Hér má finna yfirlit yfir hæfniviðmið kafla Aðalnámsskrár grunnskóla fyrir erlend tungumál ásamt hlekkjum á undirsíður þar sem koma má fyrir ítarfefni fyrir hvert hæfniviðmið. Markmiðið er ekki að hægt sé að fara í hæfniviðmið og „tikka í boxin“ heldur frekar að gefa dæmi um hvers kyns verkefni megi nýta til að ná þess lags hæfniviðmiði. Slíkt styður við heildstæðari skoðun á efni og þeim kröfum sem kennarar gera til nemenda. Eins er vert að benda á ágæta áminningu úr tillögunni:
„Þegar sjónum er beint sérstaklega að einu hæfniviðmiði þarf að hafa í huga að nám er samfellt ferli og skapandi athöfn, fremur en söfnun afmarkaðrar þekkingar og þjálfun í tiltekinni leikni.“
Tjáning og miðlun
Yfirheiti
|
Við lok 4. bekkjar getur nemandi
|
Við lok 7. bekkjar getur nemandi
|
Við lok 10. bekkjar getur nemandi
|
Tjáning
|
tjáð tilfinningar og hugmyndir þannig að þær séu skiljanlegar öðrum []
|
tjáð hugmyndir og tilfinningar á skýran hátt []
|
tjáð hugmyndir og tilfinningar á skýran og skipulegan hátt []
|
Tillitssemi
|
hlustað á aðra, sýnt tillitssemi og haldið sig við umræðuefni []
|
brugðist við upplýsingum, hlustað, tekið þátt í umræðum og tekið tillit til ólíkra sjónarmiða []
|
brugðist við margvíslegum upplýsingum og hugmyndum, hlustað, tekið þátt í umræðum og tekið tillit til ólíkra sjónarmiða []
|
Samskipti
|
rætt um áhugamál sín og skoðanir []
|
rætt um viðfangsefni þannig að áhugi viðmælanda sé vakinn []
|
rætt á skýran hátt um málefni þannig að áhugi viðmælanda sé vakinn []
|
Orðaforði
|
lært og notað ný orð til að ræða ólík viðfangsefni []
|
aukið orðaforða sinn og beitt honum á ólík umfjöllunarefni []
|
tileinkað sér og nýtt fjölbreyttan orðaforða og viðeigandi hugtök sem tengjast ólíkum viðfangsefnum []
|
Miðlun
|
nýtt ólíkar leiðir til miðlunar []
|
valið úr ólíkum leiðum til miðlunar []
|
valið úr fjölbreyttum leiðum til miðlunar []
|
Skapandi og gagnrýnin hugsun
Yfirheiti
|
Við lok 4. bekkjar getur nemandi
|
Við lok 7. bekkjar getur nemandi
|
Við lok 10. bekkjar getur nemandi
|
Spyrjandi hugarfar
|
spurt spurninga til að hefja rannsókn á fjölbreyttum fyrirbærum []
|
spurt fjölbreyttra spurninga og nýtt þær til rannsókna á fjölbreyttum fyrirbærum []
|
spurt gagnrýninna spurninga og nýtt þær í rannsóknum sínum []
|
Sköpun
|
unnið fjölbreytt verkefni á skapandi hátt []
|
bent á hugmyndir eða möguleika sem ekki hafa komið fram áður []
|
leyst fjölbreyttar áskoranir á skapandi hátt []
|
Lært af mistökum
|
lært af mistökum sínum []
|
lært af mistökum og séð möguleika til framfara []
|
lært af mistökum og séð í þeim nýja möguleika til framfara []
|
Rökræða
|
útskýrt mál sitt með rökum []
|
fært rök fyrir ólíkum skoðunum []
|
rökrætt álitamál frá ólíkum sjónarhornum []
|
Ályktun
|
skoðað gögn og upplýsingar og dregið eigin ályktanir []
|
tekið upplýsta afstöðu til gagna og upplýsinga og dregið eigin ályktanir []
|
tekið upplýsta afstöðu til gagna og upplýsinga, dregið ályktanir og túlkað þær []
|
Gagnrýnin hugsun
|
bent á ólík sjónarhorn í fjölbreyttum viðfangsefnum []
|
bent á ólík sjónarhorn og tekið rökstudda afstöðu í málum af fjölbreyttu tagi []
|
beitt ólíkum sjónarhornum og gagnrýninni hugsun í fjölbreyttum viðfangsefnum []
|
Sjálfstæði og samvinna
Yfirheiti
|
Við lok 4. bekkjar getur nemandi
|
Við lok 7. bekkjar getur nemandi
|
Við lok 10. bekkjar getur nemandi
|
Sjálfstæði
|
sýnt frumkvæði í verkefnum og beðið um aðstoð eftir þörfum []
|
sýnt frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum []
|
sýnt frumkvæði, sjálfstæði og ábyrgð í vinnubrögðum []
|
Samvinna
|
unnið með öðrum að verkefnum sem tengjast námi og félagsstarfi []
|
unnið með öðrum og lagt sitt af mörkum í samstarfi sem tengist námi og félagsstarfi []
|
unnið með öðrum og lagt sitt af mörkum í uppbyggilegu samstarfi sem tengist námi og félagsstarfi []
|
Samstarf
|
gert sér grein fyrir ólíkum hlutverkum í samstarfi []
|
gert sér grein fyrir eigin hlutverki í samstarfi og lagt sitt af mörkum []
|
geti sinnt hlutverki sínu í samstarfi og axlað ábyrgð []
|
Ábyrgð
|
tekið ákvarðanir um hvernig honum finnst best að læra []
|
tekið ákvarðanir um eigið nám og hagsmuni með tilliti til annarra []
|
tekið ákvarðanir um eigið nám og hagsmuni með lýðræðislegum hætti []
|
Leiðsögn
|
tekið leiðsögn og endurgjöf á jákvæðan hátt []
|
nýtt sér leiðsögn og endurgjöf til að ná námsmarkmiðum []
|
nýtt sér leiðsögn, endurgjöf og gagnrýni á uppbyggilegan hátt []
|
Nýting miðla og upplýsinga
Yfirheiti
|
Við lok 4. bekkjar getur nemandi
|
Við lok 7. bekkjar getur nemandi
|
Við lok 10. bekkjar getur nemandi
|
Áreiðanleiki
|
skilið muninn á tilbúningi og raunveruleika []
|
áttað sig á hvert á að leita til að afla áreiðanlegra upplýsinga og miðlað þeim áfram á réttan og ábyrgan hátt []
|
greint á milli áreiðanlegra og óáreiðanlegra miðla, áróðurs og upplýsinga []
|
Upplýsingaöflun og miðlanotkun
|
gert greinarmun á skoðunum og staðreyndum []
|
nýtt fjölbreytta miðla til upplýsingaöflunar og tekið upplýsta afstöðu til áreiðanleika þeirra []
|
nýtt ólíka miðla á ábyrgan hátt til að afla, greina og miðla upplýsingum og skoðunum []
|
Vandvirkni og nákvæmni
|
haft rétt eftir hvort sem um er að ræða tal eða texta []
|
skilið að framsetning og gæði upplýsinga er háð mörgum þáttum og þekkt mikilvægi þess að vanda val og notkun á heimildum []
|
valið traustar heimildir og sett upplýsingar fram með ólíkum hætti eftir því sem við á hverju sinni á siðferðilega ábyrgan hátt []
|
Ábyrgð og mat á eigin námi
Yfirheiti |
Við lok 4. bekkjar getur nemandi: |
Við lok 7. bekkjar getur nemandi: |
Við lok 10. bekkjar getur nemandi:
|
Sjálfsþekking
|
rætt um eigin styrkleika og þekkt hugarfar vaxtar.
|
sett sér markmið á grunni persónulegra styrkleika og tileinkað sér hugarfar vaxtar.
|
sett sér fjölbreytt og skapandi markmið á grunni persónulegra styrkleika og tileinkað sér hugarfar vaxtar.
|
Markmiðasetning
|
sett sér viðráðanleg markmið og glaðst þegar þeim er náð.
|
sett sér persónuleg og námsleg markmið, ígrundað árangur og mistök.
|
sett sér raunhæf og metnaðarfull markmið um frammistöðu og framvindu eigin náms, unnið eftir þeim og lagt mat á hvernig til hefur tekist.
|
Ígrundun
|
velt fyrir sér eigin námi og hvað hann langar að læra næst.
|
metið nám sitt skipulega og sett sér markmið um viðfangsefni eða hæfni.
|
skipulagt, ígrundað og borið ábyrgð á eigin námi.
|
Árangur og sjálfsþekking
|
skilið viðmið um árangur og til hvers er ætlast.
|
skilið viðmið um árangur og unnið að þeim.
|
skilið og rökstutt viðmið um árangur og unnið að þeim.
|
Náms- og starfsfræðsla
|
áttað sig á ólíkum og fjölbreyttum störfum sem unnin eru í samfélaginu.
|
tengt eigin áhuga fjölbreyttum námsleiðum og störfum.
|
nýtt upplýsingar um námsleiðir og fjölbreytt störf við skipulagningu eigin náms- og starfsferils.
|