Verkefni fyrir hæfniviðmið skólaíþrótta

Úr Kennarakvikan

Útgáfa frá 10. desember 2024 kl. 15:33 eftir Martin (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. desember 2024 kl. 15:33 eftir Martin (spjall | framlög) (Ný síða: <div style="float: right">__TOC__</div> Hér má finna yfirlit yfir hæfniviðmið [https://adalnamskra.is/adalnamskra-grunnskola/kafli-19 íslenskukafla Aðalnámsskrár grunnskóla] ásamt hlekkjum á undirsíður þar sem koma má fyrir ítarfefni fyrir hvert hæfniviðmið. Markmiðið er ekki að hægt sé að fara í hæfniviðmið og „tikka í boxin“ heldur frekar að gefa dæmi um hvers kyns verkefni megi nýta til að ná þess lags hæfniviðmiði. Slíkt styður v...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)

Hér má finna yfirlit yfir hæfniviðmið íslenskukafla Aðalnámsskrár grunnskóla ásamt hlekkjum á undirsíður þar sem koma má fyrir ítarfefni fyrir hvert hæfniviðmið. Markmiðið er ekki að hægt sé að fara í hæfniviðmið og „tikka í boxin“ heldur frekar að gefa dæmi um hvers kyns verkefni megi nýta til að ná þess lags hæfniviðmiði. Slíkt styður við heildstæðari skoðun á efni og þeim kröfum sem kennarar gera til nemenda. Eins er vert að benda á ágæta áminningu úr tillögunni:

„Þegar sjónum er beint sérstaklega að einu hæfniviðmiði þarf að hafa í huga að nám er samfellt ferli og skapandi athöfn, fremur en söfnun afmarkaðrar þekkingar og þjálfun í tiltekinni leikni.“

Líkamsvitund, færni og afkastageta[breyta | breyta frumkóða]

Yfirheiti Við lok 4. bekkjar getur nemandi Við lok 7. bekkjar getur nemandi Við lok 10. bekkjar getur nemandi
Þol gert æfingar sem reyna á þol í íþróttum [ANG-LIK-ÞOL-4] gert æfingar sem reyna á loftháð þol í íþróttum [ANG-LIK-ÞOL-7] gert æfingar sem reyna á loftháð og loftfirrt þol í íþróttum [ANG-LIK-ÞOL-10]
Styrkur gert æfingar sem styrkja hreyfifærni líkamans [ANG-LIK-STY-4] gert æfingar með eigin líkamsþyngd sem reyna á styrk og stöðugleika [ANG-LIK-STY-7] sýnt og framkvæmt styrktaræfingar sem bæta líkamsstöðu, kraftúthald og styrk bæði í kyrrstöðu og á hreyfingu [ANG-LIK-STY-10]
Liðleiki gert almennar liðleikaæfingar [ANG-LIK-LIÐ-4] gert æfingar sem reyna á liðleika og hreyfigetu [ANG-LIK-LIÐ-7] gert liðleikaæfingar sem reyna á hreyfivídd og hreyfigetu [ANG-LIK-LIÐ-10]
Samhæfing gert hreyfingar sem styðja við samhæfingu hægri og vinstri [ANG-LIK-SAM-4] sýnt útfærslu hreyfinga þannig að þær renni vel saman [ANG-LIK-SAM-7] sýnt útfærslu flókinna hreyfinga þannig að þær renni vel saman [ANG-LIK-SAM-10]
Taktur gert einfaldar rytmískar æfingar [ANG-LIK-TAK-4] gert einfaldar rytmískar æfingar og fylgt takti [ANG-LIK-TAK-7] gert rytmískar æfingar og fylgt takti [ANG-LIK-TAK-10]
Hópíþróttir tekið þátt í boltaleikjum og sýnt boltafærni [ANG-LIK-HÓP-4] tekið þátt í mismunandi hópíþróttagreinum [ANG-LIK-HÓP-7] tekið þátt í hópíþróttum [ANG-LIK-HÓP-10]
Einstaklings-íþróttir tekið þátt í æfingum með áherslu á mótun hreyfiþroska [ANG-LIK-EIN-4] tekið þátt í einstaklingsíþróttum [ANG-LIK-EIN-7] tekið þátt í einstaklingsíþróttum og heilsurækt [ANG-LIK-EIN-10]
Stöðluð próf tekið þátt í stöðluðum prófum [ANG-LIK-PRÓ-4] nýtt sér stöðluð próf í íþróttum til að meta eigið þrek og hreysti [ANG-LIK-PRÓ-7] nýtt sér stöðluð próf í íþróttum til að meta eigið þrek og hreysti, lipurð og samhæfingu [ANG-LIK-PRÓ-10]

Félagslegir þættir[breyta | breyta frumkóða]

Yfirheiti Við lok 4. bekkjar getur nemandi Við lok 7. bekkjar getur nemandi Við lok 10. bekkjar getur nemandi
Tilfinningar skilið þær tilfinningar sem fylgja því að vinna og tapa í leik [ANG-FEL-TIL-4] skilið mikilvægi jákvæðra samskipta [ANG-FEL-TIL-7] skilið mikilvægi gagnkvæmrar virðingar og góðrar framkomu til að efla liðsandann [ANG-FEL-TIL-10]
Virkni sýnt virkni og vinnusemi í æfingum og leikjum [ANG-FEL-VIR-4] skilið mikilvægi stundvísi, aga og sjálfstæðra vinnubragða í tengslum við góðan árangur [ANG-FEL-VIR-7] skilið mikilvægi góðrar ástundunar og sjálfsaga í tengslum við góðan árangur [ANG-FEL-VIR-10]
Leikreglur skilið einfaldar leikreglur og tekið þátt í leikjum [ANG-FEL-REG-4] þekkt helstu leikreglur í leikjum, hóp- og einstaklingsíþróttum [ANG-FEL-REG-7] þekkt mismunandi tegundir leikreglna í hóp- og einstaklingsíþróttum [ANG-FEL-REG-10]
Háttvísi skilið mikilvægi leikreglna og farið eftir þeim [ANG-FEL-HÁT-4] farið eftir leikreglum og sýnt háttvísi í leik [ANG-FEL-HÁT-7] farið eftir leikreglum og sýnt háttvísi í leik og hvatt til jákvæðrar framkomu við samherja og mótherja [ANG-FEL-HÁT-10]

Heilsa og heilsuefling[breyta | breyta frumkóða]

Yfirheiti Við lok 4. bekkjar getur nemandi Við lok 7. bekkjar getur nemandi Við lok 10. bekkjar getur nemandi
Markmiðasetning, íþróttir sett sér einföld markmið í íþróttum [ANG-HEI-ÍÞR-4] sett sér langtímamarkmið í íþróttum [ANG-HEI-ÍÞR-7] unnið með og sett sér skammtíma- og langtímamarkmið í íþróttum [ANG-HEI-ÍÞR-10]
Markmiðasetning, heilsurækt sett sér einföld markmið í heilsurækt [ANG-HEI-MHR-4] sett sér langtímamarkmið í heilsurækt [ANG-HEI-MHR-7] unnið með og sett sér skammtíma- og langtímamarkmið í heilsurækt og metið árangur [ANG-HEI-MHR-10]
Markmiðasetning, hreyfifærni nýtt sér niðurstöður úr stöðluðum prófum til að vinna að bættri hreyfifærni [ANG-HEI-HRF-4] nýtt sér niðurstöður úr stöðluðum prófum til að vinna að eflingu hreyfingar [ANG-HEI-HRF-7] nýtt sér niðurstöður úr stöðluðum prófum til að móta eigin þjálfunaráætlun [ANG-HEI-HRF-10]
Líffræðiþekking þekkt helstu líkamshluta [ANG-HEI-LÍF-4] tengt hlutverk taugakerfis, hjarta, blóðrásar og lungna við líkamlega áreynslu [ANG-HEI-LÍF-7] vitað hvaða hlutverk helstu vöðvahópar hafa í tengslum við þjálfun líkamans [ANG-HEI-LÍF-10]
Útivistarbúnaður skilið gildi viðeigandi fatnaðar og búnaðar til útivistar og notkunar hans [ANG-HEI-ÚTB-4] valið viðeigandi fatnaðar og mikilvægan búnað til útivistar og nýtt hann [ANG-HEI-ÚTB-7] valið og nýtt sér viðeigandi fatnað og nauðsynlegan búnað sem hæfir valinni útivist [ANG-HEI-ÚTB-10]
Útivist tekið þátt í skipulagðri útivist í náttúrunni og áttað sig á og varast hættur sem fylgt geta [ANG-HEI-ÚTI-4] skipulagt að einhverju leyti útivist í fjölbreyttu landslagi, tekið þátt, fylgt áætlunum og varast hættur sem fylgt geta [ANG-HEI-ÚTI-7] skipulagt, tekið þátt og fylgt áætlun um útivist í mismunandi aðstæðum og varast hættur sem fylgt geta [ANG-HEI-ÚTI-10]
Heilsuefling þekkt hvað felst í heilsueflandi líferni [ANG-HEI-HEF-4] sýnt almenna þekkingu á heilsueflandi líferni [ANG-HEI-HEF-7] sýnt og skilið mikilvægi eigin ábyrgðar á líkamlegu og andlegu heilbrigði og líkamlegu ásigkomulagi [ANG-HEI-HEF-10]
Heilsurækt tekið þátt í heilsurækt í nærumhverfi [ANG-HEI-HER-4] tekið þátt í alhliða heilsurækt sem er í boði utan skóla [ANG-HEI-HER-7] sótt og nýtt sér upplýsingar um alhliða heilsurækt sem er í boði utan skóla [ANG-HEI-HER-10]
Mælingar gert einfaldar mælingar og talningar í leikjum eða æfingum [ANG-HEI-MÆL-4] notað mælingar til að leggja mat á lipurð og samhæfingu [ANG-HEI-MÆLE-7] notað mælingar til að leggja mat á eigin afkastagetu með tilliti til þreks, hreysti, lipurðar og samhæfingar [ANG-HEI-MÆL-10]
Virkni tekið þátt í leikjum [ANG-HEI-VIR-4] tekið þátt og sýnt virkni í leikjum [ANG-HEI-VIR-7] tekið þátt í leikjum af margvíslegu tagi [ANG-HEI-VIR-10]

Öryggi og hreinlæti[breyta | breyta frumkóða]

Yfirheiti Við lok 4. bekkjar getur nemandi Við lok 7. bekkjar getur nemandi Við lok 10. bekkjar getur nemandi
Öryggisreglur Þekkt til helstu öryggisreglna í skólaíþróttum [ANG-ORY-REG-4] gert sér grein fyrir mikilvægi helstu öryggis- og umgengnisreglna og brugðist við óhöppum [ANG-ORY-REG-7] tekið ákvarðanir á grundvelli öryggis- og umgengnisreglna og brugðist við óvæntum aðstæðum [ANG-ORY-REG-10]
Skyndihjálp gert viðvart ef óhapp verður [ANG-ORY-SKY-4] framkvæmt grunnatriði skyndihjálpar [ANG-ORY-SKY-7] framkvæmt og útskýrt helstu atriði skyndihjálpar, endurlífgunar og björgunar [ANG-ORY-SKY-10]
Hreinlæti skilið mikilvægi hreinlætis í tengslum allar við íþróttir [ANG-ORY-HRE-4] skilið mikilvægi eigin ábyrgðar á hreinlæti og heilbrigði við alla íþróttaiðkun [ANG-ORY-HRE-7] fundið til eigin ábyrgðar á hreinlæti og heilbrigði við alla íþróttaiðkun [ANG-ORY-HRE-10]

Sund[breyta | breyta frumkóða]

Yfirheiti Við lok 4. bekkjar getur nemandi Við lok 7. bekkjar getur nemandi Við lok 10. bekkjar getur nemandi
Fjölbreyttar sundaðferðir tekið þátt í fjölbreyttum leikjum í vatni [ANG-SUN-FJO-4] beitt fjölbreyttum sundaðferðum [ANG-SUN-FJO-7] sýnt leikni í vatni og beitt fjölbreyttum sundaðferðum [ANG-SUN-FJO-10]
Heilsuefling notið sín í vatni [ANG-SUN-HEI-4] eflt eigin heilsu í vatni [ANG-SUN-HEI-7] tekið þátt í fjölbreyttum leiðum til að efla eigin heilsu í vatni [ANG-SUN-HEI-10]
Þolsund gert æfingar sem reyna á þol í 100 metra sundi [ANG-SUN-ÞOL-4] gert æfingar sem reyna á loftháð þol í 300 metra sundi [ANG-SUN-ÞOL-7] gert æfingar sem reyna á loftháð þol í 600 metra sundi [ANG-SUN-ÞOL-10]
Sprettsund gert æfingar sem reyna á loftfirrt þol í 8 metra sundi [ANG-SUN-SPR-4] gert æfingar sem reyna á loftfirrt þol í 12 metra sundi [ANG-SUN-SPR-7] gert æfingar sem reyna á loftfirrt þol í 25 metra sprettsundi [ANG-SUN-SPR-10]
Bringusund synt 12 metra bringusund með eða án hjálpartækja [ANG-SUN-BRI-4] sýnt leikni og synt 25 metra bringusund viðstöðulaust [ANG-SUN-BRI-7] sýnt leikni og synt 50 metra bringusund viðstöðulaust [ANG-SUN-BRI-10]
Baksund synt 12 metra skólabaksund og baksund með eða án hjálpartækja [ANG-SUN-BAK-4] sýnt leikni og synt 25 metra baksund viðstöðulaust [ANG-SUN-BAK-7] sýnt leikni og synt 50 metra baksund viðstöðulaust [ANG-SUN-BAK-10]
Skriðsund synt 12 metra skriðsund með eða án hjálpartækja [ANG-SUN-SKR-4] sýnt leikni og synt 25 metra skriðsund viðstöðulaust [ANG-SUN-SKR-7] sýnt leikni og synt 50 metra skriðsund viðstöðulaust [ANG-SUN-SKR-10]
Kafsund synt 5 metra kafsund viðstöðulaust [ANG-SUN-KAF-4] sýnt leikni og synt 8 metra kafsund viðstöðulaust [ANG-SUN-KAF-7] sýnt leikni og synt 15 metra kafsund viðstöðulaust [ANG-SUN-KAF-10]
Björgunarsund bjargað sér í vatni [ANG-SUN-BJS-4] synt björgunarsund með jafningja að lágmarki 12 metra [ANG-SUN-BJS-7] synt björgunarsund með jafningja að lágmarki 25 metra [ANG-SUN-BJS-10]
Björgun framkvæmt björgun úr vatni og notast við björgunaráhöld [ANG-SUN-BJO-4-10]
Þol í vatni troðið marvaða í hálfa mínútu [ANG-SUN-THV-4] troðið marvaða í eina mínútu [ANG-SUN-THV-7]