Kennarakvika:Samþykktir
Verum djörf[breyta frumkóða]
Verum djörf í því sem við gerum í almenna nafnrými (venjulegum síðum) Kennarakvikunnar. Við græðum mun meir á því að prófa eitthvað nýtt en að vera á tánum vegna þess að við viljum ekki móðga einhvern.
Látum notandasíður annarra vera[breyta frumkóða]
Notandasíður eru staður fyrir notendur til að vinna, geyma og miðla efni sem þau vilja hafa meiri stjórn á. Leitumst við að láta síður þeirra efnislega vera. Þó er í lagi að laga innsláttarvillur eða ambögur við uppsetningu efnis.
Ræðum umdeildar breytingar[breyta frumkóða]
Ef okkur þykir líklegt að einhverjum þyki breytingar okkar óráðnar er ágætt að skýra mál okkar á spjallsíðu síðunnar sem við erum að breyta. Verum djörf, en skýrum mál okkar fyrir öðrum sem einnig vilja nota efnið og móta.
Ef við erum ósátt við breytingu einhvers sem fylgdi verum-djörf-reglunni án þess að gera grein fyrir breytingunni á spjallsíðunni geturðu tekið breytinguna aftur (sjá hlekk í breytingaskránni) og skýrt mál þitt á spjallsíðunni.