Haustið 2024 voru samþykktar tillögur að endurskoðun greinarsviða aðalnámsskrár grunnskóla frá 2013. Þar er m.a. ítarlegar farið í þá þætti sem snerta skuli á í náttúruvísindum (og eitthvað var rætt um að kaflinn um náttúrugreinar yrði endurnefndur til að nota hugtakið náttúruvísindi). Hæfniviðmiðin er að finna í náttúrugreinakaflanum vef ANG.
Markmiðið er ekki að hægt sé að fara í hæfniviðmið og „tikka í boxin“ heldur frekar að gefa dæmi um hvers kyns verkefni megi nýta til að ná þess lags hæfniviðmiði. Slíkt styður við heildstæðari skoðun á efni og þeim kröfum sem kennarar gera til nemenda. Eins er vert að benda á ágæta áminningu úr tillögunni:
„Þegar sjónum er beint sérstaklega að einu hæfniviðmiði þarf að hafa í huga að nám er samfellt ferli og skapandi athöfn, fremur en söfnun afmarkaðrar þekkingar og þjálfun í tiltekinni leikni.“
Vinnulag náttúruvísinda
Yfirheiti |
Við lok 4. bekkjar getur nemandi: |
Við lok 7. bekkjar getur nemandi: |
Við lok 10. bekkjar getur nemandi:
|
Hugtök
|
notað einföld hugtök í náttúruvísindum við athuganir og í umræðu, [HUG (4)]
|
beitt algengustu hugtökum og heitum í náttúruvísindum við athuganir, í umræðu og textaskrifum, [HUG (7)]
|
beitt hugtökum og heitum í náttúruvísindum við fjölbreyttar aðstæður, [HUG (10)]
|
Læsi á gögn og náttúru vísindatexta
|
lesið einfaldan náttúruvísindatexta og endursagt helstu atriði með eigin orðum, skoðað einfaldar myndir og sagt frá efninu, [LÆS (4)]
|
lesið náttúruvísindatexta sér til gagns og endursagt með eigin orðum, túlkað myndrit og skoðað myndefni um náttúrufræði, umorðað og nýtt til útskýringa, [LÆS (7)]
|
lesið þyngri náttúruvísindatexta sér til gagns og ánægju og endursagt og rætt helstu atriði, lesið út úr myndritum og myndefni um náttúrufræði, umorðað, túlkað og sett í margvíslegt samhengi, [LÆS (10)]
|
Athuganir
|
framkvæmt einfaldar athuganir og skráð mælingar á hversdagslegum hlutum samkvæmt leiðbeiningum, [ATH (4)]
|
framkvæmt, skráð og safnað upplýsingum út frá einföldum athugunum og mælingum úti og inni samkvæmt fyrirmælum, [ATH (7)]
|
framkvæmt, skráð og safnað upplýsingum út frá athugunum og mælingum úti og inni, samkvæmt fyrirmælum og á eigin vegum, [ATH (10)]
|
Miðlun
|
kynnt niðurstöður einfaldra athugana og tekið þátt í umræðu um efnið, [MIÐ (4)]
|
kynnt niðurstöður rannsókna, útskýrt hvaða vinnubrögðum var beitt og tekið þátt í umræðum um efnið, [MIÐ (7)]
|
kynnt niðurstöður rannsókna, tekið þátt í gagnrýnum umræðum og metið gildi þess að vísindalegum upplýsingum sé miðlað á skýran hátt, [MIÐ (10)]
|
Vísindaleg vinnubrögð
|
sett fram spurningar, leitað svara um náttúruleg fyrirbæri og útskýrt valið viðfangsefni, [VÍS (4)]
|
þekkt ferli vísindalegra vinnubragða og unnið eftir þeim í stýrðum verkefnum, [VÍS (7)]
|
sett fram vísindalega tilgátu og beitt margvíslegum vísinda-legum vinnubrögðum til að kanna hana í þekkingarleit og úrvinnslu verkefna, [VÍS (10)]
|
Eðli vísindalegrar þekkingar
|
rætt hvort tiltekið atriði í samræðu eða texta sé staðreynd eða skoðun í tengslum við náttúruvísindi, [EVÞ (4)]
|
rætt muninn á staðreynd og skoðun, tilgátu og kenningu í tengslum við náttúruvísindi, [EVÞ (7)]
|
skýrt muninn á staðreynd og skoðun, tilgátu og kenningu í tengslum við náttúruvísindi og sagt frá dæmum um vísindalega þekkingarsköpun, [EVÞ (10)]
|
Tengsl vísinda, tækni og menningar
|
útskýrt hvernig ákveðin tæki og búnaður geta hjálpað manninum að afla upplýsinga og hafa áhrif á heiminn. [VTM (4)]
|
rætt valin dæmi um samspil tækni, þekkingar og framfara og hvernig hugmyndir manna um heiminn hafa breyst með aukinni þekkingu. [VTM (7)]
|
tekið þátt í umræðu um hvernig náttúruvísindi bæði móta og mótast af tækni, menningu og heimsmynd mannsins. [VTM (10)]
|
Umhverfið
Yfirheiti |
Við lok 4. bekkjar getur nemandi |
Við lok 7. bekkjar getur nemandi |
Við lok 10. bekkjar getur nemandi
|
Hringrásir efna og orku
|
nefnt dæmi um samspil lífvera og lífvana þátta [HRI (4)]
|
lýst samspili lífvera og lífvana þátta [HRI (7)]
|
lýst hringrás efna og orku, náttúrulegum ferlum og flæði orku í náttúrunni [HRI (10)]
|
Vistkerfi
|
skoðað og kannað helstu vistkerfi í nærumhverfi sínu [VIST (4)]
|
lýst mismunandi vistkerfum og nefnt dæmi um áhrif sem nýjar tegundir geta haft á umhverfi sitt [VIST (7)]
|
útskýrt þarfir lífvera og rætt á gagnrýninn hátt um þróun ólíkra vistkerfa [VIST (10)]
|
Líffræðileg fjölbreytni
|
gert sér grein fyrir fjölbreytni innan tegunda og milli tegunda
|
áttað sig á gildi líffræðilegrar fjölbreytni og tengslum við velferð manna og dýra
|
útskýrt gildi líffræðilegrar fjölbreytni og tengsl við velferð manna, dýravernd, sjálfbæra þróun og vistkerfin
|
Náttúruvernd
|
sagt frá og áttað sig á náttúruvernd í nærumhverfi sínu [NÁT (4)]
|
rætt um og skilið ástæður náttúruverndar [NÁT (7)]
|
fjallað um og tekið gagnrýna afstöðu til siðferðilegra þátta sem tengjast náttúruvernd [NÁT (10)]
|
Veðurfar
|
gert sér grein fyrir nokkrum einkennum veðurfars í nærumhverfi [VEÐ (4)]
|
lýst helstu sérkennum veðurfars við Ísland [VEÐ (7)]
|
útskýrt loftslag, vinda og hafstrauma Jarðar [VEÐ (10)]
|
Loftslagsbreytingar
|
fjallað um hvaða hlutverki lofthjúpurinn gegnir fyrir líf á jörðinni [LOF (4)]
|
útskýrt gróðurhúsaáhrif og tengsl við loftslagsbreytingar [LOF (7)]
|
útskýrt loftslagsbreytingar, ástæður, afleiðingar og mótvægisaðgerðir [LOF (10)]
|
Náttúruauðlindir og sjálfbær nýting
|
tekið þátt í umræðu um hvernig maðurinn nýtir náttúruna [NSN (4)]
|
áttað sig á mikilvægi þess að nýta náttúruauðlindir án þess að ganga um of á þær [NSN (7)]
|
gert grein fyrir verndun og nýtingu náttúruauðlinda í tengslum við sjálfbæra þróun, sjálfbæra nýtingu og rýnt í eigin neysluvenjur [NSN (10)]
|
Einstaklingurinn og umhverfið
|
gengið vel um umhverfið og átti sig á mikilvægi þess [EOU (4)]
|
rætt valin dæmi um tengsl einstaklinga, nærumhverfis og umhverfismála á heimsvísu [EOU (7)]
|
rætt á gagnrýninn hátt tengsl einstaklinga, nærumhverfis og umhverfismála á heimsvísu [EOU (10)]
|
Geta til aðgerða
|
komið með hugmyndir að aðgerðum sem tengjast náttúruvernd og tekið þátt í verkefnum í nærumhverfi sínu [GET (4)]
|
skipulagt og tekið þátt í aðgerðum er varða náttúruvernd og umhverfismál í nærumhverfi sínu [GET (7)]
|
skipulagt og tekið þátt í aðgerðum er varða náttúruvernd og umhverfismál í nærumhverfi og í alþjóðlegu samhengi [GET (10)]
|
Lífið
Yfirheiti |
Við lok 4. bekkjar getur nemandi |
Við lok 7. bekkjar getur nemandi |
Við lok 10. bekkjar getur nemandi
|
Upplifun af náttúrunni
|
sagt frá eigin upplifun af lífverum í náttúru-legu umhverfi [UPP (4)]
|
lýst reynslu sinni, athugun og upplifun af lífverum í náttúrulegu umhverfi [UPP (7)]
|
gert grein fyrir tengslum sínum við aðrar lífverur og eigin athugunum á hegðun þeirra [UPP (10)]
|
Flokkun og lífsskilyrði lífvera
|
rætt um helstu einkenni lífvera og lífsskilyrði þeirra [FLO (4)]
|
útskýrt helstu einkenni og lífsskilyrði lífvera og tekið dæmi um tengsl þeirra innbyrðis [FLO (7)]
|
útskýrt einkenni og lífsskilyrði lífvera og flokkun þeirra eftir skyldleika [FLO (10)]
|
Örverur
|
gert sér grein fyrir tilvist örvera í umhverfinu sem geta ýmist verið gagnlegar eða skaðlegar [ÖRV (4)]
|
nefnt dæmi um gagn og skaðsemi örvera [ÖRV (7)]
|
þekkt gagn og skaðsemi örvera [ÖRV (4)]
|
Frumur
|
gert sér grein fyrir að allar lífverur eru gerðar úr frumum [FRU (4)]
|
áttað sig á að frumur eru grunneining lífs á Jörðinni [FRU (7)]
|
útskýrt gerð frumna, líffæri þeirra og starfsemi [FRU (10)]
|
Þróun
|
áttað sig á að lífverur hafa tekið breytingum frá upphafi lífs á Jörðu [ÞRÓ (4)]
|
nefnt dæmi um náttúruval og aðlögun [ÞRÓ (7)]
|
fjallað um þróun lífvera og tekið dæmi um hvernig lífverur hafa aðlagast umhverfi sínu [ÞRÓ (10)]
|
Erfðir
|
|
skilið að lífverur erfa einkenni forfeðra sinna [ERF (7)]
|
útskýrt hvernig einkenni erfast á milli kynslóða [ERF (10)]
|
Bygging og starfsemi plantna
|
lýst ytri byggingu á helstu hlutum plantna [PLÖ (4)]
|
sagt frá hvernig plöntur nýta ljóstillífun til að afla næringar [PLÖ (7)]
|
gert grein fyrir fjölbreytileika plantna, starfsemi mismunandi plöntuhópa og mikilvægi þeirra fyrir kolefnisbindingu [PLÖ (10)]
|
Bygging og starfsemi sveppa
|
lýst ytri byggingu á helstu hlutum sveppa [SVE (4)]
|
sagt frá rotverum og hvernig sveppir afla næringar [SVE (7)]
|
gert grein fyrir fjölbreytileika sveppa, starfsemi mismunandi tegunda og hvernig þeir taka þátt í samskiptum milli plantna [SVE (10)]
|
Bygging og starfsemi dýra
|
lýst helstu einkennum valinna dýra [DÝR (4)]
|
sagt frá einkennum helstu hópa dýra [DÝR (7)]
|
gert grein fyrir fjölbreytileika dýra og mismunandi einkennum [DÝR (10)]
|
Líffæri og líffærakerfi
|
lýst byggingu og starfsemi mannslíkamans á einfaldan hátt [LÍF (4)]
|
lýst helstu líffærakerfum mannslíkamans og starfsemi þeirra í grófum dráttum [LÍF (7)]
|
lýst hlutverki og samspili helstu líffæra og líffærakerfa mannslíkamans [LÍF (10)]
|
Kynheilbrigði
|
tjáð sig á einfaldan hátt um einkastaði líkamans og borið virðingu fyrir þeim [KYN (4)]
|
lýst breytingum sem verða við kynþroskaaldur og gert sér grein fyrir mikilvægi gagnkvæmrar virðingar í samskiptum kynjanna [KYN (7)]
|
rætt kynheilbrigði, kynvitund, ábyrga hegðun í kynlífi, mikilvægi þess að virða mörk, tilfinningar og tilgang getnaðarvarna [KYN (10)]
|
Heilsa
|
rætt mikilvægi hreyfingar, hreinlætis, hollrar fæðu, hvíldar og svefns [HEI (4)]
|
rætt hvernig einstaklingur getur stuðlað að líkamlegu og andlegu heilbrigði [HEI (7)]
|
útskýrt hvernig einstaklingur getur stuðlað að eigin velferð, líkamlegu og andlegu heilbrigði með ábyrgri neyslu, hegðun og samskiptum [HEI (10)]
|
Efnin
Yfirheiti |
Við lok 4. bekkjar getur nemandi |
Við lok 7. bekkjar getur nemandi |
Við lok 10. bekkjar getur nemandi
|
Uppbygging efna
|
þekkt og flokkað algeng efni og lýst helstu eiginleikum þeirra [EFN (4)]
|
útskýrt að allt er búið til úr frumeindum og sameindum [EFN (7)]
|
þekkt uppbyggingu frumeinda og sameinda og myndun jóna [EFN (10)]
|
Varðveisla massa
|
með athugun sýnt fram á að efni geta skipt um form og breyst en hverfa ekki [VAM (4)]
|
nefnt dæmi um varðveislu massa og tengt við hversdagslega atburði [VAM (7)]
|
útskýrt varðveislu massa, tengt við hegðun efna og frumeindakenninguna [VAM (10)]
|
Lotukerfið
|
bent á algengustu frumefni og efnasambönd [LOT (4)]
|
notað algeng efnatákn í umfjöllun um lotukerfið og efni í umhverfi sínu [LOT (7)]
|
útskýrt uppbyggingu lotukerfisins og tengt við eiginleika efna [LOT (10)]
|
Efnajöfnur
|
|
þekkt algengar formúlur efnasambanda sem birtast í daglegu lífi [EJÖ (7)]
|
þekkt heiti algengra frumefna og efnasambanda og unnið með þau í efnajöfnum [EJÖ (10)]
|
Efna-breytingar og eiginleikar efna
|
framkvæmt og útskýrt einfaldar tilraunir um efnabreytingar og hamskipti [EIG (4)]
|
gert grein fyrir efnabreytingum og hamskiptum og útskýrt með dæmum [EIG (7)]
|
lýst efnabreytingum og samspili þeirra við hitastig og orku m.a. með efnajöfnum [EIG (10)]
|
Leysni
|
rannsakað leysni algengra efna á heimilinu [LEY (4)]
|
fjallað um hugtakið leysni og tengt við athafnir í daglegu lífi [LEY (7)]
|
unnið með leysni mismunandi efna í vökvum og lofttegundum [LEY (10)]
|
Sýrustig
|
þekkt dæmi um hættuleg efni á heimilinu [SÝR (4)]
|
þekkt muninn á sýru og basa [SÝR (7)]
|
útskýrt og unnið með pH kvarðann [SÝR (10)]
|
Orkan
Yfirheiti |
Við lok 4. bekkjar getur nemandi |
Við lok 7. bekkjar getur nemandi |
Við lok 10. bekkjar getur nemandi
|
Orka
|
framkvæmt og fjallað um athuganir sem tengjast algengustu orkuformum í umhverfi sínu [ORK (4)]
|
lýst helstu orkuformum og lýst einföldum dæmum um varðveislu orkunnar [ORK (7)]
|
gert grein fyrir orku í mismunandi formum og tengt við varðveislu orkunnar [ORK (10)]
|
Nýting orku
|
nefnt dæmi um uppruna orku og tekið þátt í umræðu um orkusparnað [NÝT (4)]
|
rætt dæmi um framleiðslu og nýtingu á orku í daglegu lífi [NÝT (7)]
|
lýst ólíkum leiðum við framleiðslu, dreifingu og nýtingu orku og lýst áhrifum á umhverfi og náttúru [NÝT (10)]
|
Varmi
|
útskýrt muninn á heitu og köldu með einföldum tilraunum [VAR (4)]
|
sýnt skilning á hugtökunum varmi og hitastig og tengt þau við daglegt líf [VAR (7)]
|
útskýrt mismunandi varmaflutning og samspil varma og hitastigs [VAR (10)]
|
Rafmagn og segulmagn
|
kannað eiginleika segla [RSM (4)]
|
lýst eiginleikum segla og notkun þeirra og kannað eiginleika rafhlaðinna hluta, [RSM (7)]
|
útskýrt stöðurafmagn og tengsl rafmagns og segulmagns [RSM (10)]
|
Rafmagn og rafrásir
|
sagt frá þróun algengra rafmagnstækja [RÁS (4)]
|
framkvæmt einfaldar athuganir á rafrásum og útskýrt hvernig rafmagn verður til [RÁS (7)]
|
útskýrt einfaldar rafrásir [RÁS (10)]
|
Bylgjur
|
skoðað hljóð og ljós og lýst einföldum eiginleikum þeirra [BYL (4)]
|
lýst eiginleikum hljóðs og ljóss og ýmsum fyrirbærum með tilliti til hljóðs og lita [BYL (7)]
|
útskýrt bylgjur rafsegulrófsins og hljóðs og lýst eiginleikum þeirra [BYL (10)]
|
Gagn og skaðsemi bylgna
|
framkvæmt og fjallað um athuganir á sýnilegum bylgjum [GSB (4)]
|
rætt um gagnsemi og hættur við helstu bylgjur í nærumhverfinu [GSB (7)]
|
gert grein fyrir gagnsemi og hættum við bylgjur [GSB (10)]
|
Kraftar og hreyfing
|
framkvæmt og fjallað um athuganir sem tengjast kröftum sem birtast í daglegu lífi [AFL (4)]
|
þekkt og fjallað um hreyfingu og einfaldar tegundir krafta [GSB (7)]
|
útskýrt helstu kraftalögmál sem verka í daglegu lífi manna [GSB (10)]
|
Massi
|
áttað sig á að efni hafa massa og stærð [MAS (4)]
|
áttað sig á muninum á massa og rúmmáli og helstu mælieiningum þessara eiginleika [MAS (4)]
|
mælt og reiknað eðlismassa efna og útskýrt muninn á massa og þyngd [MAS (4)]
|
Alheimurinn
Yfirheiti |
Við lok 4. bekkjar getur nemandi |
Við lok 7. bekkjar getur nemandi |
Við lok 10. bekkjar getur nemandi
|
Jörðin
|
gert grein fyrir ástæðum dægraskipta [JÖR (4)]
|
útskýrt árstíðirnar og dægraskipti út frá stöðu Jarðar í sólkerfinu [JÖR (7)]
|
gert grein fyrir stöðu og hreyfingu jarðar og áhrifum hennar á líf á Jörðu [JÖR (10)]
|
Mótun lands
|
nefnt dæmi um hvernig land verður til og mótast [MÓT (4)]
|
lýst hvernig náttúruöfl hafa áhrif á myndun og mótun lands [MÓT (7)]
|
útskýrt hvernig land hefur myndast og mótast á jarðsögulegum tíma [MÓT (10)]
|
Hamfarir
|
nefnt dæmi um náttúruhamfarir sem búast má við á Íslandi og hvernig viðbrögð við þeim eru skipulögð [HAM (4)]
|
lýst helstu sérkennum náttúruhamfara sem búast má við á Íslandi og hvernig viðbrögð við þeim eru skipulögð [HAM (7)]
|
útskýrt hvar og af hverju helstu náttúruhamfarir verða sem búast má við á Íslandi og hvernig viðbrögð við þeim eru skipulögð [HAM (10)]
|
Tunglið
|
bent á hvernig Tunglið tekur breytingum yfir mánuðinn [TUN (4)]
|
lýst gangi Tunglsins um Jörðina [TUN (7)]
|
gert grein fyrir áhrifum Tunglsins á Jörðina [TUN (10)]
|
Sólkerfið
|
fjallað um helstu hnetti í sólkerfinu [SÓL (4)]
|
gert grein fyrir uppbyggingu sólkerfisins [SÓL (7)]
|
þekkt eiginleika sólkerfisins og gert grein fyrir myndun, stöðu og hreyfingu sólkerfa [SÓL (10)]
|
Alheimurinn
|
gert sér grein fyrir að flestar stjörnur á himninum eru sólir í öðrum sólkerfum [ALH (4)]
|
gert grein fyrir staðsetningu Jarðarinnar í Vetrarbrautinni [ALH (7)]
|
gert grein fyrir myndun og þróun stjarna [ALH (10)]
|