Kennarakvikan
Kennarakvikan
Leit
Skrá inn
↓
Persónuleg verkfæri
Ekki skráð/ur inn
Spjall
Framlög
Stofna aðgang
Skrá inn
Leiðsagnarval
Flakk
Nýlegar breytingar
Handahófsvalin síða
Allar síður
Allar skrár
Hlaða inn skrá
Notendur
Nýir notendur
Notandahandbók
Samþykktir
Breyti
Hæfniviðmið náttúrugreina/Hugtök (4)
(hluta)
Úr Kennarakvikan
Viðvörun:
Þú ert ekki innskráð(ur). Vistfang þitt verður sýnt opinberlega ef þú gerir einhverjar breytingar. Ef þú
skráir þig inn
eða
stofnar aðgang
munu breytingarnar þínar vera tengdar við notandanafn þitt, ásamt öðrum kostum.
Amasendingavörn.
Ekki
fylla þetta út!
== Hugtök úr [https://vefir.mms.is/flettibaekur/namsefni/hallo_heimur_1/126/ Halló heimur 1] == ;afkvæmi: barn foreldra, sem menn eða dýr ala af sér. ;afþakka: þiggja ekki það sem er í boði. ;alæta: dýr sem étur bæði jurtir og kjöt. ;annatími: tími þegar mikið er að gera. ;árstíð: ákveðinn hluti ársins, vor, sumar, haust eða vetur. ;ábyrgð: að hafa umsjón með einhverju. ;Barnasáttmálinn: reglur um framkomu við börn. ;beinagrind: öll bein líkamans sem ein heild. ;bílbelti: öryggisbelti sem notuð eru í bíl. ;blindrahundur: hundur sem aðstoðar blint og sjóndapurt fólk. ;brum: fyrsti vöxtur blaða á trjágreinum. ;búkur: magi, brjóst og bak. ;búrdýr: dýr sem búa í búri t.d. páfagaukar og fiskar. ;búsvæði: svæði sem lífvera velur að búa í og hentar best. ;byggingarefni: efni sem hægt er að nota til að búa eitthvað til úr. ;bænahús: hús þar sem fólk iðkar trú. ;dýralæknir: læknir sem læknar dýr en ekki fólk. ;dæla: hjartað ýtir blóði frá sér og pumpar því þannig út í blóðrásina. ;einkabíll: bíll sem er í eigu einstaklings. ;einkastaður: staður sem óviðeigandi er að stara á og aðrir mega ekki koma við. ;endurskinsmerki: hlutur sem endurvarpar ljósi. ;endurspeglast: það að speglast, að skoppa til baka. ;fara á fjall: kindur og lömb fara á fjall að vori til sumardvalar. ;farþegi: allir í ökutækinu nema bílstjórinn. ;ferfætt: með fjóra fætur. ;fjós: bústaður kúa. ;fjölbreytt: af ýmsu tagi, margs konar. ;fjölnota: hlutur sem hægt er að nota aftur og aftur. ;fjölskyldumeðlimur: einstaklingur sem tilheyrir fjölskyldunni. ;forréttindi: réttindi sem einhver nýtur umfram aðra. ;fóður: það sem dýrum er gefið að éta. ;framleiða: að búa eitthvað til í miklu magni. ;frjósa: þegar t.d. vatn kólnar niður fyrir frostmark og breytist í ís. ;fæða: matur. ;gangbraut: leið sem á að nota til að fara yfir götu. ;gangstétt: steinlögð gangbraut meðfram götum. ;gatnamót: staður þar sem götur mætast. ;gegnsætt: ljós sést vel í gegn. ;gerviefni: efni sem er ekki til í náttúrunni heldur framleitt úr tilbúnum efnum. ;glitauga: endurskinsflötur, t.d. á reiðhjólum. ;gæra: skinn af kind með ullinni á. ;háð: að þurfa aðstoð með athafnir daglegs lífs. ;hálfgegnsætt: ljós sést að hluta til í gegn. ;hálfsystkini: systkini sem eiga eitt sameiginlegt foreldri. ;heimilisstörf: störf sem þarf að sinna á heimilinu. ;hellir: hvelfing inni í kletti, oft með þröngu opi. ;hey: gras sem búið er að þurrka. ;hitamælir: tæki til að mæla hita. ;huldufólk: yfirnáttúrulegar mannverur (oftast ósýnilegar) taldar búa í hólum og björgum. ;húsnæði: staður til að búa á. ;hylja: fela eitthvað. ;hægðir: úrgangsefni fæðu sem líkaminn skilar, kúkur. ;hætta: eitthvað hættulegt, háski, voði eða ógn. ;iðka trú: að rækta trú sína. ;innsæi: að hafa næman skilning, t.d. á tilfinningum. ;ímyndunarafl: hæfileikinn til að láta sér detta margt í hug. ;jarðvarmi: hiti í jörðu sem berst upp á yfirborð með vatni eða gufu. ;keðjuhlíf: ver keðju á reiðhjóli svo ekkert flækist í henni. ;kryppa: bunga á hrygg manneskju eða dýrs. ;landnámsfólk: fólkið sem kom fyrst til Íslands. ;liðugt: eiga auðvelt með að beygja sig og sveigja. ;litríkt: eitthvað sem er í mörgum litum. ;líkami: líkaminn með vöðvum, beinum, líffærum og öllu tilheyrandi. ;líkamshluti: hluti líkamans, t.d. handleggur eða höfuð. ;ljósgjafi: fyrirbæri, áhald eða tæki sem gefur sýnilegt ljós. ;loftpúði: púði í bíl sem blæs út við árekstur. ;lygnt: þegar það er enginn eða mjög lítill vindur. ;manneskja: mannvera, persóna, ekki dýr. ;matarsóun: þegar mat er hent að óþörfu. ;málmur: efni með málmgljáa, oftast hart og þungt. ;mánuður: í einu ári eru 12 mánuðir. Mánuður er 30 eða 31 dagur nema febrúar sem er 28 eða 29 dagar. ;melta: vinna næringu úr matnum. ;merkjagjöf: merki sem lögregla gefur þegar hún stjórnar umferð. ;milljarður: 1.000.000.000, þúsund milljónir. ;náttúrulegt: það sem tilheyrir náttúrunni. ;nytsamlegt: gagnlegt eða þarft. ;nægjusemi: að þurfa ekki að eiga mikið. ;næmt: að hafa sterka tilfinningu fyrir einhverju. ;ofbeldi: að meiða annað fólk annaðhvort líkamlega eða andlega. ;olnbogabót: kverkin þar sem upphandleggur og framhandleggur mætast. ;orka: eldsneyti fyrir líkamann svo að hann virki. ;orkumikið: hefur mikla orku. ;ógegnsætt: þegar ljós sést ekki í gegnum hlut. ;ólíkt: ekki líkt, er mismunandi t.d. í útliti og innræti. ;ósýnilegt: þegar eitthvað sést ekki en er samt til. ;regla: fyrirmæli sem þarf að fara eftir. ;regnbogi: litríkur ljóssveigur sem sést á himni þegar sólin skín í votviðri. ;reikistjarna: hnöttur sem er á sporbaug umhverfis sólina. ;réttir: hólfað gerði þar sem fé er dregið sundur á haustin. ;réttlátt: er sanngjarnt, gerir það sem er rétt. ;ríkmannlegt: líta út fyrir að vera ríkt. ;samkomulag: þegar einstaklingar geta allir sætt sig við sömu lausnina. ;sammála: að finnast það sama. ;sáttfýsi: að geta hlustað á aðra og vilja sættast. ;sérhannað: hannað til að nota á ákveðinn hátt. ;sérkenni: það sem er alveg sérstakt við eitthvað, einkennir það. ;síbreytilegt: alltaf að breytast. ;sjávarlífvera: lífvera sem býr í sjó. ;sjúkralið: fólk sem starfar í sjúkrabíl. ;skipuleggja: að hafa allt í röð og reglu. ;skjól: vörn gegn kulda og veðri. ;skynfæri: líffæri sem gerir okkur kleift að skynja umhverfi okkar. ;smala: að safna saman eða reka búfé úr sumarhögum. ;smádýr: lítil dýr á landi, í vötnum og sjó. ;smáfugl: lítill fugl, oft notað um spörfugla (nema hrafninn). ;snerta: koma við. ;sólarhringur: 24 klukkutímar frá miðnætti til miðnættis. ;sólkerfi: sól, reikistjörnur og tunglin sem þeim fylgja. ;sólúr: teinn í miðri hringlaga skífu og varpar skugga sem færist eftir stöðu sólar. ;spegilmynd: mynd sem sést í spegli. ;speni: hluti af júgrinu þar sem mjólkin kemur út. ;stirt: eiga erfitt með hreyfingar. ;stía: afmarkað hólf þar sem dýr búa. ;stjúpsystkini: börn sem alast upp saman sem systkini en eiga ekki sömu foreldra. ;stórvaxið: að vera stórt. ;sundrandi: smá lífvera sem breytir leifum af plöntum og dýrum í jarðveg. ;svifdýr: afar smá dýr sem svífa ;tannskemmd: skemmd eða hola í tönn. ;tillitssemi: að taka tillit til annarra. ;trúarbrögð: trú á tiltekinn guð eða guði. ;umferðarmannvirki: byggingar og hlutir sem tengjast umferðinni. ;umheimur: veröldin umhverfis okkur. ;umhverfi: það sem er umhverfis og í nágrenni við okkur. ;umhyggja: að hugsa vel um aðra, fólk eða dýr. ;umlykja: að liggja utan um. ;ummerki: spor, þegar merki um umgang sjást. ;undirgöng: gangvegur t.d. undir umferðargötu. ;uppskera: matjurtir sem búið er að taka upp úr görðum. ;urða: að grafa sorp í jörðu. ;úthvíld: að hafa hvílt sig nóg. ;útlit: hvernig eitthvað lítur út. mörg saman um í sjónum. ;sýklar: örverur sem valda sjúkdómum. ;sættast: að ná sáttum vegna vandamáls.
Breytingarágrip:
Athugaðu að aðrir notendur geta breytt eða fjarlægt öll framlög til Kennarakvikan. Ef þú vilt ekki að textanum verði breytt skaltu ekki senda hann inn hér.
Þú lofar okkur einnig að þú hafir skrifað þetta sjálfur, að efnið sé í almannaeigu eða að það heyri undir frjálst leyfi. (sjá
Kennarakvika:Höfundaréttur
).
EKKI SENDA INN HÖFUNDARRÉTTARVARIÐ EFNI ÁN LEYFIS RÉTTHAFA!
Hætta við
Breytingarhjálp
(opnast í nýjum glugga)