„Klassísk efnahvörf/Matarsódi og ediksýra“: Munur á milli breytinga

Úr Kennarakvikan
(→‎Efni og áhöld: Hlekkur á Ediksýru og matarsóda)
 
(Ein millibreyting ekki sýnd frá sama notandanum)
Lína 8: Lína 8:
Í þessa tilraun þarf:
Í þessa tilraun þarf:

* Edik (þetta má vera borðedik eða sérstök ediksýra til matargerðar)
* Edik (þetta má vera borðedik eða sérstök [[Búnaður fyrir náttúruvísindakennslu/Ediksýra|ediksýra]] til matargerðar)
* Matarsódi
* [[Búnaður fyrir náttúruvísindakennslu/Matarsódi|Matarsódi]]
* Ílát til að blanda í, t.d. glas
* Ílát til að blanda í, t.d. glas
* Skeið til að skammta
* Skeið til að skammta
Lína 20: Lína 20:
== Framkvæmd ==
== Framkvæmd ==

<div class="skref-listi">
{{skref|byrja}}
{{skref|Helltu góðri botnfylli af ediksýru í ílátið.}}
{{skref|Helltu góðri botnfylli af ediksýru í ílátið.}}
{{skref|Helltu smá matarsóda í sýruna með skeið.}}
{{skref|Helltu smá matarsóda í sýruna með skeið.}}
</div>
{{skref|ljúka}}
<br style="clear:both">
Nú á efnahvarfið að losa koltvísýring sem myndar froðuna. Magnið af ediksýru og matarsóda fer nokkuð eftir styrkleika sýrunnar. Hrærðu í blöndunni til að klára efnahvarfið og þá geturðu bætt við örlitlu af ediki eða matarsóda til að kanna hvort (sýran eða matarsódinn) hafi klárast fyrst.

Lína 30: Lína 29:

Koltvísýringur er þyngri en loftið í kring og myndar því poll ofan í ílátinu. Þar sem eldur þarf súrefni getur ekkert brunnið ofan í koltvísýringspollinum. Þetta má nota til að kæfa loga.
Koltvísýringur er þyngri en loftið í kring og myndar því poll ofan í ílátinu. Þar sem eldur þarf súrefni getur ekkert brunnið ofan í koltvísýringspollinum. Þetta má nota til að kæfa loga.
<div class="skref-listi">
{{skref|byrja}}
{{skref|Kveiktu á lágu kerti (t.d. sprittkerti).}}
{{skref|Kveiktu á lágu kerti (t.d. sprittkerti).}}
{{skref|Helltu koltvísýringnum yfir logann. Þetta kann að þarfnast æfingar því koltvísýringurinn er ósýnilegur.}}
{{skref|Helltu koltvísýringnum yfir logann. Þetta kann að þarfnast æfingar því koltvísýringurinn er ósýnilegur.}}
</div>
{{skref|ljúka}}
<br style="clear: both">
Til að kæfa kertalogann þarf að gæta þess að anda ekki ofan í glasið svo það blásist ekki í burtu áður en því er hellt yfir kertalogann. Með smá æfingu lærist að búa til hæfilegt magn koldíoxíðs.
Til að kæfa kertalogann þarf að gæta þess að anda ekki ofan í glasið svo það blásist ekki í burtu áður en því er hellt yfir kertalogann. Með smá æfingu lærist að búa til hæfilegt magn koldíoxíðs.

Lína 40: Lína 38:

Rétt eins og bátar fljóti á vatni vegna þess að það er eðlisþyngra en loft, getum við búið til báta sem fljóta á koltvíoxíði.
Rétt eins og bátar fljóti á vatni vegna þess að það er eðlisþyngra en loft, getum við búið til báta sem fljóta á koltvíoxíði.
<div class="skref-listi">
{{skref|byrja}}
{{skref|Búðu til bát úr álpappír og gerðu hann eins stóran en léttan og þú getur.}}
{{skref|Búðu til bát úr álpappír og gerðu hann eins stóran en léttan og þú getur.}}
{{skref|Legðu bátinn varlega ofan í ílátið og sjáðu hvort hann fljóti ekki á skilum koltvíoxíðsins og loftsins.}}
{{skref|Legðu bátinn varlega ofan í ílátið og sjáðu hvort hann fljóti ekki á skilum koltvíoxíðsins og loftsins.}}
</div>
{{skref|ljúka}}
<br style="clear: both">

== Aðrar skyldar tilraunir ==
== Aðrar skyldar tilraunir ==

Núverandi breyting frá og með 7. nóvember 2024 kl. 14:38

Að blanda saman ediksýru og matarsóda er klassísk efnafræðitilraun, m.a. vegna þess að efnin tvö eru notuð í matseld og bakstur og því til á mörgum heimilum.

Tilrauninni fylgir nokkuð virkt efnahvarf sem losar allmikið af koltvísýringi á gasformi sem býr til nokkra froðu. Hún er því skemmtileg en hér skoðum við líka áhugaverða eiginleika koltvísýringsins sem við getum t.a.m. notað til að slökkva eld.

Efni og áhöld[breyta | breyta frumkóða]

Í þessa tilraun þarf:

  • Edik (þetta má vera borðedik eða sérstök ediksýra til matargerðar)
  • Matarsódi
  • Ílát til að blanda í, t.d. glas
  • Skeið til að skammta

Ef þú vilt prófa að slökkva í kerti með koltvísýringnum þarftu einnig:

  • Kerti (t.d. sprittkerti)
  • Eldfæri til að kveikja á kertinu

Framkvæmd[breyta | breyta frumkóða]

Helltu góðri botnfylli af ediksýru í ílátið.
Helltu smá matarsóda í sýruna með skeið.

Nú á efnahvarfið að losa koltvísýring sem myndar froðuna. Magnið af ediksýru og matarsóda fer nokkuð eftir styrkleika sýrunnar. Hrærðu í blöndunni til að klára efnahvarfið og þá geturðu bætt við örlitlu af ediki eða matarsóda til að kanna hvort (sýran eða matarsódinn) hafi klárast fyrst.

Kertalogi kæfður[breyta | breyta frumkóða]

Koltvísýringur er þyngri en loftið í kring og myndar því poll ofan í ílátinu. Þar sem eldur þarf súrefni getur ekkert brunnið ofan í koltvísýringspollinum. Þetta má nota til að kæfa loga.

Kveiktu á lágu kerti (t.d. sprittkerti).
Helltu koltvísýringnum yfir logann. Þetta kann að þarfnast æfingar því koltvísýringurinn er ósýnilegur.

Til að kæfa kertalogann þarf að gæta þess að anda ekki ofan í glasið svo það blásist ekki í burtu áður en því er hellt yfir kertalogann. Með smá æfingu lærist að búa til hæfilegt magn koldíoxíðs.

Álbátur flýtur á koltvísýringshafi[breyta | breyta frumkóða]

Rétt eins og bátar fljóti á vatni vegna þess að það er eðlisþyngra en loft, getum við búið til báta sem fljóta á koltvíoxíði.

Búðu til bát úr álpappír og gerðu hann eins stóran en léttan og þú getur.
Legðu bátinn varlega ofan í ílátið og sjáðu hvort hann fljóti ekki á skilum koltvíoxíðsins og loftsins.

Aðrar skyldar tilraunir[breyta | breyta frumkóða]

Þegar koltvísýringurinn losnar úr kolsýrunni þenst það út. Þessi eiginleiki er t.a.m. notaður í eldfjallalíkön sem margir hafa eflaust séð myndir af úr amerískum skólavísíndaveislum. Þá er oft blandað út í edikið smávegis af sápu til að láta froðuna endast lengur og matarlit til að fá þann lit á froðuna sem sóst er eftir.

Eins er tilraunin stundum framkvæmd með ediksýrunni í flösku og matarsódanum í blöðru sem strengd er yfir stút flöskunnar. Matarsódinn er upphaflega látinn sitja í blöðrunni með því að hún lafi niður með flöskunni. Honum er svo hellt út í ediksýruna og við það blæs blaðran út sem sýnir hvað koltvísýringurinn tekur mun meira pláss en hvarfefnin.

Hvað er að gerast?[breyta | breyta frumkóða]

Efnahvarfið er dæmi um sýru-basa hvarf. Það gerist í tveimur skrefum, fyrst hvarfast matarsódinn (einnig kallað natrón, NaHCO3) við ediksýruna () og myndar natríum-asetat () og kolsýru ():

Kolsýran brotnar hins vegar fljótt niður í vatn () og koltvísýring () sem er á gasformi og býr því til loftbólurnar:

Þetta er reyndar ástæða þess að matarsódinn er notaður í bakstur, en þar leysist hann upp í vökvanum í deiginu og hvarfast við súr efni til að mynda loftbólur sem lyfta deiginu.

Heildarefnahvarfið má einnig setja upp sem:

þar sem (s) táknar fast efni (e. solid), (l) táknar vökva (en. liquid), (g) táknar gas (e. gas), og (aq) táknar að efnið er leyst upp í vatni (e. aqueous).