Verkefni fyrir hæfniviðmið samfélagsgreina
Úr Kennarakvikan
Hér má finna yfirlit yfir hæfniviðmið kafla Aðalnámsskrár grunnskóla fyrir erlend tungumál ásamt hlekkjum á undirsíður þar sem koma má fyrir ítarfefni fyrir hvert hæfniviðmið. Markmiðið er ekki að hægt sé að fara í hæfniviðmið og „tikka í boxin“ heldur frekar að gefa dæmi um hvers kyns verkefni megi nýta til að ná þess lags hæfniviðmiði. Slíkt styður við heildstæðari skoðun á efni og þeim kröfum sem kennarar gera til nemenda. Eins er vert að benda á ágæta áminningu úr tillögunni:
„Þegar sjónum er beint sérstaklega að einu hæfniviðmiði þarf að hafa í huga að nám er samfellt ferli og skapandi athöfn, fremur en söfnun afmarkaðrar þekkingar og þjálfun í tiltekinni leikni.“
Vinnulag samfélagsgreina
Yfirheiti | Við lok 4. bekkjar getur nemandi | Við lok 7. bekkjar getur nemandi | Við lok 10. bekkjar getur nemandi |
---|---|---|---|
Hugtök | rætt um samfélagið og notað valin hugtök í því samhengi [ANG-Hugtök-1-4] | útskýrt og notað mikilvæg hugtök samfélags-greina [ANG-Hugtök-1-7] | útskýrt, rökrætt og beitt mikilvægum hugtökum samfélagsgreina [ANG-Hugtök-1-10] |
Upplýsingalæsi | aflað sér upplýsinga um samfélagið úr völdum textum, hljóð- og myndefni og sagt frá efninu [ANG-Upplýsingalæsi-1-4] | aflað sér upplýsinga um samfélagsleg málefni úr textum, hljóð- og myndefni, umorðað og nýtt til umfjöllunar [ANG-Upplýsingalæsi-1-7] | aflað sér upplýsinga um samfélagsleg og alþjóðleg málefni úr heimildum á fjölbreyttu formi, túlkað og hagnýtt [ANG-Upplýsingalæsi-1-10] |
Skoðanamyndun | greint upplýsingar og ólíkar skoðanir úr völdum heimildum og myndað sér eigin skoðanir [ANG-Skoðanamyndun-1-4] | metið og brugðist við ólíkum skoðunum og upplýsingum úr heimildum á ólíku formi og myndað sér eigin skoðanir [ANG-Skoðanamyndun-1-7] | vegið og metið upplýsingar og skoðanir úr heimildum á margvíslegu formi, myndað sér eigin skoðanir og tekið upplýsta afstöðu til málefna [ANG-Skoðanamyndun-1-10] |
Gagnrýnar umræður | spurt spurninga og tekið þátt í umræðu um valin samfélagsleg og siðferðileg málefni [ANG-Gagnrýnarumræður-1-4] | spurt opinna spurninga og tekið þátt í umræðu um ólík málefni af samfélagslegum og siðferðilegum toga [ANG-Gagnrýnarumræður-1-7] | spurt fjölbreyttra spurninga og tekið þátt í gagnrýninni umræðu um samfélagsleg og siðferðileg málefni frá mismunandi sjónarhornum [ANG-Gagnrýnarumræður-1-10] |
Setja sig í spor annarra | sett sig í spor jafnaldra og fjölskyldumeðlima [ANG-Setjasígísporannarra-1-4] | sett sig í spor fólks með ólíkan bakgrunn á völdum stöðum og tímum [ANG-Setjasígísporannarra-1-7] | sett sig í spor fólks með ólíkan bakgrunn og viðhorf á ýmsum stöðum og tímum [ANG-Setjasígísporannarra-1-10] |
Miðlun | miðlað þekkingu sinni og skoðunum tengdum samfélaginu [ANG-Miðlun-1-4] | miðlað þekkingu, leikni og skoðunum á samfélagslegum málefnum á fjölbreyttan hátt [ANG-Miðlun-1-7] | miðlað þekkingu, leikni og skoðunum á samfélagslegum og hnattrænum málefnum á fjölbreyttan og skapandi hátt [ANG-Miðlun-1-10] |
Lýðræðislegt samstarf | tekið þátt í samstarfi og sameiginlegum ákvörðunum í jafningjahópi og innan fjölskyldunnar [ANG-Lýðræðislegtsamstarf-1-4] | tekið þátt í lýðræðislegu samstarfi og samræðu [ANG-Lýðræðislegtsamstarf-1-7] | tekið ábyrgan þátt í lýðræðislegu samstarfi og samræðu [ANG-Lýðræðislegtsamstarf-1-10] |
Sjálfsmynd[breyta | breyta frumkóða]
Yfirheiti | Við lok 4. bekkjar getur nemandi | Við lok 7. bekkjar getur nemandi | Við lok 10. bekkjar getur nemandi |
---|---|---|---|
Félagsmótun | sagt frá sjálfum sér með hliðsjón af uppruna, búsetu, fjölskyldu, siðum og venjum [ANG-Félagsmótun-1-4] | lýst sjálfum sér og tekið dæmi um þætti sem hafa áhrif á eigin sjálfsmynd, svo sem úr nærsamfélagi, umhverfi og menningu [ANG-Félagsmótun-1-7] | útskýrt hvernig sjálfsmynd mótast af menningu, félagslegu umhverfi, aðstæðum og alþjóðlegum áhrifum [ANG-Félagsmótun-1-10] |
Þarfir | áttað sig á mikilvægi næringar, hvíldar, svefns, hreyfingar og hreinlætis [ANG-Þarfir-1-4] | rætt um heilbrigða lífshætti og samskipti og ræktað mikilvægar þarfir [ANG-Þarfir-1-7] | gert sér grein fyrir þörfum sínum og fjallað um ábyrgð sína á eigin lífi, lífsháttum og heilbrigði [ANG-Þarfir-1-10] |
Tilfinningar | áttað sig á og lýst ýmsum tilfinningum, svo sem gleði, tilhlökkun, sorg og reiði [ANG-Tilfinningar-1-4] | lýst margvíslegum tilfinningum og áttað sig á áhrifum þeirra á hugsun og hegðun [ANG-Tilfinningar-1-7] | þekkt margbreytileika eigin tilfinninga og bent á víxlverkun tilfinninga, hugsunar, hegðunar og samskipta [ANG-Tilfinningar-1-10] |
Hugarfar | áttað sig á mikilvægi jákvæðra viðhorfa fyrir sjálfan sig [ANG-Hugarfar-1-4] | lýst með dæmum mikilvægi jákvæðra lífsviðhorfa, hugarfars og seiglu fyrir eigin þroska [ANG-Hugarfar-1-7] | rökstutt mikilvægi eigin jákvæðra lífsviðhorfa, hugarfar vaxtar og seiglu fyrir persónulega farsæld og þroska [ANG-Hugarfar-1-10] |
Sjálfsþekking | gert sér og öðrum grein fyrir hvar eigin styrkur og áhugi liggur [ANG-Sjálfsþekking-1-4] | gert grein fyrir eigin áhugasviðum, styrk og áskorunum og hvernig hægt er að vinna með þá þætti á uppbyggilegan hátt [ANG-Sjálfsþekking-1-7] | gert grein fyrir eigin áhugasviðum, styrk og áskorunum og myndað sér raunhæfa framtíðaráætlun á grunni þeirrar sjálfsþekkingar [ANG-Sjálfsþekking-1-10] |
Virðing | sýnt sjálfum sér og öðrum virðingu og sagt frá því hvernig það er hægt [ANG-Virðing-1-4] | sýnt virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum, sett sér mörk í samskiptum og lýst því hvernig það er hægt [ANG-Virðing-1-7] | borið virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum, sett mörk í samskiptum og virt mörk annarra og útskýrt mikilvægi virðingar [ANG-Virðing-1-10] |
Staðalmyndir | fjallað um ólíka einstaklinga og hópa í skóla- og nærsamfélaginu [ANG-Staðalmyndir-1-4] | lýst staðalmyndum og fordómum í samfélaginu og áhrifum þeirra og áttað sig á skaðsemi þeirra [ANG-Staðalmyndir-1-7] | fjallað með gagnrýnum hætti um og greint staðalmyndir og fordóma, uppruna þeirra og afleiðingar [ANG-Staðalmyndir-1-10] |
Kynjafræði | bent á dæmi um fjölbreytni kynhlutverka og áhrif þeirra á sjálfsmyndina [ANG-Kynjafræði-1-4] | beitt hugtökunum kyn, kynhneigð og kynhlutverk og áttað sig á fjölbreytni hinseginleikans [ANG-Kynjafræði-1-7] | beitt hugtökum tengdum kynjafræði og útskýrt hvaða hlutverki þau gegna í kyngervi einstaklinga og sjálfsmynd [ANG-Kynjafræði-1-10] |
Fjármál einstaklings | áttað sig á kostnaði við eigin neyslu og muninum á þörfum og löngunum [ANG-Fjármáleinstaklings-1-4] | gert grein fyrir útgjöldum vegna þarfa, langana og hegðunar einstaklinga og mikilvægi fyrirhyggju í fjármálum [ANG-Fjármáleinstaklings-1-7] | gert grein fyrir hvernig þarfir, langanir og hegðun móta fjárhagslega stöðu einstaklinga og tekið ábyrga afstöðu í eigin fjármálum og neyslu [ANG-Fjármáleinstaklings-1-10] |
Siðferði og trú[breyta | breyta frumkóða]
Yfirheiti | Við lok 4. bekkjar getur nemandi | Við lok 7. bekkjar getur nemandi | Við lok 10. bekkjar getur nemandi |
---|---|---|---|
Virðing fyrir fjölbreytileika | áttað sig á að fólk býr við ólík fjölskylduform, hefur ólíkan bakgrunn og borið virðingu fyrir mismunandi lífsviðhorfum og siðum [ANG-Virðingfyrirfjölbreytileika-1-4] | dregið fram ólíkan bakgrunn fólks og virt mismunandi trú, lífsgildi, skoðanir og siði [ANG-Virðingfyrirfjölbreytileika-1-7] | borið saman ólíkan bakgrunn og fjölbreytni fólks, fjallað um og virt mismunandi trú, lífsgildi, skoðanir og siði [ANG-Virðingfyrirfjölbreytileika-1-10] |
Trú og lífsviðhorf | velt fyrir sér nærtækum spurningum sem tengjast trú, lífsviðhorfi og breytni [ANG-Trúoglífsviðhorf-1-4] | rætt viðfangsefni sem snerta trú, lífsviðhorf og siðferði og sett í samhengi við atburði daglegs lífs [ANG-Trúoglífsviðhorf-1-7] | fengist við og greint viðfangsefni sem snerta trú, lífsviðhorf og siðferði og tengjast spurningum um merkingu og tilgang lífsins [ANG-Trúoglífsviðhorf-1-10] |
Trúarbrögð | sagt deili á nokkrum frásögnum, helstu hátíðum og siðum kristni og annarra trúarbragða, einkum í nærsamfélaginu [ANG-Trúarbrögð-1-4] | gert grein fyrir völdum frásögnum, hefðum, hátíðum, siðum og táknum í kristni og nokkrum helstu trúarbrögðum heims [ANG-Trúarbrögð-1-7] | túlkað frásagnir, hefðir, kenningar, hátíðir, siði og tákn kristni og annarra helstu trúarbragða heims [ANG-Trúarbrögð-1-10] |
Áhrif trúarbragða | áttað sig á að trúar- og lífsviðhorf fólks birtast í mismunandi viðhorfum, siðum og venjum [ANG-Áhriftrúarbragða-1-4] | borið saman valin trúarbrögð og lífsviðhorf og áhrif þeirra á líf fólks [ANG-Áhriftrúarbragða-1-7] | útskýrt gildi trúarbragða og lífsviðhorfa, borið saman og greint áhrif þeirra á líf einstaklinga, hópa, samfélaga og sögu [ANG-Áhriftrúarbragða-1-10] |
Borgaravitund[breyta | breyta frumkóða]
Yfirheiti | Við lok 4. bekkjar getur nemandi | Við lok 7. bekkjar getur nemandi | Við lok 10. bekkjar getur nemandi |
---|---|---|---|
Reglur | sýnt þekkingu á reglum í samskiptum og útskýrt tilgang þeirra [ANG-Borgaravitund-Reglur-4] | rætt reglur í samskiptum fólks og tilgang þeirra og tekið þátt í að setja sameiginlegar leikreglur með öðrum [ANG-Borgaravitund-Reglur-7] | útskýrt hlutverk reglna í samskiptum fólks í fjölskyldu, vinahópi og þjóðfélaginu í heild og tekið þátt í að móta slíkar reglur [ANG-Borgaravitund-Reglur-10] |
Mannréttindi | rætt um réttindi sín og skyldur og þekkt til Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna [ANG-Borgaravitund-Mannréttindi-4] | rætt stöðu sína sem þátttakandi í samfélaginu, réttindi og skyldur og mikilvægi mannréttinda og jafnréttis í samfélaginu og á heimsvísu og þekkt vel til Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna [ANG-Borgaravitund-Mannréttindi-7] | þekkt almenn ákvæði um mannréttindi, uppruna þeirra og áhrif, hefur Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi og getur rökrætt gildi mannréttinda og jafnréttis á öllum sviðum samfélagsins og á heimsvísu [ANG-Borgaravitund-Mannréttindi-10] |
Samfélagsgerð | áttað sig á að hver einstaklingur er hluti af stærra samfélagi [ANG-Borgaravitund-Samfélagsgerð-4] | fjallað um ólíkar samfélagsgerðir og hvernig þær tengjast lífi einstaklinga [ANG-Borgaravitund-Samfélagsgerð-7] | greint hvernig hugmyndafræði, þ.m.t. trúarbrögð og stjórnmál, móta samfélagsgerð og tengjast lífi einstaklinga [ANG-Borgaravitund-Samfélagsgerð-10] |
Lýðræði | bent á dæmi um lýðræðislega þætti í skóla- og nær-samfélaginu [ANG-Borgaravitund-Lýðræði-4] | lýst nokkrum einkennum lýðræðislegra samfélagshátta hér á landi [ANG-Borgaravitund-Lýðræði-7] | útskýrt uppruna, einkenni og framkvæmd lýðræðis og skoðað hlutverk borgara á gagnrýninn hátt í hnattrænu samhengi [ANG-Borgaravitund-Lýðræði-10] |
Stjórnkerfi | sagt frá nokkrum stofnunum samfélagsins [ANG-Borgaravitund-Stjórnkerfi-4] | gert grein fyrir hlutverki mikilvægra stofnana samfélagsins [ANG-Borgaravitund-Stjórnkerfi-7] | útskýrt þróun og uppbyggingu stjórnkerfisins og formleg tengsl Íslands og þátttöku í alþjóðasamfélaginu [ANG-Borgaravitund-Stjórnkerfi-10] |
Velferðarsamfélag | áttað sig á mikilvægi samhjálpar í samfélaginu [ANG-Borgaravitund-Velferðarsamfélag-4] | gert grein fyrir hugmyndum um samhjálp og velferð og framkvæmd þeirra í samfélaginu [ANG-Borgaravitund-Velferðarsamfélag-7] | útskýrt og rökrætt hugmyndir um velferðarsamfélag [ANG-Borgaravitund-Velferðarsamfélag-10] |
Samneysla | þekkt dæmi um grunnþjónustu í samfélaginu [ANG-Borgaravitund-Samneysla-4] | áttað sig á hvernig og hvers vegna kostnaður við ýmsa grunnþjónustu er greiddur af sameiginlegum sjóðum samfélagsins [ANG-Borgaravitund-Samneysla-7] | skilið að skatta- og fjármálaumhverfi og lífskjör í samfélagi eru breytileg og þekkt þætti sem hafa áhrif á þau í alþjóðlegu samhengi [ANG-Borgaravitund-Samneysla-10] |
Slysavarnir | varast hættur á heimili sínu, í umferðinni og nærumhverfi [ANG-Borgaravitund-Slysavarnir-4] | séð gildi slysavarna og þekkt viðbrögð við slysum í heimahúsum, nærsamfélagi og náttúrunni [ANG-Borgaravitund-Slysavarnir-7] | bent á, fyrirbyggt og útskýrt rétt viðbrögð við ýmsum hættum í manngerðu umhverfi og náttúrunni [ANG-Borgaravitund-Slysavarnir-10] |
Umferðarreglur | sagt frá umferðarreglum fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur og farið eftir þeim [ANG-Borgaravitund-Umferðarreglur-4] | gert grein fyrir umferðarreglum og helstu umferðarmerkjum og nýtt í daglegu lífi [ANG-Borgaravitund-Umferðarreglur-7] | áttað sig á nauðsyn þess að sýna ábyrga hegðun í umferðinni vegna öryggis síns og annarra [ANG-Borgaravitund-Umferðarreglur-10] |
Geta til aðgerða | rætt um eigin athafnir og afleiðingar þeirra og tekið þátt í samfélagsmálum [ANG-Borgaravitund-Getatilaðgerða-4] | sett sig inn í málefni samfélagsins, áttað sig á möguleikum til áhrifa og sýnt það í verki með ábyrgum hætti [ANG-Borgaravitund-Getatilaðgerða-7] | ígrundað eigin getu til aðgerða og beitt sér á ábyrgan hátt fyrir málefnum sem stuðla að betra samfélagi [ANG-Borgaravitund-Getatilaðgerða-10] |
Saga[breyta | breyta frumkóða]
Yfirheiti | Við lok 4. bekkjar getur nemandi | Við lok 7. bekkjar getur nemandi | Við lok 10. bekkjar getur nemandi |
---|---|---|---|
Sögulegar heimildir | áttað sig á að ólíkar heimildir segja ólíka sögu [ANG-Saga-Sögulegar heimildir-4] | metið heimildir og ólík sjónarhorn í umfjöllun um sögu og samtíð [ANG-Saga-Sögulegar heimildir-7] | gert sér grein fyrir hlutverki heimilda, sjónarhorna og gildismats í sögu og sameiginlegum minningum [ANG-Saga-Sögulegar heimildir-10] |
Fjölskyldan | áttað sig á mikilvægi fjölskyldunnar og fjölbreytni fjölskyldugerða í samfélagi manna [ANG-Saga-Fjölskyldan-4] | gert sér grein fyrir fjölbreytileika fjölskyldna og margvíslegum hlutverkum innan þeirra á ólíkum tímum [ANG-Saga-Fjölskyldan-7] | útskýrt og borið saman hlutverk, fjölbreytileika og þróun fjölskyldunnar á mismunandi tímum og menningarsvæðum [ANG-Saga-Fjölskyldan-10] |
Heimabyggð | uppgötvað og nefnt dæmi um einkenni og sögu heimabyggðar [ANG-Saga-Heimabyggð-4] | greint samhengi umhverfis, sögu, menningar og mannlífs í heimabyggð og tengsl við önnur landsvæði [ANG-Saga-Heimabyggð-7] | sýnt fram á skilning á íslensku samfélagi og útskýrt samhengi umhverfis, sögu, menningar, trúar, atvinnulífs og byggðaþróunar [ANG-Saga-Heimabyggð-10] |
Íslandssaga | nefnt dæmi um sögu og einkenni Íslands [ANG-Saga-Íslandssaga-4] | fjallað um einkenni og þróun íslensks samfélags [ANG-Saga-Íslandssaga-7] | útskýrt einkenni og stöðu Íslands í heiminum í ljósi legu landsins, sögu og menningu þjóðar [ANG-Saga-Íslandssaga-10] |
Saga | sagt frá völdum persónum, atburðum og tímabilum í sögunni [ANG-Saga-Saga-4] | fjallað um og greint persónur, atburði, tímabil, tildrög og gang sögunnar [ANG-Saga-Saga-7] | sett í samhengi, sýnt fram á þekkingu og gagnrýna sýn á atburðum, tímabilum, tildrögum og gangi mannkynssögunnar [ANG-Saga-Saga-10] |
Söguleg þróun | komið auga á þætti sem hafa haft áhrif á mannlífið í tímans rás, svo sem umhverfi og skipulag samfélaga [ANG-Saga-Söguleg þróun-4] | áttað sig á að sagan hefur mótast af ýmsum þáttum, svo sem umhverfi, atferli, lífsviðhorfum, samfélagsskipulagi og atvinnuháttum [ANG-Saga-Söguleg þróun-7] | útskýrt og metið hvernig sagan hefur mótast af ýmsum þáttum, svo sem umhverfi, hugmyndafræði, þ.m.t. trúarbrögðum viljaverkum og tilviljunum [ANG-Saga-Söguleg þróun-10] |
Áhrif sögu á samtímann | fjallað um atburði í sögunni í tengslum við samtímann [ANG-Saga-Áhrif sögu á samtímann-4] | útskýrt með dæmum hvernig sögulegir atburðir hafa áhrif á samfélög og líf fólks í samtímanum [ANG-Saga-Áhrif sögu á samtímann-7] | sýnt fram á skilning á sögulegu og hugmyndafræðilegu samhengi atburða sem eiga sér stað í samtímanum á heimsvísu [ANG-Saga-Áhrif sögu á samtímann-10] |
Jörðin okkar[breyta | breyta frumkóða]
Yfirheiti | Við lok 4. bekkjar getur nemandi | Við lok 7. bekkjar getur nemandi | Við lok 10. bekkjar getur nemandi |
---|---|---|---|
Kortalæsi | áttað sig á hlutverki og notagildi landakorta og ratað með hjálp einfaldra korta [ANG-Jörðin okkar-Kortalæsi-4] | notað kort og gröf til að afla sér upplýsinga og vinna úr þeim og sett upp einföld kort [ANG-Jörðin okkar-Kortalæsi-7] | greint, þekkt og fjallað um upplýsingar á kortum, gröfum og annars konar myndum og sett upp kort til að miðla fjölbreyttum upplýsingum [ANG-Jörðin okkar-Kortalæsi-10] |
Samfélög | nefnt dæmi um ólíkar aðstæður, menningu og líf fólks [ANG-Jörðin okkar-Samfélög-4] | varpað ljósi á ólíkar aðstæður, menningu og líf fólks á jörðinni [ANG-Jörðin okkar-Samfélög-7] | greint og borið saman ólíka menningarheima og samfélög, trúarbrögð, hefðir og siði, aðstæður og líf fólks [ANG-Jörðin okkar-Samfélög-10] |
Auðlindir | nefnt dæmi um hvernig maðurinn nýtir náttúruna til að lifa af [ANG-Jörðin okkar-Auðlindir-4] | skýrt hvernig notkun mannsins á auðlindum getur haft margvísleg áhrif á lífsgæði og lífbreytileika [ANG-Jörðin okkar-Auðlindir-7] | varpað ljósi á hvers vegna sjálfbær nýting auðlinda er mikilvæg fyrir samfélög og í hnattrænu samhengi [ANG-Jörðin okkar-Auðlindir-10] |
Neyslusamfélagið | lýst því hvernig matvæli og föt verða til og hvar þau enda [ANG-Jörðin okkar-Neyslusamfélagið-4] | lýst í grófum dráttum ferli daglegra neysluvara, uppruna þeirra, flutningi, sölu, nýtingu, förgun, endurvinnslu og kolefnisspori [ANG-Jörðin okkar-Neyslusamfélagið-7] | varpað ljósi á neyslusamfélag nútímans, ferli hráefna frá öflun til eyðingar og hugmyndum um mikilvægi hringrásarhagkerfis [ANG-Jörðin okkar-Neyslusamfélagið-10] |
Áhrif mannsins | bent á dæmi um áhrif tækni og framkvæmda á mannlíf og umhverfi [ANG-Jörðin okkar-Áhrif mannsins-4] | skýrt með dæmum áhrif tækni og mannlegra athafna á samfélag, loftslag og umhverfi [ANG-Jörðin okkar-Áhrif mannsins-7] | útskýrt áhrif og afleiðingar mannlegra athafna og tækni á loftslag, náttúru og lífsskilyrði alls lífs á jörðinni [ANG-Jörðin okkar-Áhrif mannsins-10] |
Sjálfbær þróun | nefnt dæmi um hvernig athafnir okkar hafa afleiðingar til framtíðar [ANG-Jörðin okkar-Sjálfbær þróun-4] | fjallað um hvað sjálfbær þróun felur í sér [ANG-Jörðin okkar-Sjálfbær þróun-7] | sýnt fram á skilning á sjálfbærri þróun og þýðingu hennar fyrir umhverfi, samfélag og efnahagslíf og lífsskilyrði alls lífs á jörðinni [ANG-Jörðin okkar-Sjálfbær þróun-10] |
Ábyrgð á náttúruvernd | gert sér grein fyrir mikilvægi sínu í umgengni um og vernd náttúrunnar [ANG-Jörðin okkar-Ábyrgð á náttúruvernd-4] | skýrt með dæmum mikilvægi náttúruverndar og þess að allir leggi sitt af mörkum [ANG-Jörðin okkar-Ábyrgð á náttúruvernd-7] | varpað ljósi á ábyrgð einstaklinga, fyrirtækja, stjórnvalda og alþjóðasamfélags á verndun náttúru og lífsgæða á jörðinni [ANG-Jörðin okkar-Ábyrgð á náttúruvernd-10] |