Kennarakvikan
Kennarakvikan
Leit
Skrá inn
↓
Persónuleg verkfæri
Ekki skráð/ur inn
Spjall
Framlög
Stofna aðgang
Skrá inn
Leiðsagnarval
Flakk
Nýlegar breytingar
Handahófsvalin síða
Hlaða inn skrá
Allar skrár
Notendur
Allir notendur
Notandahandbók
Breyti
Tink@School/Listræn fuglahræða
(hluta)
Úr Kennarakvikan
Viðvörun:
Þú ert ekki innskráð(ur). Vistfang þitt verður sýnt opinberlega ef þú gerir einhverjar breytingar. Ef þú
skráir þig inn
eða
stofnar aðgang
munu breytingarnar þínar vera tengdar við notandanafn þitt, ásamt öðrum kostum.
Amasendingavörn.
Ekki
fylla þetta út!
== Framkvæmd verkefnis == === Kynning (30 mínútur) === * Kennari skapar gott andrúmsloft fyrir umræður og hvetur nemendur til að deila hugmyndum sínum um hvernig mögulegt er að hugsa vel um jörðina okkar. * Kennari fjallar um og ræðir hlutverk fuglahræðu við að vernda uppskeru. Hægt er að sýna nemendum myndir eða stutt myndbönd. Nemendur ræða um mismunandi leiðir til að hræða fugla, t.d. með hreyfingu, hljóðum, speglun eða öðrum dýrum. * Kennari kynnir verkefnið (efnivið sem hægt er að nýta, uppsetningu í kennslustofunni, sérstök vinnusvæði, tímamörk og hvetur nemendur til að vinna í pörum). * Nemendum eru sýndar barnvænar fyrirmyndir og dæmi sem vekja innblástur og sýna þeim fram á fjölbreytta möguleika þar sem ímyndunarafl hvers og eins fær notið sín. * Hægt er að nota aðra hvora lýsingu verkefninu, eftir aðstæðum og markmiðum: *# ''Búðu til fuglahræðu sem getur fælt fugla burt úr (grænmetis) garði.'' *# ''Markmiðið er að búa til fuglahræðu með því að nota endurvinnalegan efnivið. Fuglahræðan getur verið vinaleg varúðarráðstöfun, sem fælir ekki aðeins fugla heldur kemur einnig á framfæri skilaboðum varðandi umhverfisvernd.'' Kennarinn setur fram einfaldar og skýrar reglur þar sem lögð er áhersla á öryggi og teymisvinnu. Nemendur velja sér samstarfsfélaga sem vinna saman í pörum. Verkefnið er einnig hægt að útfæra samhliða verkefninu '''''[[Tink@School/Tinker með sólarrafhlöðum|Tinker með sólarrafhlöðum]]'''''. Í því tilfelli búa nemendur fyrst til fuglahræðu og láta hana hreyfast með því að nota sólarrafhlöðu og mótor. === Framkvæmd (90 mínútur) === * Vinnustöðvum er breytt í líflegar sköpunareyjur. Kennari setur fram einfaldar og skýrar reglur með áherslu á öryggi og teymisvinnu. * Nemendur velja sér vinnufélaga og vinna í saman í pörum. * Kennari fer um rýmið og fylgist með hvernig vinnan gengur, hann skrifar niður það sem vekur athygli til að nýta í umræður í lokin. Kennari styður við hugmyndir nemenda og gefur þeim valkosti þegar þörf er á til dæmis með því að leggja til að skoða hvað aðrir eru að gera og benda þeim á annan efnivið eða aðra möguleika ef þeir eru í vandræðum með að halda áfram. === Lok verkefnis (30 mínútur) === Í lok verkefnis kynnir hvert par sína fuglahræðu fyrir hinum nemendunum. Kennarinn getur spurt út í helstu áskoranir sem nemendur lentu í, hvernig þeir leystu vandamál og hvaða framfarir þeir sáu. Kennarinn getur auk þess spurt út í samstarfið á milli nemenda, hvaðan þeir sóttu sér innblástur, hvort þeir hafi þurft að breyta upphaflegum hugmyndum sínum og þá hvernig. Athugið hversu margar fuglahræður hafa tengingu við umhverfið og hvernig úrgangshlutir voru nýttir við gerð þeirra. Ljúkið verkefninu með umræðum um upplifun nemenda af Tinkering verkefninu, hvað var erfitt, hvað var ánægjulegt og hvort þeir hafi fengið óvæntar hugmyndir. Nemendur taka fuglahræðurnar sínar með sér heima eða þeim er fundinn góður staður í umhverfi skólans t.d. úti í matjurtagarði ef skólinn er með slíka ræktun. <hr> © Tink@school 2024 Þessi útgáfa er afurð Tink@school (2022-1-IS01-KA220-SCH-000087083), sem var fjármögnuð með stuðningi Erasmus+ menntaáætlunar Evrópusambandsins. Útgáfan endurspeglar eingöngu skoðanir höfunda og framkvæmdarstjórn getur ekki borið ábyrgð á notkun upplýsinga sem þar er að finna.
Breytingarágrip:
Athugaðu að aðrir notendur geta breytt eða fjarlægt öll framlög til Kennarakvikan. Ef þú vilt ekki að textanum verði breytt skaltu ekki senda hann inn hér.
Þú lofar okkur einnig að þú hafir skrifað þetta sjálfur, að efnið sé í almannaeigu eða að það heyri undir frjálst leyfi. (sjá
Kennara Wiki:Höfundaréttur
).
EKKI SENDA INN HÖFUNDARRÉTTARVARIÐ EFNI ÁN LEYFIS RÉTTHAFA!
Hætta við
Breytingarhjálp
(opnast í nýjum glugga)