Hjálp:Myndbönd

Úr Kennarakvikan

Það er auðvelt að bæta við myndbandi með því að vísa í efni á einhverri myndbandaveitunni (t.d. Youtube eða Vimeo) en þó þarf að breyta frumkóða síðunnar. Það er einnig hægt að hlaða stuttum myndböndum inn á Kennarakvikuna en hámarksstærð þeirra er sem stendur 2 MB.

Einfalt er að hlaða myndum upp á Youtube en þau spila stundum auglýsingar með myndböndum sem kann að henta illa í kennslu. Vimeo er án auglýsinga og frír aðgangur inniheldur geymslumagn upp að 1 GB. Ef um er að ræða umtalsvert magn af myndböndum er möguleiki á því að fá þau hýst hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu eða Nýmennt á Menntavísindasviði HÍ.

Myndband á myndbandaveitu[breyta frumkóða]

Velja þarf að breyta frumkóða síðunnar (annað hvort í "Aðgerðir" vallistanum efst á síðunni eða í hlekk við fyrirsögn kaflans þar sem bæta á myndbandinu við. Þar sem myndbandið á að birtast er eftirfarandi ívaf notað:

{{#ev:vimeo|141549507}}
Ken Robinson brýnir okkur til að meta sköpun

Oft viljum við tilgreina ákveðna breidd, staðsetningu og jafnvel hafa einhverja lýsingu getum við sett in stillingar svo:

{{#ev:youtube|iG9CE55wbtY|300px|right|Ken Robinson brýnir okkur til að meta sköpun}}

Frekari upplýsingar og leiðbeiningar má finna á síðu viðbótarinnar sem virkjar þetta.

Myndband á Kennarakvikunni[breyta frumkóða]

Myndbandið er þá hlaðið upp og vísað í það eins og mynd, annað hvort með því að velja "Setja inn" í tólastikunni og svo "Myndir og margmiðlunargögn", eða með því að bæta eftirfarandi ívafi í frumkóðanum:

[[File:Example.mp4|start=2|end=6|poster=File:LocalFile.png]]