Haustið 2024 voru samþykktar tillögur að endurskoðun greinarsviða aðalnámsskrár grunnskóla frá 2013. Þar er m.a. ítarlegar farið í þá þætti sem snerta skuli á í náttúruvísindum (og eitthvað var rætt um að kaflinn um náttúrugreinar yrði endurnefndur til að nota hugtakið náttúruvísindi). Hæfniviðmiðin er að finna í náttúrugreinakaflanum vef ANG.
Markmiðið er ekki að hægt sé að fara í hæfniviðmið og „tikka í boxin“ heldur frekar að gefa dæmi um hvers kyns verkefni megi nýta til að ná þess lags hæfniviðmiði. Slíkt styður við heildstæðari skoðun á efni og þeim kröfum sem kennarar gera til nemenda. Eins er vert að benda á ágæta áminningu úr tillögunni:
„Þegar sjónum er beint sérstaklega að einu hæfniviðmiði þarf að hafa í huga að nám er samfellt ferli og skapandi athöfn, fremur en söfnun afmarkaðrar þekkingar og þjálfun í tiltekinni leikni.“
Yfirheiti |
Við lok 4. bekkjar getur nemandi: |
Við lok 7. bekkjar getur nemandi: |
Við lok 10. bekkjar getur nemandi:
|
Hugtök
|
notað einföld hugtök í náttúruvísindum við athuganir og í umræðu, [Hugtök (4)]
|
beitt algengustu hugtökum og heitum í náttúruvísindum við athuganir, í umræðu og textaskrifum, [Hugtök (7)]
|
beitt hugtökum og heitum í náttúruvísindum við fjölbreyttar aðstæður, [Hugtök (10)]
|
Læsi á gögn og náttúru vísindatexta
|
lesið einfaldan náttúruvísindatexta og endursagt helstu atriði með eigin orðum, skoðað einfaldar myndir og sagt frá efninu, [Læsi (4)]
|
lesið náttúruvísindatexta sér til gagns og endursagt með eigin orðum, túlkað myndrit og skoðað myndefni um náttúrufræði, umorðað og nýtt til útskýringa, [Læsi (7)]
|
lesið þyngri náttúruvísindatexta sér til gagns og ánægju og endursagt og rætt helstu atriði, lesið út úr myndritum og myndefni um náttúrufræði, umorðað, túlkað og sett í margvíslegt samhengi, [Læsi (10)]
|
Athuganir
|
framkvæmt einfaldar athuganir og skráð mælingar á hversdagslegum hlutum samkvæmt leiðbeiningum, [Athuganir (4)]
|
framkvæmt, skráð og safnað upplýsingum út frá einföldum athugunum og mælingum úti og inni samkvæmt fyrirmælum, [Athuganir (7)]
|
framkvæmt, skráð og safnað upplýsingum út frá athugunum og mælingum úti og inni, samkvæmt fyrirmælum og á eigin vegum, [Athuganir (10)]
|
Miðlun
|
kynnt niðurstöður einfaldra athugana og tekið þátt í umræðu um efnið, [Miðlun (4)]
|
kynnt niðurstöður rannsókna, útskýrt hvaða vinnubrögðum var beitt og tekið þátt í umræðum um efnið, [Miðlun (7)]
|
kynnt niðurstöður rannsókna, tekið þátt í gagnrýnum umræðum og metið gildi þess að vísindalegum upplýsingum sé miðlað á skýran hátt, [Miðlun (10)]
|
Vísindaleg vinnubrögð
|
sett fram spurningar, leitað svara um náttúruleg fyrirbæri og útskýrt valið viðfangsefni, [Vísindaleg vinnubrögð (4)]
|
þekkt ferli vísindalegra vinnubragða og unnið eftir þeim í stýrðum verkefnum, [Vísindaleg vinnubrögð (7)]
|
sett fram vísindalega tilgátu og beitt margvíslegum vísinda-legum vinnubrögðum til að kanna hana í þekkingarleit og úrvinnslu verkefna, [Vísindaleg vinnubrögð (10)]
|
Eðli vísindalegrar þekkingar
|
rætt hvort tiltekið atriði í samræðu eða texta sé staðreynd eða skoðun í tengslum við náttúruvísindi, [Eðli vísindalegrar þekkingar (4)]
|
rætt muninn á staðreynd og skoðun, tilgátu og kenningu í tengslum við náttúruvísindi, [Eðli vísindalegrar þekkingar (7)]
|
skýrt muninn á staðreynd og skoðun, tilgátu og kenningu í tengslum við náttúruvísindi og sagt frá dæmum um vísindalega þekkingarsköpun, [Eðli vísindalegrar þekkingar (10)]
|
Tengsl vísinda, tækni og menningar
|
útskýrt hvernig ákveðin tæki og búnaður geta hjálpað manninum að afla upplýsinga og hafa áhrif á heiminn. [Tengsl vísinda, tækni og menningar (4)]
|
rætt valin dæmi um samspil tækni, þekkingar og framfara og hvernig hugmyndir manna um heiminn hafa breyst með aukinni þekkingu. [Tengsl vísinda, tækni og menningar (7)]
|
tekið þátt í umræðu um hvernig náttúruvísindi bæði móta og mótast af tækni, menningu og heimsmynd mannsins. [Tengsl vísinda, tækni og menningar (10)]
|
Yfirheiti |
Við lok 4. bekkjar getur nemandi |
Við lok 7. bekkjar getur nemandi |
Við lok 10. bekkjar getur nemandi
|
Upplifun af náttúrunni
|
sagt frá eigin upplifun af lífverum í náttúru-legu umhverfi [Upplifun af náttúrunni (4)]
|
lýst reynslu sinni, athugun og upplifun af lífverum í náttúrulegu umhverfi [Upplifun af náttúrunni (7)]
|
gert grein fyrir tengslum sínum við aðrar lífverur og eigin athugunum á hegðun þeirra [Upplifun af náttúrunni (10)]
|
Flokkun og lífsskilyrði lífvera
|
rætt um helstu einkenni lífvera og lífsskilyrði þeirra [Flokkun og lífsskilyrði lífvera (4)]
|
útskýrt helstu einkenni og lífsskilyrði lífvera og tekið dæmi um tengsl þeirra innbyrðis [Flokkun og lífsskilyrði lífvera (7)]
|
útskýrt einkenni og lífsskilyrði lífvera og flokkun þeirra eftir skyldleika [Flokkun og lífsskilyrði lífvera (10)]
|
Örverur
|
gert sér grein fyrir tilvist örvera í umhverfinu sem geta ýmist verið gagnlegar eða skaðlegar [Örverur (4)]
|
nefnt dæmi um gagn og skaðsemi örvera [Örverur (7)]
|
þekkt gagn og skaðsemi örvera [Örverur (4)]
|
Frumur
|
gert sér grein fyrir að allar lífverur eru gerðar úr frumum [Frumur (4)]
|
áttað sig á að frumur eru grunneining lífs á Jörðinni [Frumur (7)]
|
útskýrt gerð frumna, líffæri þeirra og starfsemi [Frumur (10)]
|
Þróun
|
áttað sig á að lífverur hafa tekið breytingum frá upphafi lífs á Jörðu [Þróun (4)]
|
nefnt dæmi um náttúruval og aðlögun [Þróun (7)]
|
fjallað um þróun lífvera og tekið dæmi um hvernig lífverur hafa aðlagast umhverfi sínu [Þróun (10)]
|
Erfðir
|
|
skilið að lífverur erfa einkenni forfeðra sinna [Erfðir (7)]
|
útskýrt hvernig einkenni erfast á milli kynslóða [Erfðir (10)]
|
Bygging og starfsemi plantna
|
lýst ytri byggingu á helstu hlutum plantna [Bygging og starfsemi plantna (4)]
|
sagt frá hvernig plöntur nýta ljóstillífun til að afla næringar [Bygging og starfsemi plantna (7)]
|
gert grein fyrir fjölbreytileika plantna, starfsemi mismunandi plöntuhópa og mikilvægi þeirra fyrir kolefnisbindingu [Bygging og starfsemi plantna (10)]
|
Bygging og starfsemi sveppa
|
lýst ytri byggingu á helstu hlutum sveppa [Bygging og starfsemi sveppa (4)]
|
sagt frá rotverum og hvernig sveppir afla næringar [Bygging og starfsemi sveppa (7)]
|
gert grein fyrir fjölbreytileika sveppa, starfsemi mismunandi tegunda og hvernig þeir taka þátt í samskiptum milli plantna [Bygging og starfsemi sveppa (10)]
|
Bygging og starfsemi dýra
|
lýst helstu einkennum valinna dýra [Bygging og starfsemi dýra (4)]
|
sagt frá einkennum helstu hópa dýra [Bygging og starfsemi dýra (7)]
|
gert grein fyrir fjölbreytileika dýra og mismunandi einkennum [Bygging og starfsemi dýra (10)]
|
Líffæri og líffærakerfi
|
lýst byggingu og starfsemi mannslíkamans á einfaldan hátt [Líffæri og líffærakerfi (4)]
|
lýst helstu líffærakerfum mannslíkamans og starfsemi þeirra í grófum dráttum [Líffæri og líffærakerfi (7)]
|
lýst hlutverki og samspili helstu líffæra og líffærakerfa mannslíkamans [Líffæri og líffærakerfi (10)]
|
Kynheilbrigði
|
tjáð sig á einfaldan hátt um einkastaði líkamans og borið virðingu fyrir þeim [Kynheilbrigði (4)]
|
lýst breytingum sem verða við kynþroskaaldur og gert sér grein fyrir mikilvægi gagnkvæmrar virðingar í samskiptum kynjanna [Kynheilbrigði (7)]
|
rætt kynheilbrigði, kynvitund, ábyrga hegðun í kynlífi, mikilvægi þess að virða mörk, tilfinningar og tilgang getnaðarvarna [Kynheilbrigði (10)]
|
Heilsa
|
rætt mikilvægi hreyfingar, hreinlætis, hollrar fæðu, hvíldar og svefns [Heilsa (4)]
|
rætt hvernig einstaklingur getur stuðlað að líkamlegu og andlegu heilbrigði [Heilsa (7)]
|
útskýrt hvernig einstaklingur getur stuðlað að eigin velferð, líkamlegu og andlegu heilbrigði með ábyrgri neyslu, hegðun og samskiptum [Heilsa (10)]
|
Yfirheiti |
Við lok 4. bekkjar getur nemandi |
Við lok 7. bekkjar getur nemandi |
Við lok 10. bekkjar getur nemandi
|
Orka
|
framkvæmt og fjallað um athuganir sem tengjast algengustu orkuformum í umhverfi sínu [Orka (4)]
|
lýst helstu orkuformum og lýst einföldum dæmum um varðveislu orkunnar [Orka (7)]
|
gert grein fyrir orku í mismunandi formum og tengt við varðveislu orkunnar [Orka (10)]
|
Nýting orku
|
nefnt dæmi um uppruna orku og tekið þátt í umræðu um orkusparnað [Nýting orku (4)]
|
rætt dæmi um framleiðslu og nýtingu á orku í daglegu lífi [Nýting orku (7)]
|
lýst ólíkum leiðum við framleiðslu, dreifingu og nýtingu orku og lýst áhrifum á umhverfi og náttúru [Nýting orku (10)]
|
Varmi
|
útskýrt muninn á heitu og köldu með einföldum tilraunum [Varmi (4)]
|
sýnt skilning á hugtökunum varmi og hitastig og tengt þau við daglegt líf [Varmi (7)]
|
útskýrt mismunandi varmaflutning og samspil varma og hitastigs [Varmi (10)]
|
Rafmagn og segulmagn
|
kannað eiginleika segla [Rafmagn og segulmagn (4)]
|
lýst eiginleikum segla og notkun þeirra og kannað eiginleika rafhlaðinna hluta, [Rafmagn og segulmagn (7)]
|
útskýrt stöðurafmagn og tengsl rafmagns og segulmagns [Rafmagn og segulmagn (10)]
|
Rafmagn og rafrásir
|
sagt frá þróun algengra rafmagnstækja [Rafmagn og rafrásir (4)]
|
framkvæmt einfaldar athuganir á rafrásum og útskýrt hvernig rafmagn verður til [Rafmagn og rafrásir (7)]
|
útskýrt einfaldar rafrásir [Rafmagn og rafrásir (10)]
|
Bylgjur
|
skoðað hljóð og ljós og lýst einföldum eiginleikum þeirra [Bylgjur (4)]
|
lýst eiginleikum hljóðs og ljóss og ýmsum fyrirbærum með tilliti til hljóðs og lita [Bylgjur (7)]
|
útskýrt bylgjur rafsegulrófsins og hljóðs og lýst eiginleikum þeirra [Bylgjur (10)]
|
Gagn og skaðsemi bylgna
|
framkvæmt og fjallað um athuganir á sýnilegum bylgjum [Gagn og skaðsemi bylgna (4)]
|
rætt um gagnsemi og hættur við helstu bylgjur í nærumhverfinu [Gagn og skaðsemi bylgna (7)]
|
gert grein fyrir gagnsemi og hættum við bylgjur [Gagn og skaðsemi bylgna (10)]
|
Kraftar og hreyfing
|
framkvæmt og fjallað um athuganir sem tengjast kröftum sem birtast í daglegu lífi [Kraftar og hreyfing (4)]
|
þekkt og fjallað um hreyfingu og einfaldar tegundir krafta [Kraftar og hreyfing (7)]
|
útskýrt helstu kraftalögmál sem verka í daglegu lífi manna [Kraftar og hreyfing (10)]
|
Massi
|
áttað sig á að efni hafa massa og stærð [Massi (4)]
|
áttað sig á muninum á massa og rúmmáli og helstu mælieiningum þessara eiginleika [Massi (4)]
|
mælt og reiknað eðlismassa efna og útskýrt muninn á massa og þyngd [Massi (4)]
|
Yfirheiti |
Við lok 4. bekkjar getur nemandi |
Við lok 7. bekkjar getur nemandi |
Við lok 10. bekkjar getur nemandi
|
Jörðin
|
gert grein fyrir ástæðum dægraskipta [Jörðin (4)]
|
útskýrt árstíðirnar og dægraskipti út frá stöðu Jarðar í sólkerfinu [Jörðin (7)]
|
gert grein fyrir stöðu og hreyfingu jarðar og áhrifum hennar á líf á Jörðu [Jörðin (10)]
|
Mótun lands
|
nefnt dæmi um hvernig land verður til og mótast [Mótun lands (4)]
|
lýst hvernig náttúruöfl hafa áhrif á myndun og mótun lands [Mótun lands (7)]
|
útskýrt hvernig land hefur myndast og mótast á jarðsögulegum tíma [Mótun lands (10)]
|
Hamfarir
|
nefnt dæmi um náttúruhamfarir sem búast má við á Íslandi og hvernig viðbrögð við þeim eru skipulögð [Hamfarir (4)]
|
lýst helstu sérkennum náttúruhamfara sem búast má við á Íslandi og hvernig viðbrögð við þeim eru skipulögð [Hamfarir (7)]
|
útskýrt hvar og af hverju helstu náttúruhamfarir verða sem búast má við á Íslandi og hvernig viðbrögð við þeim eru skipulögð [Hamfarir (10)]
|
Tunglið
|
bent á hvernig Tunglið tekur breytingum yfir mánuðinn [Tunglið (4)]
|
lýst gangi Tunglsins um Jörðina [Tunglið (7)]
|
gert grein fyrir áhrifum Tunglsins á Jörðina [Tunglið (10)]
|
Sólkerfið
|
fjallað um helstu hnetti í sólkerfinu [Sólkerfið (4)]
|
gert grein fyrir uppbyggingu sólkerfisins [Sólkerfið (7)]
|
þekkt eiginleika sólkerfisins og gert grein fyrir myndun, stöðu og hreyfingu sólkerfa [Sólkerfið (10)]
|
Alheimurinn
|
gert sér grein fyrir að flestar stjörnur á himninum eru sólir í öðrum sólkerfum [Alheimurinn (4)]
|
gert grein fyrir staðsetningu Jarðarinnar í Vetrarbrautinni [Alheimurinn (7)]
|
gert grein fyrir myndun og þróun stjarna [Alheimurinn (10)]
|