Verkefnabanki í stærðfræðikennslu

Úr Kennarakvikan

Útgáfa frá 5. mars 2025 kl. 10:14 eftir Martin (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. mars 2025 kl. 10:14 eftir Martin (spjall | framlög) (Hendi inn efni af Stærðfræðitorgi sem Birna Hugrún og Margrét S. höfðu tekið saman til að flytja á Flatarmál.)

Efni af Stærðfræðitorgi

Hér er gagnlegt efni af Stærðfræðitorginu. Torgið liggur niðri sem stendur (2025.03.05.) og óvíst hvað verður um það. Búið var að taka ákvörðun um að færa ný verkefni frekar inn á vef Flatarmála en Stærðfræðitorgið átti að standa áfram með gömlum verkefnum.

  • Hvað getur þú gert úr stafnum þínum (Verkefni eftir Borghildi Jósúadóttur kennara í Grundaskóla á Akranesi. Verkefnið samþættir stærðfræði og textílmennt og er unnið út frá kaflanum Hnitakerfi og flutningar úr bókinni Átta-tíu 2. Það er ætlað nemendum í áttunda bekk og tekur allt að 18 kennslustundir.)
  • Gerðu fimmu - Verkefni fyrir framhaldsskóla
  • Stærðfræði á hreyfingu - Heimastærðfræði fyrir alla fjölskylduna (eyðublöð en engin lýsing)
  • Ræningjaspilið - Fyrir leikskóla og yngsta stig grunnskóla
  • Þrír í röð - Fyrir yngsta og miðstig grunnskóla
  • Bingó fyrir miðstig (finna betra nafn) - Miðstig
  • Frumtöluspil - Miðstig
  • Líkindi eru yndi - Unglingsstig
  • Fjórir í röð - Unglingastig
  • Bingó fyrir framhaldsskóla (betra nafn?)
  • Rúmfræði og listir (Eftir Margréti S. Björnsdóttur grunnskólakennara. - Haustið 2013 var ég með kennslustofu á eTwinning-ráðstefnu fyrir evrópska stærðfræðikennara á unglingastigi og fyrri stigum framhaldsskólans. Í kennslustofunni var skoðuð tenging rúmfræði við listir með áherslu á þökun í anda listamannsins M.C. Escher. Ég fékk svo tækifæri til að vinna áfram með verkefnið á lesnámskeiði í HÍ undir leiðsögn Guðbjargar Pálsdóttur. Hér fyrir neðan má nálgast fyrirlestur um viðfangsefnið, myndbönd með fyrirlestrinum og svo leiðbeiningar í þökun bæði í höndunum og í tölvu. Gangi ykkur vel.)

Hugvekjur

Fimmtudaginn 6. júní 2013 hélt Barbara Jaworski prófessor í stærðfræðimenntun við Háskólann í Loughborough í Bretlandi opinn fyrirlestur um stærðfræðinám og -kennslu á vegum Flatar, samtaka stærðfræðikennara og Rannsóknarstofu um stærðfræðimenntun við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.

Stærðfræði hefur reynst mörgum nemendum erfið og oft verið talið að það sé einungis á færi sumra að verða góðir í stærðfræði. Í erindinu fjallar Barbara um rétt allra til að skilja stærðfræði og geta notað hana til þess leysa viðfangsefni sem mæta þeim í lífi og starfi. Hún beinir sjónum sérstaklega að kennslu, hvað það merkir að kenna stærðfræði, hvað einkennir góða stærðfæðikennslu og hvernig góð kennsla getur þróast til að styðja við nám allra nemenda. Hægt er að hlusta á fyrirlesturinn í heild sinni hér - http://youtu.be/nDYxVch6oHU

Aðrar bjargir

Á Stærðfræðikennarinn deilimappa er að finna PDF útgáfur af Almenn stærðfræði I, II, og III. Þar eru einnig Desmos og GeoGebru verkefni.