólkerfið | fjallað um helstu hnetti í sólkerfinu [SÓL (4)] | gert grein fyrir uppbyggingu sólkerfisins [SÓL (7)] | þekkt eiginleika sólkerfisins og gert grein fyrir myndun, stöðu og hreyfingu sólkerfa [SÓL (10)] |
Alheimurinn | gert sér grein fyrir að flestar stjörnur á himninum eru sólir í öðrum sólkerfum [ALH (4)] | gert grein fyrir staðsetningu Jarðarinnar í vetrarbrautinni [ALH (7)] | gert grein fyrir myndun og þróun stjarna [ALH (10)] |