Verkefni fyrir hæfniviðmið lykilhæfni

Úr Kennarakvikan

Útgáfa frá 6. mars 2025 kl. 00:10 eftir Martin (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. mars 2025 kl. 00:10 eftir Martin (spjall | framlög) (→‎Ábyrgð og mat á eigin námi)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)

Hér má finna yfirlit yfir hæfniviðmið kafla Aðalnámsskrár grunnskóla fyrir erlend tungumál ásamt hlekkjum á undirsíður þar sem koma má fyrir ítarfefni fyrir hvert hæfniviðmið. Markmiðið er ekki að hægt sé að fara í hæfniviðmið og „tikka í boxin“ heldur frekar að gefa dæmi um hvers kyns verkefni megi nýta til að ná þess lags hæfniviðmiði. Slíkt styður við heildstæðari skoðun á efni og þeim kröfum sem kennarar gera til nemenda. Eins er vert að benda á ágæta áminningu úr tillögunni:

„Þegar sjónum er beint sérstaklega að einu hæfniviðmiði þarf að hafa í huga að nám er samfellt ferli og skapandi athöfn, fremur en söfnun afmarkaðrar þekkingar og þjálfun í tiltekinni leikni.“

Tjáning og miðlun

Yfirheiti Við lok 4. bekkjar getur nemandi Við lok 7. bekkjar getur nemandi Við lok 10. bekkjar getur nemandi
Tjáning tjáð tilfinningar og hugmyndir þannig að þær séu skiljanlegar öðrum [] tjáð hugmyndir og tilfinningar á skýran hátt [] tjáð hugmyndir og tilfinningar á skýran og skipulegan hátt []
Tillitssemi hlustað á aðra, sýnt tillitssemi og haldið sig við umræðuefni [] brugðist við upplýsingum, hlustað, tekið þátt í umræðum og tekið tillit til ólíkra sjónarmiða [] brugðist við margvíslegum upplýsingum og hugmyndum, hlustað, tekið þátt í umræðum og tekið tillit til ólíkra sjónarmiða []
Samskipti rætt um áhugamál sín og skoðanir [] rætt um viðfangsefni þannig að áhugi viðmælanda sé vakinn [] rætt á skýran hátt um málefni þannig að áhugi viðmælanda sé vakinn []
Orðaforði lært og notað ný orð til að ræða ólík viðfangsefni [] aukið orðaforða sinn og beitt honum á ólík umfjöllunarefni [] tileinkað sér og nýtt fjölbreyttan orðaforða og viðeigandi hugtök sem tengjast ólíkum viðfangsefnum []
Miðlun nýtt ólíkar leiðir til miðlunar [] valið úr ólíkum leiðum til miðlunar [] valið úr fjölbreyttum leiðum til miðlunar []

Skapandi og gagnrýnin hugsun[breyta | breyta frumkóða]

Yfirheiti Við lok 4. bekkjar getur nemandi Við lok 7. bekkjar getur nemandi Við lok 10. bekkjar getur nemandi
Spyrjandi hugarfar spurt spurninga til að hefja rannsókn á fjölbreyttum fyrirbærum [] spurt fjölbreyttra spurninga og nýtt þær til rannsókna á fjölbreyttum fyrirbærum [] spurt gagnrýninna spurninga og nýtt þær í rannsóknum sínum []
Sköpun unnið fjölbreytt verkefni á skapandi hátt [] bent á hugmyndir eða möguleika sem ekki hafa komið fram áður [] leyst fjölbreyttar áskoranir á skapandi hátt []
Lært af mistökum lært af mistökum sínum [] lært af mistökum og séð möguleika til framfara [] lært af mistökum og séð í þeim nýja möguleika til framfara []
Rökræða útskýrt mál sitt með rökum [] fært rök fyrir ólíkum skoðunum [] rökrætt álitamál frá ólíkum sjónarhornum []
Ályktun skoðað gögn og upplýsingar og dregið eigin ályktanir [] tekið upplýsta afstöðu til gagna og upplýsinga og dregið eigin ályktanir [] tekið upplýsta afstöðu til gagna og upplýsinga, dregið ályktanir og túlkað þær []
Gagnrýnin hugsun bent á ólík sjónarhorn í fjölbreyttum viðfangsefnum [] bent á ólík sjónarhorn og tekið rökstudda afstöðu í málum af fjölbreyttu tagi [] beitt ólíkum sjónarhornum og gagnrýninni hugsun í fjölbreyttum viðfangsefnum []

Sjálfstæði og samvinna[breyta | breyta frumkóða]

Yfirheiti Við lok 4. bekkjar getur nemandi Við lok 7. bekkjar getur nemandi Við lok 10. bekkjar getur nemandi
Sjálfstæði sýnt frumkvæði í verkefnum og beðið um aðstoð eftir þörfum [] sýnt frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum [] sýnt frumkvæði, sjálfstæði og ábyrgð í vinnubrögðum []
Samvinna unnið með öðrum að verkefnum sem tengjast námi og félagsstarfi [] unnið með öðrum og lagt sitt af mörkum í samstarfi sem tengist námi og félagsstarfi [] unnið með öðrum og lagt sitt af mörkum í uppbyggilegu samstarfi sem tengist námi og félagsstarfi []
Samstarf gert sér grein fyrir ólíkum hlutverkum í samstarfi [] gert sér grein fyrir eigin hlutverki í samstarfi og lagt sitt af mörkum [] geti sinnt hlutverki sínu í samstarfi og axlað ábyrgð []
Ábyrgð tekið ákvarðanir um hvernig honum finnst best að læra [] tekið ákvarðanir um eigið nám og hagsmuni með tilliti til annarra [] tekið ákvarðanir um eigið nám og hagsmuni með lýðræðislegum hætti []
Leiðsögn tekið leiðsögn og endurgjöf á jákvæðan hátt [] nýtt sér leiðsögn og endurgjöf til að ná námsmarkmiðum [] nýtt sér leiðsögn, endurgjöf og gagnrýni á uppbyggilegan hátt []

Nýting miðla og upplýsinga[breyta | breyta frumkóða]

Yfirheiti Við lok 4. bekkjar getur nemandi Við lok 7. bekkjar getur nemandi Við lok 10. bekkjar getur nemandi
Áreiðanleiki skilið muninn á tilbúningi og raunveruleika [] áttað sig á hvert á að leita til að afla áreiðanlegra upplýsinga og miðlað þeim áfram á réttan og ábyrgan hátt [] greint á milli áreiðanlegra og óáreiðanlegra miðla, áróðurs og upplýsinga []
Upplýsingaöflun og miðlanotkun gert greinarmun á skoðunum og staðreyndum [] nýtt fjölbreytta miðla til upplýsingaöflunar og tekið upplýsta afstöðu til áreiðanleika þeirra [] nýtt ólíka miðla á ábyrgan hátt til að afla, greina og miðla upplýsingum og skoðunum []
Vandvirkni og nákvæmni haft rétt eftir hvort sem um er að ræða tal eða texta [] skilið að framsetning og gæði upplýsinga er háð mörgum þáttum og þekkt mikilvægi þess að vanda val og notkun á heimildum [] valið traustar heimildir og sett upplýsingar fram með ólíkum hætti eftir því sem við á hverju sinni á siðferðilega ábyrgan hátt []

Ábyrgð og mat á eigin námi[breyta | breyta frumkóða]

Yfirheiti Við lok 4. bekkjar getur nemandi: Við lok 7. bekkjar getur nemandi: Við lok 10. bekkjar getur nemandi:
Sjálfsþekking rætt um eigin styrkleika og þekkt hugarfar vaxtar. sett sér markmið á grunni persónulegra styrkleika og tileinkað sér hugarfar vaxtar. sett sér fjölbreytt og skapandi markmið á grunni persónulegra styrkleika og tileinkað sér hugarfar vaxtar.
Markmiðasetning sett sér viðráðanleg markmið og glaðst þegar þeim er náð. sett sér persónuleg og námsleg markmið, ígrundað árangur og mistök. sett sér raunhæf og metnaðarfull markmið um frammistöðu og framvindu eigin náms, unnið eftir þeim og lagt mat á hvernig til hefur tekist.
Ígrundun velt fyrir sér eigin námi og hvað hann langar að læra næst. metið nám sitt skipulega og sett sér markmið um viðfangsefni eða hæfni. skipulagt, ígrundað og borið ábyrgð á eigin námi.
Árangur og sjálfsþekking skilið viðmið um árangur og til hvers er ætlast. skilið viðmið um árangur og unnið að þeim. skilið og rökstutt viðmið um árangur og unnið að þeim.
Náms- og starfsfræðsla áttað sig á ólíkum og fjölbreyttum störfum sem unnin eru í samfélaginu. tengt eigin áhuga fjölbreyttum námsleiðum og störfum. nýtt upplýsingar um námsleiðir og fjölbreytt störf við skipulagningu eigin náms- og starfsferils.