Fram eru komnar tillögur að endurskoðun greinarsviða aðalnámsskrár grunnskóla frá 2013. Þar er m.a. ítarlegar farið í þá þætti sem snerta skuli á fagreinunum. Hér eru töflurnar úr tillögunum (bls. 70-75) settar upp með hlekkjum á hvert undir-hæfniviðmið með það að miði að tengja megi þau inn á verkefni eða efni sem miða að því að ná þeim markmiðum.
Markmiðið er ekki að hægt sé að fara í hæfniviðmið og „tikka í boxin“ heldur frekar að gefa dæmi um hvers kyns verkefni megi nýta til að ná þess lags hæfniviðmiði. Slíkt styður við heildstæðari skoðun á efni og þeim kröfum sem kennarar gera til nemenda. Eins er vert að benda á ágæta áminningu úr tillögunni:
„Þegar sjónum er beint sérstaklega að einu hæfniviðmiði þarf að hafa í huga að nám er samfellt ferli og skapandi athöfn, fremur en söfnun afmarkaðrar þekkingar og þjálfun í tiltekinni leikni.“
Vinnulag stærðfræðinnar
Yfirheiti
|
Við lok 4. bekkjar getur nemandi
|
Við lok 7. bekkjar getur nemandi
|
Við lok 10. bekkjar getur nemandi
|
Samræður
|
tekið þátt í samræðum um spurningar og svör sem eru einkennandi fyrir stærðfræði [SMR (4)]
|
tjáð sig um stærðfræði, útskýrt hugsun sína fyrir öðrum og spurt spurninga til að leita lausna [SMR (7)]
|
tjáð sig um stærðfræðileg efni og um veruleikann og útskýrt hugsun sína fyrir öðrum [SMR (10)]
|
Verkfæri
|
nýtt sér þau verkfæri og hjálpargögn sem þarf til að finna lausn á stærðfræðilegum viðfangsefnum [VVF (4)]
|
nýtt sér þau verkfæri og hjálpargögn sem þarf til að rannsaka og finna lausn á stærðfræðilegum viðfangsefnum [VVF (7)]
|
valið og nýtt ólík hjálpartæki til stærðfræðilegrar verka, þ.m.t. tölvutækni [VVF (10)]
|
Táknmál og hugtök
|
notað rétt heiti yfir stærðfræðitákn og nýtt þau rétt við útreikninga [TOH (4)]
|
notað rétt heiti yfir stærðfræðitákn, nýtt þau rétt við útreikninga og yfirfært milli táknmáls og daglegs máls [TOH (7)]
|
notað hugtök og táknmál stærðfræðinnar til að setja fram, tákna og leysa hversdagsleg og fræðileg verkefni [TOH (10)]
|
Samvinna
|
unnið einn og í samvinnu við aðra að lausn á stærðfræðilegum viðfangsefnum [SMV (4)]
|
unnið einn og í samvinnu við aðra að því að rannsaka og finna lausnir á stærðfræðilegum viðfangsefnum með fjölbreyttum aðferðum [SMV (7)]
|
sett fram, greint, túlkað og metið stærðfræðileg líkön einn og í samvinnu við aðra [SMV (10)]
|
Kynningar
|
undirbúið og flutt stuttar kynningar á eigin vinnu með stærðfræði [KYN (4)]
|
undirbúið og flutt kynningar á eigin vinnu með stærðfræði [KYN (7)]
|
undirbúið og flutt kynningar og skrifað texta um eigin vinnu með stærðfræði [KYN (10)]
|
Forritun
|
búið til einföld reiknirit og tjáð þau með því að nota breytur, skilyrði og slaufur [FOR (4)]
|
notað forritun til að rannsaka gögn í töflum og gagnagrunnum [FOR (7)]
|
rannsakað stærðfræðilega eiginleika og samhengi með því að nota forritun [FOR (10)]
|
Fjármál
|
notað grunnreikniaðgerðir til að finna lausnir á og takast á við verkefni daglegs lífs og fjármála og skilið verðgildi peninga [FJÁ (4)]
|
nýtt stærðfræði til að takast á við verkefni er tengjast helstu hugtökum persónulegra fjármála og haldið utan um eigin fjármál [FJÁ (7)]
|
nýtt helstu hugtök fjármála í tengslum við eigin fjármál, launagreiðslur, skatta og fjárfestingar og nýtt þau við útreikninga og úrlausnir verkefna daglegs lífs [FJÁ (10)]
|
Tölur og reikningur
Yfirheiti
|
Við lok 4. bekkjar getur nemandi
|
Við lok 7. bekkjar getur nemandi
|
Við lok 10. bekkjar getur nemandi
|
Talna-mengi
|
raðað náttúrulegum tölum eftir stærð [TME (4)]
|
raðað ræðum tölum eftir stærð [TME (7)]
|
sýnt að hann þekkir mengi náttúrulegra talna, heilla talna, ræðra talna og rauntalna [TME (10)]
|
Námundun
|
nýtt sér námundun við einfalda útreikninga með náttúrulegum tölum [NMD (4)]
|
nýtt sér námundun við útreikninga með ræðum tölum [NMD (7)]
|
|
Sætiskerfi
|
notað tugakerfisrithátt og sýnt skilning á sætiskerfi við ritun náttúrulegra talna [SÆT (4)]
|
notað tugakerfisrithátt og sýnt skilning á sætiskerfi við ritun ræðra talna [SÆT (7)]
|
notað sætiskerfi með mismunandi grunntölum, s.s. tugakerfið og tvíundakerfið og sýnt að hann skilur hvernig þau virka [SÆT (10)]
|
Grunnreikni-aðgerðirnar
|
nýtt sér grunnreikniaðgerðirnar fjórar og reiknað með náttúrulegum tölum [GRU (4)]
|
nýtt sér grunnreikniaðgerðirnar fjórar og reiknað með ræðum tölum, þ.m.t. neikvæðum tölum [GRU (7)]
|
nýtt sér grunnreikniaðgerðirnar fjórar og reiknað með rauntölum [GRU (10)]
|
Þróun aðferða
|
þróað hentugar aðferðir sem byggja á eigin skilningi við reikning með náttúrulegum tölum [ÞRÓ (4)]
|
þróað hentugar aðferðir sem byggja á eigin skilningi við reikning með ræðum tölum [ÞRÓ (7)]
|
þróað, útskýrt og rökstutt aðferðir þar sem reiknað er með grunnreikniaðgerðunum fjórum [ÞRÓ (10)]
|
Daglegt líf
|
gefið dæmi um og sýnt hvernig einföld brot og hlutföll eru notuð í daglegu lífi [DAG (4)]
|
notað brot, hlutföll og prósentur til að leysa viðfangsefni sem sprottin eru úr daglegu lífi [DAG (7)]
|
beitt prósentureikningi á viðfangsefni í daglegu lífi [DAG (10)]
|
Þrautalausn
|
nýtt sér grunnreikniaðgerðirnar fjórar til að leysa þrautir og rökstutt svörin sín [ÞTL (4)]
|
nýtt sér reikniaðgerðir og reglur til að leysa þrautir og rökstutt svörin sín [ÞTL (7)]
|
nýtt sér fjölbreyttar reikniaðgerðir og stærðfræðilegt samhengi til að leysa þrautir og rökstutt svörin sín [ÞTL (10)]
|
Hlutföll
|
|
skráð hlutföll og brot á ólíka vegu og sýnt fram á að hann skilur sambandið milli almennra brota, tugabrota og prósenta [HLU (7)]
|
skýrt sambandið milli almennra brota, tugabrota og prósenta [HLU (10)]
|
Reiknireglur
|
|
nýtt sér samhengi og tengsl reikniaðgerðanna og notað algengar reiknireglur, s.s. tengireglu, víxlreglu og dreifireglu [RKR (7)]
|
nýtt sér frumtölur og þáttun við útreikninga [RKR (10)]
|
Rætur og veldi
|
|
|
reiknað með veldum og ferferningsrótum í einföldum tilvikum. [ROV (10)]
|
Algebra
Yfirheiti
|
Við lok 4. bekkjar getur nemandi
|
Við lok 7. bekkjar getur nemandi
|
Við lok 10. bekkjar getur nemandi
|
Mynstur
|
kannað, búið til og tjáð sig um reglur í talnarunum og myndrænum mynstrum og spáð fyrir um framhald mynsturs [AMY (4)]
|
kannað og búið til rúmfræðileg mynstur og nýtt sér táknmál algebrunnar til að vinna með þau [AMY (7)]
|
unnið með talnarunur og mynstur á skipulegan hátt og lýst þeim með táknmáli algebrunnar [AMY (10)]
|
Föll
|
notað táknmál stærðfræðinnar til að meta sanngildi og lýsa sambandi milli stærða [FLL (4)]
|
rannsakað og sett fram talnarunur og lýst þeim með myndum og orðum [FLL (7)]
|
unnið með fallahugtakið á mismunandi formi og við mismunandi aðstæður, bæði á blaði og með stafrænum verkfærum [FLL (10)]
|
Óþekktar stærðir
|
reiknað með óþekktum stærðum í einföldum tilvikum [ÓÞS (4)]
|
notað bókstafi til að tákna óþekktar stærðir og reiknað með þeim [ÓÞS (7)]
|
einfaldað algebrustæður og leyst jöfnur með einni óþekktri stærð [ÓÞS (10)]
|
Jöfnur
|
fundið lausnir á jöfnum með óformlegum aðferðum og rökstutt lausnir sínar [JFN (4)]
|
fundið lausnir á jöfnum og ójöfnum með því að nota algengar reiknireglur svo sem víxlreglu, tengireglu og dreifireglu [JFN (7)]
|
sett upp og leyst jöfnur og ójöfnur og sett lausnina í samhengi [JFN (10)]
|
Jöfnuhneppi
|
|
|
leyst saman jöfnur með fleiri en einni óþekktri stærð [JHN (10)]
|
Hnitakerfi
|
|
túlkað jöfnur í hnitakerfi og notað teikningar í hnitakerfi, bæði á blaði og með stafrænum verkfærum, til að leysa þær [AHN (7)]
|
|
Margliður
|
|
|
unnið með margliður [MGL (10)]
|
Tölfræði og líkindi
Yfirheiti
|
Við lok 4. bekkjar getur nemandi
|
Við lok 7. bekkjar getur nemandi
|
Við lok 10. bekkjar getur nemandi
|
Gagnavinnsla
|
safnað gögnum í umhverfi sínu og um eigið áhugasvið [GVN (4)]
|
safnað og unnið úr gögnum, miðlað upplýsingum um þau, m.a. með töflum og myndritum, með og án stafrænna hjálpartækja [GVN (7)]
|
notað tölfræðihugtök til að setja fram, lýsa, skýra og túlka gögn [GVN (10)]
|
Kannanir
|
talið, flokkað og skráð, lesið og túlkað niðurstöður og sett upp í einföld myndrit, með og án stafrænna hjálpartækja [KAN (4)]
|
gert einfaldar tölfræðikannanir og framkvæmt einfalda tölfræðiútreikninga [KAN (7)]
|
skipulagt og framkvæmt tölfræðikannanir og dregið ályktanir af þeim [KAN (10)]
|
Myndrit
|
lesið úr einföldum myndritum [MDR (4)]
|
lesið, útskýrt og túlkað gögn og upplýsingar sem gefnar eru í töflum og myndritum [MDR (7)]
|
lesið, skilið og lagt mat á tölfræðilegar upplýsingar sem settar eru fram opinberlega, t.d. í fjölmiðlum [MDR (10)]
|
Tilraunir
|
gert einfaldar tilraunir með líkur og sett í samhengi við spil [TLR (4)]
|
dregið ályktanir um líkur út frá eigin tilraunum og borið saman við fræðilegar líkur [TLR (7)]
|
framkvæmt tilraunir þar sem líkur og tilviljun koma við sögu og túlkað niðurstöður sínar [TLR (10)]
|
Líkindareikningur
|
reiknað út líkur í einföldum tilvikum [LÍK (4)]
|
notað hugtök í líkindareikningi, eins og skilyrtar líkur, óháða atburði og einfaldar talningar til að reikna og túlka líkur á atburðum [LÍK (7)]
|
[LÍK (10)]
|
Rúmfræði og mælingar
Yfirheiti
|
Við lok 4. bekkjar getur nemandi
|
Við lok 7. bekkjar getur nemandi
|
Við lok 10. bekkjar getur nemandi
|
Tungumál
|
notað hugtök úr rúmfræði til að lýsa hlutum í umhverfi sínu [TNG (4)]
|
notað hugtök rúmfræðinnar til að útskýra hversdagsleg og fræðileg fyrirbrigði [TNG (7)]
|
notað undirstöðuhugtök og aðferðir rúmfræðinnar til að útskýra fræðileg fyrirbrigði, til dæmis samsíða línur og hornréttar línur, stærðarhlutföll og færslur tví- og þrívíðra forma [TNG (10)]
|
Mynstur
|
speglað og hliðrað flatarmyndum við rannsóknir á mynstrum [RMY (4)]
|
hliðrað, speglað og/eða snúið flatarmyndum, til dæmis við rannsóknir á mynstrum [RMY (7)]
|
|
Skýringarmyndir
|
gert óformlegar rannsóknir á tví- og þrívíðum formum, teiknað skýringarmyndir af þeim og hlutum í umhverfi sínu [SKM (4)]
|
rannsakað og greint tvívíð og þrívíð form, teiknað einfaldar flatar- og þrívíddarmyndir og notað til þess mælikvarða og einslögun [SKM (7)]
|
teiknað skýringarmyndir og unnið með teikningar annarra út frá gefnum forsendum, t.d. um mælikvarða, einslögun og hlutföll, rannsakað og lýst sambandi milli teikningar og hlutar [SKM (10)]
|
Hnitakerfi
|
unnið með punkta og flatarmyndir í hnitakerfi og utan þess [AHN (4)]
|
teiknað beinar línur í hnitakerfi og lesið upplýsingar úr slíkum myndum [AHN (7)]
|
nýtt sér undirstöðuatriði í hnitakerfi og m.a. unnið með jöfnu beinnar línu í hnitakerfi og reikningi [AHN (10)]
|
Verkfæri
|
rannsakað og gert tilraunir með rúmfræði á einfaldan hátt, t.d. með því að nota rúmfræðiforrit og hlutbundin gögn [RVF (4)]
|
rannsakað og gert tilraunir í rúmfræði með því að nota rúmfræðiforrit og hlutbundin gögn [RVF (7)]
|
nýtt rúmfræðiforrit til að teikna, rannsaka og setja fram rök um rúmfræðilegar teikningar [RVF (10)]
|
Mælieiningar
|
notað tengsl á milli helstu mælieininga í einvíðu kerfi [EIN (4)]
|
notað tengsl á milli mælieininga í einvíðu kerfi [EIN (7)]
|
útskýrt tengsl mælieininga [EIN (10)]
|
Tími og klukkan
|
lesið og notað mismunandi framsetningu á tíma, notað skífu- og stafræna klukku og lesið tímatöflur [TÍM (4)]
|
|
|
Mælingar
|
mælt þyngd, lengd, tíma og hitastig með stöðluðum og óstöðluðum mælitækjum [MÆL (4)]
|
áætlað og mælt vegalengd, hraða, tíma og hitastig með viðeigandi mælikvarða og dregið ályktanir af mælingunum [MÆL (7)]
|
|
Tvívíð form
|
áætlað og mælt ummál og flatarmál með stöðluðum og óstöðluðum mælitækjum [TVÍ (4)]
|
áætlað, mælt og reiknað hornastærðir, ummál og flatarmál marghyrninga [TVÍ (7)]
|
útskýrt og notað reglu Pýþagórasar, gert rannsóknir á rétthyrndum þríhyrningum og reiknað hliðarlengdir og horn út frá þekktum eiginleikum [TVÍ (10)]
|
Þrívíð form
|
|
áætlað og reiknað rúmmál og yfirborðsflatarmál réttstrendinga með stöðluðum og óstöðluðum mælitækjum [ÞRÍ (7)]
|
mælt lengd, flöt og rými og reiknað stærð þeirra [ÞRÍ (10)]
|
Sannanir
|
|
útskýrt og notað reglu um hornasummu marghyrninga [SAN (7)]
|
sett fram einföld rúmfræðileg rök og sannanir og túlkað táknmál algebru með rúmfræði [SAN (10)]
|