Verkefni fyrir hæfniviðmið Lykilhæfni
Úr Kennarakvikan
Hér má finna yfirlit yfir hæfniviðmið kafla Aðalnámsskrár grunnskóla fyrir erlend tungumál ásamt hlekkjum á undirsíður þar sem koma má fyrir ítarfefni fyrir hvert hæfniviðmið. Markmiðið er ekki að hægt sé að fara í hæfniviðmið og „tikka í boxin“ heldur frekar að gefa dæmi um hvers kyns verkefni megi nýta til að ná þess lags hæfniviðmiði. Slíkt styður við heildstæðari skoðun á efni og þeim kröfum sem kennarar gera til nemenda. Eins er vert að benda á ágæta áminningu úr tillögunni:
„Þegar sjónum er beint sérstaklega að einu hæfniviðmiði þarf að hafa í huga að nám er samfellt ferli og skapandi athöfn, fremur en söfnun afmarkaðrar þekkingar og þjálfun í tiltekinni leikni.“
Tjáning og miðlun
Yfirheiti | Við lok 4. bekkjar getur nemandi | Við lok 7. bekkjar getur nemandi | Við lok 10. bekkjar getur nemandi |
---|---|---|---|
Tjáning | tjáð tilfinningar og hugmyndir þannig að þær séu skiljanlegar öðrum [ANG-Tjáning og miðlun-Tjáning-4] | tjáð hugmyndir og tilfinningar á skýran hátt [ANG-Tjáning og miðlun-Tjáning-7] | tjáð hugmyndir og tilfinningar á skýran og skipulegan hátt [ANG-Tjáning og miðlun-Tjáning-10] |
Tillitssemi | hlustað á aðra, sýnt tillitssemi og haldið sig við umræðuefni [ANG-Tjáning og miðlun-Tillitssemi-4] | brugðist við upplýsingum, hlustað, tekið þátt í umræðum og tekið tillit til ólíkra sjónarmiða [ANG-Tjáning og miðlun-Tillitssemi-7] | brugðist við margvíslegum upplýsingum og hugmyndum, hlustað, tekið þátt í umræðum og tekið tillit til ólíkra sjónarmiða [ANG-Tjáning og miðlun-Tillitssemi-10] |
Samskipti | rætt um áhugamál sín og skoðanir [ANG-Tjáning og miðlun-Samskipti-4] | rætt um viðfangsefni þannig að áhugi viðmælanda sé vakinn [ANG-Tjáning og miðlun-Samskipti-7] | rætt á skýran hátt um málefni þannig að áhugi viðmælanda sé vakinn [ANG-Tjáning og miðlun-Samskipti-10] |
Orðaforði | lært og notað ný orð til að ræða ólík viðfangsefni [ANG-Tjáning og miðlun-Orðaforði-4] | aukið orðaforða sinn og beitt honum á ólík umfjöllunarefni [ANG-Tjáning og miðlun-Orðaforði-7] | tileinkað sér og nýtt fjölbreyttan orðaforða og viðeigandi hugtök sem tengjast ólíkum viðfangsefnum [ANG-Tjáning og miðlun-Orðaforði-10] |
Miðlun | nýtt ólíkar leiðir til miðlunar [ANG-Tjáning og miðlun-Miðlun-4] | valið úr ólíkum leiðum til miðlunar [ANG-Tjáning og miðlun-Miðlun-7] | valið úr fjölbreyttum leiðum til miðlunar [ANG-Tjáning og miðlun-Miðlun-10] |
Skapandi og gagnrýnin hugsun[breyta | breyta frumkóða]
Yfirheiti | Við lok 4. bekkjar getur nemandi | Við lok 7. bekkjar getur nemandi | Við lok 10. bekkjar getur nemandi |
---|---|---|---|
Spyrjandi hugarfar | spurt spurninga til að hefja rannsókn á fjölbreyttum fyrirbærum [ANG-Skapandi og gagnrýnin hugsun-Spyrjandi hugarfar-4] | spurt fjölbreyttra spurninga og nýtt þær til rannsókna á fjölbreyttum fyrirbærum [ANG-Skapandi og gagnrýnin hugsun-Spyrjandi hugarfar-7] | spurt gagnrýninna spurninga og nýtt þær í rannsóknum sínum [ANG-Skapandi og gagnrýnin hugsun-Spyrjandi hugarfar-10] |
Sköpun | unnið fjölbreytt verkefni á skapandi hátt [ANG-Skapandi og gagnrýnin hugsun-Sköpun-4] | bent á hugmyndir eða möguleika sem ekki hafa komið fram áður [ANG-Skapandi og gagnrýnin hugsun-Sköpun-7] | leyst fjölbreyttar áskoranir á skapandi hátt [ANG-Skapandi og gagnrýnin hugsun-Sköpun-10] |
Lært af mistökum | lært af mistökum sínum [ANG-Skapandi og gagnrýnin hugsun-Lært af mistökum-4] | lært af mistökum og séð möguleika til framfara [ANG-Skapandi og gagnrýnin hugsun-Lært af mistökum-7] | lært af mistökum og séð í þeim nýja möguleika til framfara [ANG-Skapandi og gagnrýnin hugsun-Lært af mistökum-10] |
Rökræða | útskýrt mál sitt með rökum [ANG-Skapandi og gagnrýnin hugsun-Rökræða-4] | fært rök fyrir ólíkum skoðunum [ANG-Skapandi og gagnrýnin hugsun-Rökræða-7] | rökrætt álitamál frá ólíkum sjónarhornum [ANG-Skapandi og gagnrýnin hugsun-Rökræða-10] |
Ályktun | skoðað gögn og upplýsingar og dregið eigin ályktanir [ANG-Skapandi og gagnrýnin hugsun-Ályktun-4] | tekið upplýsta afstöðu til gagna og upplýsinga og dregið eigin ályktanir [ANG-Skapandi og gagnrýnin hugsun-Ályktun-7] | tekið upplýsta afstöðu til gagna og upplýsinga, dregið ályktanir og túlkað þær [ANG-Skapandi og gagnrýnin hugsun-Ályktun-10] |
Gagnrýnin hugsun | bent á ólík sjónarhorn í fjölbreyttum viðfangsefnum [ANG-Skapandi og gagnrýnin hugsun-Gagnrýnin hugsun-4] | bent á ólík sjónarhorn og tekið rökstudda afstöðu í málum af fjölbreyttu tagi [ANG-Skapandi og gagnrýnin hugsun-Gagnrýnin hugsun-7] | beitt ólíkum sjónarhornum og gagnrýninni hugsun í fjölbreyttum viðfangsefnum [ANG-Skapandi og gagnrýnin hugsun-Gagnrýnin hugsun-10] |
Sjálfstæði og samvinna[breyta | breyta frumkóða]
Yfirheiti | Við lok 4. bekkjar getur nemandi | Við lok 7. bekkjar getur nemandi | Við lok 10. bekkjar getur nemandi |
---|---|---|---|
Sjálfstæði | sýnt frumkvæði í verkefnum og beðið um aðstoð eftir þörfum [ANG-Sjálfstæði og samvinna-Sjálfstæði-4] | sýnt frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum [ANG-Sjálfstæði og samvinna-Sjálfstæði-7] | sýnt frumkvæði, sjálfstæði og ábyrgð í vinnubrögðum [ANG-Sjálfstæði og samvinna-Sjálfstæði-10] |
Samvinna | unnið með öðrum að verkefnum sem tengjast námi og félagsstarfi [ANG-Sjálfstæði og samvinna-Samvinna-4] | unnið með öðrum og lagt sitt af mörkum í samstarfi sem tengist námi og félagsstarfi [ANG-Sjálfstæði og samvinna-Samvinna-7] | unnið með öðrum og lagt sitt af mörkum í uppbyggilegu samstarfi sem tengist námi og félagsstarfi [ANG-Sjálfstæði og samvinna-Samvinna-10] |
Samstarf | gert sér grein fyrir ólíkum hlutverkum í samstarfi [ANG-Sjálfstæði og samvinna-Samstarf-4] | gert sér grein fyrir eigin hlutverki í samstarfi og lagt sitt af mörkum [ANG-Sjálfstæði og samvinna-Samstarf-7] | geti sinnt hlutverki sínu í samstarfi og axlað ábyrgð [ANG-Sjálfstæði og samvinna-Samstarf-10] |
Ábyrgð | tekið ákvarðanir um hvernig honum finnst best að læra [ANG-Sjálfstæði og samvinna-Ábyrgð-4] | tekið ákvarðanir um eigið nám og hagsmuni með tilliti til annarra [ANG-Sjálfstæði og samvinna-Ábyrgð-7] | tekið ákvarðanir um eigið nám og hagsmuni með lýðræðislegum hætti [ANG-Sjálfstæði og samvinna-Ábyrgð-10] |
Leiðsögn | tekið leiðsögn og endurgjöf á jákvæðan hátt [ANG-Sjálfstæði og samvinna-Leiðsögn-4] | nýtt sér leiðsögn og endurgjöf til að ná námsmarkmiðum [ANG-Sjálfstæði og samvinna-Leiðsögn-7] | nýtt sér leiðsögn, endurgjöf og gagnrýni á uppbyggilegan hátt [ANG-Sjálfstæði og samvinna-Leiðsögn-10] |
Nýting miðla og upplýsinga[breyta | breyta frumkóða]
Yfirheiti | Við lok 4. bekkjar getur nemandi | Við lok 7. bekkjar getur nemandi | Við lok 10. bekkjar getur nemandi |
---|---|---|---|
Áreiðanleiki | skilið muninn á tilbúningi og raunveruleika [ANG-Nýting miðla og upplýsinga-Áreiðanleiki-4] | áttað sig á hvert á að leita til að afla áreiðanlegra upplýsinga og miðlað þeim áfram á réttan og ábyrgan hátt [ANG-Nýting miðla og upplýsinga-Áreiðanleiki-7] | greint á milli áreiðanlegra og óáreiðanlegra miðla, áróðurs og upplýsinga [ANG-Nýting miðla og upplýsinga-Áreiðanleiki-10] |
Upplýsingaöflun og miðlanotkun | gert greinarmun á skoðunum og staðreyndum [ANG-Nýting miðla og upplýsinga-Upplýsingaöflun og miðlanotkun-4] | nýtt fjölbreytta miðla til upplýsingaöflunar og tekið upplýsta afstöðu til áreiðanleika þeirra [ANG-Nýting miðla og upplýsinga-Upplýsingaöflun og miðlanotkun-7] | nýtt ólíka miðla á ábyrgan hátt til að afla, greina og miðla upplýsingum og skoðunum [ANG-Nýting miðla og upplýsinga-Upplýsingaöflun og miðlanotkun-10] |
Vandvirkni og nákvæmni | haft rétt eftir hvort sem um er að ræða tal eða texta [ANG-Nýting miðla og upplýsinga-Vandvirkni og nákvæmni-4] | skilið að framsetning og gæði upplýsinga er háð mörgum þáttum og þekkt mikilvægi þess að vanda val og notkun á heimildum [ANG-Nýting miðla og upplýsinga-Vandvirkni og nákvæmni-7] | valið traustar heimildir og sett upplýsingar fram með ólíkum hætti eftir því sem við á hverju sinni á siðferðilega ábyrgan hátt [ANG-Nýting miðla og upplýsinga-Vandvirkni og nákvæmni-10] |
Ábyrgð og mat á eigin námi[breyta | breyta frumkóða]
Yfirheiti | Við lok 4. bekkjar getur nemandi: | Við lok 7. bekkjar getur nemandi: | Við lok 10. bekkjar getur nemandi: |
---|---|---|---|
Sjálfsþekking | rætt um eigin styrkleika og þekkt hugarfar vaxtar. | sett sér markmið á grunni persónulegra styrkleika og tileinkað sér hugarfar vaxtar. | sett sér fjölbreytt og skapandi markmið á grunni persónulegra styrkleika og tileinkað sér hugarfar vaxtar. |
Markmiðasetning | sett sér viðráðanleg markmið og glaðst þegar þeim er náð. | sett sér persónuleg og námsleg markmið, ígrundað árangur og mistök. | sett sér raunhæf og metnaðarfull markmið um frammistöðu og framvindu eigin náms, unnið eftir þeim og lagt mat á hvernig til hefur tekist. |
Ígrundun | velt fyrir sér eigin námi og hvað hann langar að læra næst. | metið nám sitt skipulega og sett sér markmið um viðfangsefni eða hæfni. | skipulagt, ígrundað og borið ábyrgð á eigin námi. |
Árangur og sjálfsþekking | skilið viðmið um árangur og til hvers er ætlast. | skilið viðmið um árangur og unnið að þeim. | skilið og rökstutt viðmið um árangur og unnið að þeim. |
Náms- og starfsfræðsla | áttað sig á ólíkum og fjölbreyttum störfum sem unnin eru í samfélaginu. | tengt eigin áhuga fjölbreyttum námsleiðum og störfum. | nýtt upplýsingar um námsleiðir og fjölbreytt störf við skipulagningu eigin náms- og starfsferils. |