Hér má finna yfirlit yfir hæfniviðmið íslenskukafla Aðalnámsskrár grunnskóla ásamt hlekkjum á undirsíður þar sem koma má fyrir ítarfefni fyrir hvert hæfniviðmið. Markmiðið er ekki að hægt sé að fara í hæfniviðmið og „tikka í boxin“ heldur frekar að gefa dæmi um hvers kyns verkefni megi nýta til að ná þess lags hæfniviðmiði. Slíkt styður við heildstæðari skoðun á efni og þeim kröfum sem kennarar gera til nemenda. Eins er vert að benda á ágæta áminningu úr tillögunni:
„Þegar sjónum er beint sérstaklega að einu hæfniviðmiði þarf að hafa í huga að nám er samfellt ferli og skapandi athöfn, fremur en söfnun afmarkaðrar þekkingar og þjálfun í tiltekinni leikni.“
Yfirheiti
|
Við lok 4. bekkjar getur nemandi
|
Við lok 7. bekkjar getur nemandi
|
Við lok 10. bekkjar getur nemandi
|
Framsögn
|
beitt skýrum og áheyrilegum framburði [Framsögn (4)]
|
flutt mál sitt skýrt og áheyrilega og gert sér grein fyrir undirstöðuatriðum góðrar framsagnar [Framsögn (7)]
|
flutt mál sitt skýrt og áheyrilega með viðeigandi talhraða, tónfalli, áherslum og fasi [Framsögn (10)]
|
Tjáning
|
sagt frá atburði eða fyrirbæri, tjáð sig frammi fyrir hópi og staðið fyrir máli sínu [Tjáning (4)]
|
gert grein fyrir þekkingu sinni og reynslu og tjáð hugmyndir sínar og skoðanir frammi fyrir hópi [Tjáning (7)]
|
miðlað þekkingu sinni og reynslu, tjáð hugmyndir sínar og skoðanir og fært rök fyrir þeim með fjölbreyttum leiðum [Tjáning (10)]
|
Hlustun og áhorf
|
hlustað og horft af athygli á valið efni og greint frá upplifun sinni [Hlustun og áhorf (4)]
|
hlustað og horft af athygli á fjölbreytt efni, beitt þekkingu sinni og reynslu til að skilja það og greint frá aðalatriðum [Hlustun og áhorf (7)]
|
horft á, hlustað og tekið eftir upplýsingum í fjölbreyttu efni og greint og miðlað innihaldi þess á gagnrýninn hátt [Hlustun og áhorf (10)]
|
Áhorf
|
horft og hlustað af athygli á fjölbreytt efni og greint frá upplifun sinni [Áhorf (4)]
|
horft af athygli á myndefni, beitt þekkingu sinni og reynslu til að skilja það sem sýnt er og greint frá aðalatriðum [Áhorf (7)]
|
horft og tekið eftir upplýsingum í myndefni og greint og miðlað innihaldi þess á gagnrýninn hátt [Áhorf (10)]
|
Nýting miðla
|
nýtt sér og endursagt efni á stafrænu formi [Nýting miðla (4)]
|
nýtt sér myndefni og stafrænt efni á gagnrýninn hátt og greint frá aðalatriðum þess [Nýting miðla (7)]
|
nýtt sér fjölbreytta hljóð- og myndmiðla til upplýsingar og afþreyingar og tekið afstöðu til þess sem þar er birt [Nýting miðla (10)]
|
Yfirheiti
|
Við lok 4. bekkjar getur nemandi
|
Við lok 7. bekkjar getur nemandi
|
Við lok 10. bekkjar getur nemandi
|
Lesfimi
|
beitt aðferðum við umskráningu hljóða og stafa svo lestur flæði vel og merking texta komist til skila [Lesfimi (4)]
|
lesið texta við hæfi á nákvæman og sjálfvirkan hátt og með tjáningu sem sýnir skilning á tilgangi og merkingu texta [Lesfimi (7)]
|
lesið fjölbreytta texta af öryggi, í góðu flæði og í viðeigandi hendingum og með tjáningu í samræmi við aðstæður hverju sinni [Lesfimi (10)]
|
Lestraraðferðir
|
þekkt og beitt einföldum aðferðum við lestur og tilgreint dæmi um ólíkan tilgang lestrar [Lestraraðferðir (4)]
|
beitt lestraraðferðum sem hæfa tilgangi og viðfangsefni hverju sinni [Lestraraðferðir (7)]
|
valið og beitt fjölbreyttum lestraraðferðum sem hæfa tilgangi og viðfangsefni hverju sinni [Lestraraðferðir (10)]
|
Orðaforði
|
beitt góðum orðaforða við að skilja texta og notað einfaldar aðferðir til að ráða í merkingu ókunnra orða [Orðaforði (4)]
|
beitt fjölbreyttum orðaforða og fyrri þekkingu til að mynda samhengi og skilning í lestri og notað aðferðir til að ráða í merkingu ókunnra orða og orðasambanda [Orðaforði (7)]
|
beitt ríkulegum orðaforða, fyrri þekkingu og reynslu til að mynda samhengi og skilning í lestri og notað fjölbreyttar aðferðir til að efla orðaforða sinn [Orðaforði (10)]
|
Lesskilningur
|
skilið augljós efnisatriði valinna texta, greint og lagt mat á inntak þeirra og dregið einfaldar ályktanir [Lesskilningur (4)]
|
skilið, fjallað um og dregið saman efni ólíkra texta, dregið ályktanir af efninu, greint og lagt mat á merkingu þeirra og tilgang á gagnrýninn hátt [Lesskilningur (7)]
|
skilið og fjallað um fjölbreytta texta, greint þá og borið saman á margvíslegan hátt og lagt rökstutt og gagnrýnið mat á inntak þeirra og eiginleika [Lesskilningur (10)]
|
Lestrarmenning
|
valið og lesið sér til ánægju fjölbreytt lesefni sem hæfir aldri [Lestrarmenning (4)]
|
valið og lesið sér til gagns og ánægju fjölbreytta texta og miðlað áhuga sínum og skoðunum til annarra [Lestrarmenning (7)]
|
valið og lesið sér til gagns og ánægju fjölbreytta texta, unnið með efni þeirra á fjölbreyttan hátt og miðlað til annarra [Lestrarmenning (10)]
|
Yfirheiti
|
Við lok 4. bekkjar getur nemandi
|
Við lok 7. bekkjar getur nemandi
|
Við lok 10. bekkjar getur nemandi
|
Lestur og túlkun bókmennta
|
unnið með ævintýri, sögur og ljóð ætluð börnum [Lestur og túlkun bókmennta (4)]
|
lesið ýmsar bókmenntir og unnið með efni þeirra á fjölbreyttan hátt [Lestur og túlkun bókmennta (7)]
|
lesið, túlkað, metið og fjallað um fjölbreyttar íslenskar og erlendar bókmenntir [Lestur og túlkun bókmennta (10)]
|
Bókmenntagreining
|
beitt einföldum bókmenntahugtökum í umfjöllun um bókmenntir [Bókmenntagreining (4)]
|
beitt nokkrum grunnhugtökum í bókmenntafræði við umfjöllun um fjölbreyttar bókmenntir [Bókmenntagreining (7)]
|
beitt algengum hugtökum í bókmenntafræði við greiningu og umfjöllun um fjölbreyttar bókmenntir frá ýmsum tímum [Bókmenntagreining (10)]
|
Bókmenntaarfurinn
|
lesið einfalda texta frá fyrri tímum og sett sig í spor persóna og lesenda í fortíðinni [Bókmenntaarfurinn (4)]
|
lesið einfalda texta frá fyrri tímum og áttað sig á því að þeir mótist af sögulegu samhengi [Bókmenntaarfurinn (7)]
|
lesið og skilið texta frá fyrri tímum, áttað sig á því að þeir mótist af sögulegu samhengi og borið saman við eigin samtíð [Bókmenntaarfurinn (10)]
|
Ljóð
|
áttað sig á grunn-einkennum ljóða og unnið með innihald þeirra [Ljóð (4)]
|
notað einföld bókmenntahugtök í umræðu og vinnu með innihald og einkenni ljóða frá ólíkum tímum [Ljóð (7)]
|
notað algeng bókmenntahugtök í umfjöllun um bundið mál og óbundið og lesið og túlkað fjölbreytt ljóð frá ýmsum tímum [Ljóð (10)]
|
Yfirheiti
|
Við lok 4. bekkjar getur nemandi
|
Við lok 7. bekkjar getur nemandi
|
Við lok 10. bekkjar getur nemandi
|
Skrift og frágangur
|
dregið rétt til stafs, skrifað skýrt og læsilega og á lyklaborð [Skrift og frágangur (4)]
|
miðlað texta í gegnum sjálfvirka og læsilega skrift og fyrirhafnarlítinn innslátt á lyklaborð og gengið frá texta samkvæmt fyrirmælum [Skrift og frágangur (7)]
|
haft vald á ólíkum leiðum til að miðla rituðu máli og getur valið þá leið sem hentar tilgangi og lesendum [Skrift og frágangur (10)]
|
Uppbygging texta
|
búið til setningar og málsgreinar og notað til þess algengar samtengingar [Uppbygging texta (4)]
|
skrifað texta þar sem málsgreinar eru fjölbreyttar og texta er skipt upp í efnisgreinar [Uppbygging texta (7)]
|
skrifað texta þar sem efnisatriðum er skipað í röklegt samhengi, góður þráður er á milli efnisgreina og kaflaskipting er skýr [Uppbygging texta (10)]
|
Textategundir og málnotkun
|
skrifað ólíkar textategundir og skilur að hverjum texta er ætlað ákveðið hlutverk [Textategundir og málnotkun (4)]
|
skipulagt og orðað texta á þann hátt sem hæfir tilefni, viðtakendum og birtingarformi [Textategundir og málnotkun (7)]
|
beitt ríkulegu tungutaki, fjölbreyttum orðaforða og málsniði í texta eftir því hver tilgangur skrifanna er, fyrir hvaða viðtakendur er skrifað og hvaða birtingarform er valið [Textategundir og málnotkun (10)]
|
Tjáning í texta
|
sett fram eigin hugmynd í texta, metið og lagfært með eða án hjálpargagna [Tjáning í texta (4)]
|
tjáð hugmyndir sínar, reynslu og sköpun í texta, metið, mótað og endurskrifað með hliðsjón af hjálpargögnum [Tjáning í texta (7)]
|
samið fjölbreyttan texta til að tjá hugmyndir, skoðanir, reynslu og sköpunarkraft, metið og endurbætt með hliðsjón af gagnrýni og hjálpargögnum [Tjáning í texta (10)]
|
Stafsetning og greinarmerkjasetning
|
beitt einföldum stafsetningarreglum og einföldum reglum við greinarmerkjasetningu [Stafsetning og greinarmerkjasetning (4)]
|
beitt algengum atriðum stafsetningar og greinarmerkjasetningar og notað tiltæk hjálpargögn við hæfi [Stafsetning og greinarmerkjasetning (7)]
|
beitt helstu atriðum stafsetningar og greinarmerkjasetningar og notað til þess reglur um réttritun og önnur hjálpartæki [Stafsetning og greinarmerkjasetning (10)]
|
Yfirheiti
|
Við lok 4. bekkjar getur nemandi
|
Við lok 7. bekkjar getur nemandi
|
Við lok 10. bekkjar getur nemandi
|
Einkenni málsins
|
þekkt og rætt ýmis einkenni málsins [Einkenni málsins (4)]
|
beitt málfræðiþekkingu sinni í umræðu um ýmis einkenni málsins og málnotkun sína [Einkenni málsins (7)]
|
beitt málfræðiþekkingu sinni í umræðu um tungumálið, þróun og einkenni þess og nýtt hana í eigin málnotkun [Einkenni málsins (10)]
|
Fjölbreytt málnotkun
|
beitt töluðu máli og rituðu af nokkru öryggi og með orðaforða og málskilningi sem hæfir aldri [Fjölbreytt málnotkun (4)]
|
notað góðan orðaforða í ræðu og riti og nýtt sér fjölbreytt málsnið við orðmyndun, tal og ritun [Fjölbreytt málnotkun (7)]
|
áttað sig á fjölbreyttum tilbrigðum í orðaforða og málnotkun og beitt mismunandi málsniði eftir efni og tilefni í ræðu og riti [Fjölbreytt málnotkun (10)]
|
Sköpunarkraftur
|
áttað sig á sköpunarmætti tungumálsins svo sem með því að ríma og fara í orðaleiki [Sköpunarkraftur (4)]
|
nýtt orðaforða sinn til að skapa ný orð og orðasambönd og notað þau í texta [Sköpunarkraftur (7)]
|
áttað sig á og beitt sköpunarmætti tungumálsins og nýtt það m.a. við ritun, tal, nýyrðasmíð, í orðaleikjum og skáldskap [Sköpunarkraftur (10)]
|
Orðflokkar
|
áttað sig á mismunandi hlutverki nafnorða, lýsingarorða og sagnorða [Orðflokkar (4)]
|
áttað sig á hvernig orðaforðinn skiptist í sagnorð, fallorð og óbeygjanleg orð og greint hlutverk og helstu einkenni þeirra [Orðflokkar (7)]
|
áttað sig á beygingarlegum og merkingarlegum einkennum orðflokka og gert sér grein fyrir hlutverki þeirra í eigin texta og annarra [Orðflokkar (10)]
|
Orðtök og málshættir
|
leikið sér með margræðni tungumálsins svo sem í gegnum orðtök, einfalda málshætti og föst orðasambönd [Orðtök og málshættir (4)]
|
notað algeng orðtök og málshætti í töluðu máli og rituðu og greint notagildi þeirra í texta [Orðtök og málshættir (7)]
|
beitt fleygum orðum, algengum orðtökum, málsháttum og föstum orðasamböndum í máli sínu [Orðtök og málshættir (10)]
|
Gögn og hjálpartæki
|
raðað í stafrófsröð og gert sér grein fyrir notagildi þess við leit og skipulag [Gögn og hjálpartæki (4)]
|
nýtt sér kunnáttu og færni til að fletta upp orðum í orðabókum og öðrum gagnabrunnum um tungumál [Gögn og hjálpartæki (7)]
|
nýtt fjölbreytt hjálpartæki til að afla sér upplýsinga um tungumálið og styðja við notkun þess [Gögn og hjálpartæki (10)]
|