„Heillandi verkefni í náttúruvísindum/Hljóð flutt með ljósi“: Munur á milli breytinga
Úr Kennarakvikan
Ekkert breytingarágrip |
|||
Lína 20: | Lína 20: | ||
<br style="clear: both"> | <br style="clear: both"> | ||
== Ítarefni == | == Ítarefni == | ||
{{#ev:youtube|jYCnz0zZojc|400|right}} | |||
=== Hvað er að gerast? === | === Hvað er að gerast? === | ||
Útgáfa síðunnar 17. maí 2024 kl. 12:19
Markmið
Þetta verkefni snýst um það að flytja hljóð með ljósi.
Áhöld og efni
- Hljóðgjafi með mini-jack tengi (t.d. sími eða tölva)
- Hátalari (tölvuhátalarar virka vel)
- Snúra með hljóðtengi sem passar í hljóðgjafann og hátalarann
- 3 V rafhlaða (t.d. CR2023) og hulstur fyrir hana með tengjum til að lóða við
- 2x ljóstvistar (led-perur)
Framkvæmd
Snúran með hljóðtengjunum er klippt í tvennt og vírarnir afeingangraðir.
Ljóstvistur er lóðaður við annan snúruspottann, þannig að önnur löppin tengist við jörðina (yfirleitt með svarta einangrun, eða án einangrunar við hlið hinna tveggja víranna) og hin við hægri og vinstri rásina (yfirleitt með hvíta og rauða einangrun). Það skiptir ekki máli hvernig ljóstvisturinn snýr.
Við hinn enda snúruspottans eru lóðuð rafhlöðuhulstrið og hinn ljóstvisturinn, raðtengt. Hér skiptir heldur ekki máli hvernig leiðararnir eru tengdir en pólar rafhlöðunnar þurfa að passa við póla ljóstvistsins. Þegar rafhlaðan er tengd á að kvikna á perunni.
Hljóðtengin eru tengd við hljóðgjafa og hátalara og perurnar látnar snúa að hvort öðru. Þá á hátalarinn að spila hljóðið.
Ítarefni
Hvað er að gerast?
Hljóðtengið
Hljóðtengið (oft kallað mini-jack) kemur í nokkrum gerðum eftir því hvort það er með . Gott er að vera með mono- eða sterio-tengi, ekki tengi með leiðara fyrir hljóðnema