Kennarakvikan
Kennarakvikan
Leit
Skrá inn
↓
Persónuleg verkfæri
Ekki skráð/ur inn
Spjall
Framlög
Stofna aðgang
Skrá inn
Leiðsagnarval
Flakk
Nýlegar breytingar
Handahófsvalin síða
Hlaða inn skrá
Allar skrár
Notendur
Allir notendur
Notandahandbók
Breyti
Tink@School/Sjálfbærnidagatal
(hluta)
Úr Kennarakvikan
Viðvörun:
Þú ert ekki innskráð(ur). Vistfang þitt verður sýnt opinberlega ef þú gerir einhverjar breytingar. Ef þú
skráir þig inn
eða
stofnar aðgang
munu breytingarnar þínar vera tengdar við notandanafn þitt, ásamt öðrum kostum.
Amasendingavörn.
Ekki
fylla þetta út!
== Framkvæmd verkefnis == === Kynning === Byrjið á því að ræða hugtakið ''sjálfbærni'' og mikilvægi þess að hugsa um jörðina okkar. Spyjið spurninga eins og: Hefur þú einhvern tímann hugsað um leiðir til að hjálpa umhverfinu? Hvaða aðgerðir telur þú vera sjálfbærar? Getur þú nefnt nokkrar sjálfbærar aðgerðir sem þú gerir heima? En í skólanum? Eða í hverfinu þínu? Skiptið nemendahópnum (ekki fleiri en 20) í 4-5 manna hópa og biðjið þá um að búa til orðaský um sjálfbærni. Hvetjið nemendur til að hugleiða og deila hugmyndum sínum um þær sjálfbæru aðgerðir sem þeir geta gripið til. Þetta getur falið í sér endurvinnslu, varðveislu vatns og orku, gróðursetningu trjáa, að draga úr sóun eða að breiða út boðskap og auka meðvitund um sjálfbærni. Útskýrið verkefnið og bendið nemendum á að kynna sér efniviðinn sem er í boði. '''Lýsing á verkefninu:''' Búið til dagatal eða eitthvað annað* til að fylgjast með eða hvetja fólk til að grípa til sjálfbærra aðgerða. * Tímalengd: á milli 60 og 90 mínútur * Sýndu nemendum nokkur dæmi * Komdu með tillögur sem hjálpa nemendum að komast af stað: ** Fyrir hvern er dagatalið gert? (t.d. skóla , fjölskyldu, þau sjálf) ** Hvers konar aðgerðir á að skrá eða hvetja til með dagatalinu? (endurvinnsla, endurnýting, hvetja fólk til að vera sjálfbærara, skipuleggja lautarferðir, njóta náttúrunnar, minnka skjátíma, hjálpa öðrum t.d. eldri borgurum). Hvernig vilja nemendur hvetja til aðgerðanna? (Fylgjast með aðgerðum á dagatalinu, skemmtilegar hvatningar, fylgjast með sorphirðu) <nowiki>*</nowiki> Eitthvað annað getur verið: graf sem sýnir hversu mikið er endurunnið, verðlaunaskrá, skrá varðandi hvað þarf að gera. Sjá nánar í viðauka. === Framkvæmd === Leiðbeinandinn (kennarinn) leiðbeinir nemendum í gegnum Tinkering ferlið með því að bjóða fram aðstoð til dæmis varðandi hugmyndavinnu, efnisnotkun og við að leysa ýmsar áskoranir. Leiðbeinandi leggur áherslu á styðjandi vinnuumhverfi og sköpun og hvetur nemendur til að hugsa út fyrir kassann. Hann hvetur einnig til að hugsa um frumlegar leiðir varðandi það hvernig sjálfbærni birtist á dagatölunum hvort heldur með listrænum hætti, eða nýstárlegum hugmyndum. Mikilvægt er að hvetja nemendur til að deila framförum sínum og hugmyndum með jafningjahópnum. * Gefið öryggismálunum gaum, nemendur eru að vinna með skæri og dósir sem hægt er að skera sig á og límbyssu sem verður heit. * Látið vita hvað tímanum líður og segið nemendum reglulega hversu mikill tími er eftir. * Fylgist með hópunum og verið meðvituð um framgang verkefnisins. Takið eftir hvort einhverjir eru að upplifa gremju eða að þeir komist ekki áfram í verkefnavinnunni. * Setjið fram athugasemdir og spurningar til að fá nemendur til að hugsa um mögulegar lausnir eða hjálpa þeim að koma á framfæri markmiðum sínum eða vandamálum: ** '''''Setjið fram spurningar í stað svara:''''' ''Hvaða skilaboðum viltu koma á framfæri með dagatalinu þínu? Hvers konar tímarammi gæti hjálpað þér að muna að vinna með sjálfbæra hegðun?'' ** '''''Búið til styðjandi og hvetjandi umhverfi:''''' ''Mér líkar vel við hvernig þú notar efniviðinn sem þú valdir.'' ** '''''Reynið að aðstoða þátttakendur sem upplifa gremju á jákvæðan og uppbyggjandi máta:''''' ''Af hverju heldurðu að þetta virki ekki hjá þér?'' ** '''''Reynið að hvetja þátttakendur til að nýta eigin áhugahvöt''': Ekki hafa áhyggjur þó þú haldir að þetta virki ekki, reyndu samt, sjáðu hvað gerist.'' ** '''''Gott er að hvetja til samvinnu''': Kannski getur þú spurt næsta hóp hvernig þetta gekk hjá þeim.'' * Ef nemendur verða fastir og vita ekki hvernig þeir geta tekið næstu skref er gott er að hvetja þá til að skoða hvað aðrir eru að gera eða skoða betur hvaða efniviður er í boði. * Skrifið niður það sem vekur athygli ykkar, úrlausnir eða yfirlýsingar frá nemendum, til að nota í umræðum að verkefni loknu (t.d. ef þið sáuð dæmi um mjög góða samvinnu eða dæmi um hvernig nemendur tókust á við gremju) * Verkefninu lýkur á 60 til 90 mínútum, en tímalengd getur farið eftir nemendahópum, sumir hópar klára ef til vill verkefnið fyrr en aðrir. * Góð ráð fyrir leiðbeinanda: ** Skoða dæmi um sjálfbærnidagatal í viðauka. ** Þvottaklemmur, gúmmíteygjur, lím og teiknibólur virka vel til að festa og tengja saman hluti. ** Litir og/eða annað skreytingarefni (glimmer, límmiða) getur aukið þátttöku nemenda og virkni. ** Lykilhugtök um sjálfbærni geta hjálpað til við að láta í ljósi lykilatriði varðandi sjálfbærni. * Tiltekt, sjáðu til þess að efnivið sem hægt er að nota aftur sé safnað saman en ekki hent. Pappír er safnað í pappírstunnu til endurvinnslu. === Lok verkefnis === Í lok verkefnisins gefst tækifæri fyrir bæði leiðbeinendur og nemendur að velta fyrir sér ferlinu og útkomunni. Mikilvægt er að gefa þátttakendum tíma til að deila Tinkering-dagatölunum sínum og ræða reynsluna. Nemendur eru hvattir til þess að ræða um þær sjálfbærniaðgerðir sem koma fram á dagatalinu, þær áskoranir sem þeir stóðu frammi fyrir við gerð dagatalsins og hvernig þeir tókust á við þær. Í framhaldinu er gott að hvetja nemendur til að velta fyrir sér eigin sjálfbæru markmiðum og aðgerðum. Lögð er áhersla á jákvæð áhrif af verkefninu þar sem hvert lítið skref í átt að sjálfbærni skiptir máli og framlag nemenda verðmætt. Nemendur geta velt fyrir sér framhaldinu eftir Tinkering verkefnið og þeir hvattir til að setja sér ný markmið og kanna frekari aðgerðir til sjálfbærari lífsstíls sem hægt er að grípa til í daglegu lífi. '''Eftirfylgni:''' Nemendur geta notað dagatöl sín eða annarra til að fylgjast með athöfnum sínum í tvær vikur. Eftir tvær vikur er mögulegt að ræða hvað nemendur gerðu af því sem var á dagatalinu og hvort þeir hafi gert meira en áður.
Breytingarágrip:
Athugaðu að aðrir notendur geta breytt eða fjarlægt öll framlög til Kennarakvikan. Ef þú vilt ekki að textanum verði breytt skaltu ekki senda hann inn hér.
Þú lofar okkur einnig að þú hafir skrifað þetta sjálfur, að efnið sé í almannaeigu eða að það heyri undir frjálst leyfi. (sjá
Kennara Wiki:Höfundaréttur
).
EKKI SENDA INN HÖFUNDARRÉTTARVARIÐ EFNI ÁN LEYFIS RÉTTHAFA!
Hætta við
Breytingarhjálp
(opnast í nýjum glugga)