Haustið 2024 voru samþykktar tillögur að endurskoðun greinarsviða aðalnámsskrár grunnskóla frá 2013. Þar er m.a. ítarlegar farið í þá þætti sem snerta skuli á í náttúruvísindum (og eitthvað var rætt um að kaflinn um náttúrugreinar yrði endurnefndur til að nota hugtakið náttúruvísindi).
Hæfniviðmiðin er að finna í Náttúrugreinakafla ANG (kafla 22). Aðrir gagnlegir kaflar eru:
Markmiðið með efninu hér að neðan er að taka saman dæmi um hvers kyns verkefni kennarar eru að nýta til að vinna að hæfniviðmiðunum. Slíkt styður við heildstæðari skoðun á efni og þeim kröfum sem kennarar gera til nemenda. Eins er vert að hafa í huga ágæta brýningu úr tillögunni:
„Þegar sjónum er beint sérstaklega að einu hæfniviðmiði þarf að hafa í huga að nám er samfellt ferli og skapandi athöfn, fremur en söfnun afmarkaðrar þekkingar og þjálfun í tiltekinni leikni.“
notað einföld hugtök í náttúruvísindum við athuganir og í umræðu, [Hugtök (4)]
beitt algengustu hugtökum og heitum í náttúruvísindum við athuganir, í umræðu og textaskrifum, [Hugtök (7)]
beitt hugtökum og heitum í náttúruvísindum við fjölbreyttar aðstæður, [Hugtök (10)]
Læsi á gögn og náttúru vísindatexta
lesið einfaldan náttúruvísindatexta og endursagt helstu atriði með eigin orðum, skoðað einfaldar myndir og sagt frá efninu [Læsi á gögn og náttúru vísindatexta (4)]
náttúruvísindatexta sér til gagns og endursagt með eigin orðum, túlkað myndrit og skoðað myndefni um náttúrufræði, umorðað og nýtt til útskýringa [Læsi á gögn og náttúru vísindatexta (7)]
lesið þyngri náttúruvísindatexta sér til gagns og ánægju og endursagt og rætt helstu atriði, lesið út úr myndritum og myndefni um náttúrufræði, umorðað, túlkað og sett í margvíslegt samhengi [Læsi á gögn og náttúru vísindatexta (10)]
Athuganir
framkvæmt einfaldar athuganir og skráð mælingar á hversdagslegum hlutum samkvæmt leiðbeiningum [Athuganir (4)]
framkvæmt, skráð og safnað upplýsingum út frá einföldum athugunum og mælingum úti og inni samkvæmt fyrirmælum [Athuganir (7)]
framkvæmt, skráð og safnað upplýsingum út frá athugunum og mælingum úti og inni, samkvæmt fyrirmælum og á eigin vegum [Athuganir (10)]
Miðlun
kynnt niðurstöður einfaldra athugana og tekið þátt í umræðu um efnið [Miðlun (4)]
kynnt niðurstöður rannsókna, útskýrt hvaða vinnubrögðum var beitt og tekið þátt í umræðum um efnið [Miðlun (7)]
kynnt niðurstöður rannsókna, tekið þátt í gagnrýnum umræðum og metið gildi þess að vísindalegum upplýsingum sé miðlað á skýran hátt [Miðlun (10)]
Vísindaleg vinnubrögð
sett fram spurningar, leitað svara um náttúruleg fyrirbæri og útskýrt valið viðfangsefni [Vísindaleg vinnubrögð (4)]
þekkt ferli vísindalegra vinnubragða og unnið eftir þeim í stýrðum verkefnum [Vísindaleg vinnubrögð (7)]
sett fram vísindalega tilgátu og beitt margvíslegum vísinda-legum vinnubrögðum til að kanna hana í þekkingarleit og úrvinnslu verkefna [Vísindaleg vinnubrögð (10)]
Eðli vísindalegrar þekkingar
rætt hvort tiltekið atriði í samræðu eða texta sé staðreynd eða skoðun í tengslum við náttúruvísindi [Eðli vísindalegrar þekkingar (4)]
skýrt muninn á staðreynd og skoðun, tilgátu og kenningu í tengslum við náttúruvísindi og sagt frá dæmum um vísindalega þekkingarsköpun [Eðli vísindalegrar þekkingar (10)]
rætt valin dæmi um samspil tækni, þekkingar og framfara og hvernig hugmyndir manna um heiminn hafa breyst með aukinni þekkingu [Tengsl vísinda, tækni og menningar (7)]
gert grein fyrir verndun og nýtingu náttúruauðlinda í tengslum við sjálfbæra þróun, sjálfbæra nýtingu og rýnt í eigin neysluvenjur [Náttúruauðlindir og sjálfbær nýting (10)]
gert grein fyrir fjölbreytileika plantna, starfsemi mismunandi plöntuhópa og mikilvægi þeirra fyrir kolefnisbindingu [Bygging og starfsemi plantna (10)]
gert grein fyrir fjölbreytileika sveppa, starfsemi mismunandi tegunda og hvernig þeir taka þátt í samskiptum milli plantna [Bygging og starfsemi sveppa (10)]