Hér má finna yfirlit yfir hæfniviðmið íslenskukafla Aðalnámsskrár grunnskóla ásamt hlekkjum á undirsíður þar sem koma má fyrir ítarfefni fyrir hvert hæfniviðmið. Markmiðið er ekki að hægt sé að fara í hæfniviðmið og „tikka í boxin“ heldur frekar að gefa dæmi um hvers kyns verkefni megi nýta til að ná þess lags hæfniviðmiði. Slíkt styður við heildstæðari skoðun á efni og þeim kröfum sem kennarar gera til nemenda. Eins er vert að benda á ágæta áminningu úr tillögunni:
„Þegar sjónum er beint sérstaklega að einu hæfniviðmiði þarf að hafa í huga að nám er samfellt ferli og skapandi athöfn, fremur en söfnun afmarkaðrar þekkingar og þjálfun í tiltekinni leikni.“
Talað mál, hlustun og áhorf
Yfirheiti
|
Við lok 4. bekkjar getur nemandi
|
Við lok 7. bekkjar getur nemandi
|
Við lok 10. bekkjar getur nemandi
|
Framsögn
|
beitt skýrum og áheyrilegum framburði [FRM (4)]
|
flutt mál sitt skýrt og áheyrilega og gert sér grein fyrir undirstöðuatriðum góðrar framsagnar [FRM (7)]
|
flutt mál sitt skýrt og áheyrilega með viðeigandi talhraða, tónfalli, áherslum og fasi [FRM (10)]
|
Tjáning
|
sagt frá atburði eða fyrirbæri, tjáð sig frammi fyrir hópi og staðið fyrir máli sínu [TJÁ (4)]
|
gert grein fyrir þekkingu sinni og reynslu og tjáð hugmyndir sínar og skoðanir frammi fyrir hópi [TJÁ (7)]
|
miðlað þekkingu sinni og reynslu, tjáð hugmyndir sínar og skoðanir og fært rök fyrir þeim með fjölbreyttum leiðum [TJÁ (10)]
|
Hlustun og áhorf
|
hlustað og horft af athygli á valið efni og greint frá upplifun sinni [HÁH (4)]
|
hlustað og horft af athygli á fjölbreytt efni, beitt þekkingu sinni og reynslu til að skilja það og greint frá aðalatriðum [HÁH (7)]
|
horft á, hlustað og tekið eftir upplýsingum í fjölbreyttu efni og greint og miðlað innihaldi þess á gagnrýninn hátt [HÁH (10)]
|
Áhorf
|
horft og hlustað af athygli á fjölbreytt efni og greint frá upplifun sinni [ÁHF (4)]
|
horft af athygli á myndefni, beitt þekkingu sinni og reynslu til að skilja það sem sýnt er og greint frá aðalatriðum [ÁHF (7)]
|
horft og tekið eftir upplýsingum í myndefni og greint og miðlað innihaldi þess á gagnrýninn hátt [ÁHF (10)]
|
Nýting miðla
|
nýtt sér og endursagt efni á stafrænu formi [MIÐ (4)]
|
nýtt sér myndefni og stafrænt efni á gagnrýninn hátt og greint frá aðalatriðum þess [MIÐ (7)]
|
nýtt sér fjölbreytta hljóð- og myndmiðla til upplýsingar og afþreyingar og tekið afstöðu til þess sem þar er birt [MIÐ (10)]
|
Lestur og lesskilningur
Yfirheiti
|
Við lok 4. bekkjar getur nemandi
|
Við lok 7. bekkjar getur nemandi
|
Við lok 10. bekkjar getur nemandi
|
Lesfimi
|
beitt aðferðum við umskráningu hljóða og stafa svo lestur flæði vel og merking texta komist til skila [LSF (4)]
|
lesið texta við hæfi á nákvæman og sjálfvirkan hátt og með tjáningu sem sýnir skilning á tilgangi og merkingu texta [LSF (7)]
|
lesið fjölbreytta texta af öryggi, í góðu flæði og í viðeigandi hendingum og með tjáningu í samræmi við aðstæður hverju sinni [LSF (10)]
|
Lestraraðferðir
|
þekkt og beitt einföldum aðferðum við lestur og tilgreint dæmi um ólíkan tilgang lestrar [LSA (4)]
|
beitt lestraraðferðum sem hæfa tilgangi og viðfangsefni hverju sinni [LSA (7)]
|
valið og beitt fjölbreyttum lestraraðferðum sem hæfa tilgangi og viðfangsefni hverju sinni [LSA (10)]
|
Orðaforði
|
beitt góðum orðaforða við að skilja texta og notað einfaldar aðferðir til að ráða í merkingu ókunnra orða [ORÐ (4)]
|
beitt fjölbreyttum orðaforða og fyrri þekkingu til að mynda samhengi og skilning í lestri og notað aðferðir til að ráða í merkingu ókunnra orða og orðasambanda [ORÐ (7)]
|
beitt ríkulegum orðaforða, fyrri þekkingu og reynslu til að mynda samhengi og skilning í lestri og notað fjölbreyttar aðferðir til að efla orðaforða sinn [ORÐ (10)]
|
Lesskilningur
|
skilið augljós efnisatriði valinna texta, greint og lagt mat á inntak þeirra og dregið einfaldar ályktanir [LSS (4)]
|
skilið, fjallað um og dregið saman efni ólíkra texta, dregið ályktanir af efninu, greint og lagt mat á merkingu þeirra og tilgang á gagnrýninn hátt [LSS (7)]
|
skilið og fjallað um fjölbreytta texta, greint þá og borið saman á margvíslegan hátt og lagt rökstutt og gagnrýnið mat á inntak þeirra og eiginleika [LSS (10)]
|
Lestrarmenning
|
valið og lesið sér til ánægju fjölbreytt lesefni sem hæfir aldri [LSM (4)]
|
valið og lesið sér til gagns og ánægju fjölbreytta texta og miðlað áhuga sínum og skoðunum til annarra [LSM (7)]
|
valið og lesið sér til gagns og ánægju fjölbreytta texta, unnið með efni þeirra á fjölbreyttan hátt og miðlað til annarra [LSM (10)]
|
Bókmenntir
Yfirheiti
|
Við lok 4. bekkjar getur nemandi
|
Við lok 7. bekkjar getur nemandi
|
Við lok 10. bekkjar getur nemandi
|
Lestur og túlkun bókmennta
|
unnið með ævintýri, sögur og ljóð ætluð börnum [LTB (4)]
|
lesið ýmsar bókmenntir og unnið með efni þeirra á fjölbreyttan hátt [LTB (7)]
|
lesið, túlkað, metið og fjallað um fjölbreyttar íslenskar og erlendar bókmenntir [LTB (10)]
|
Bókmennta-greining
|
beitt einföldum bókmenntahugtökum í umfjöllun um bókmenntir [BGR (4)]
|
beitt nokkrum grunnhugtökum í bókmenntafræði við umfjöllun um fjölbreyttar bókmenntir [BGR (7)]
|
beitt algengum hugtökum í bókmenntafræði við greiningu og umfjöllun um fjölbreyttar bókmenntir frá ýmsum tímum [BGR (10)]
|
Bókmennta-arfurinn
|
lesið einfalda texta frá fyrri tímum og sett sig í spor persóna og lesenda í fortíðinni [BAR (4)]
|
lesið einfalda texta frá fyrri tímum og áttað sig á því að þeir mótist af sögulegu samhengi [BAR (7)]
|
lesið og skilið texta frá fyrri tímum, áttað sig á því að þeir mótist af sögulegu samhengi og borið saman við eigin samtíð [BAR (10)]
|
Ljóð
|
áttað sig á grunn-einkennum ljóða og unnið með innihald þeirra [LJÓ (4)]
|
notað einföld bókmenntahugtök í umræðu og vinnu með innihald og einkenni ljóða frá ólíkum tímum [LJÓ (7)]
|
notað algeng bókmenntahugtök í umfjöllun um bundið mál og óbundið og lesið og túlkað fjölbreytt ljóð frá ýmsum tímum [LJÓ (10)]
|
Ritun
Yfirheiti
|
Við lok 4. bekkjar getur nemandi
|
Við lok 7. bekkjar getur nemandi
|
Við lok 10. bekkjar getur nemandi
|
Skrift og frágangur
|
dregið rétt til stafs, skrifað skýrt og læsilega og á lyklaborð [SKF (4)]
|
miðlað texta í gegnum sjálfvirka og læsilega skrift og fyrirhafnarlítinn innslátt á lyklaborð og gengið frá texta samkvæmt fyrirmælum [SKF (7)]
|
haft vald á ólíkum leiðum til að miðla rituðu máli og getur valið þá leið sem hentar tilgangi og lesendum [SKF (10)]
|
Uppbygging texta
|
búið til setningar og málsgreinar og notað til þess algengar samtengingar [UBT (4)]
|
skrifað texta þar sem málsgreinar eru fjölbreyttar og texta er skipt upp í efnisgreinar [UBT (7)]
|
skrifað texta þar sem efnisatriðum er skipað í röklegt samhengi, góður þráður er á milli efnisgreina og kaflaskipting er skýr [UBT (10)]
|
Textategundir og málnotkun
|
skrifað ólíkar textategundir og skilur að hverjum texta er ætlað ákveðið hlutverk [TTM (4)]
|
skipulagt og orðað texta á þann hátt sem hæfir tilefni, viðtakendum og birtingarformi [TTM (7)]
|
beitt ríkulegu tungutaki, fjölbreyttum orðaforða og málsniði í texta eftir því hver tilgangur skrifanna er, fyrir hvaða viðtakendur er skrifað og hvaða birtingarform er valið [TTM (10)]
|
Tjáning í texta
|
sett fram eigin hugmynd í texta, metið og lagfært með eða án hjálpargagna [TJT (4)]
|
tjáð hugmyndir sínar, reynslu og sköpun í texta, metið, mótað og endurskrifað með hliðsjón af hjálpargögnum [TJT (7)]
|
samið fjölbreyttan texta til að tjá hugmyndir, skoðanir, reynslu og sköpunarkraft, metið og endurbætt með hliðsjón af gagnrýni og hjálpargögnum [TJT (10)]
|
Stafsetning og greinarmerkja-setning
|
beitt einföldum stafsetningarreglum og einföldum reglum við greinarmerkjasetningu [STS (4)]
|
beitt algengum atriðum stafsetningar og greinarmerkjasetningar og notað tiltæk hjálpargögn við hæfi [STS (7)]
|
beitt helstu atriðum stafsetningar og greinarmerkjasetningar og notað til þess reglur um réttritun og önnur hjálpartæki [STS (10)]
|
Mál og málnotkun
Yfirheiti
|
Við lok 4. bekkjar getur nemandi
|
Við lok 7. bekkjar getur nemandi
|
Við lok 10. bekkjar getur nemandi
|
Einkenni málsins
|
þekkt og rætt ýmis einkenni málsins [EKM (4)]
|
beitt málfræðiþekkingu sinni í umræðu um ýmis einkenni málsins og málnotkun sína [EKM (7)]
|
beitt málfræðiþekkingu sinni í umræðu um tungumálið, þróun og einkenni þess og nýtt hana í eigin málnotkun [EKM (10)]
|
Fjölbreytt málnotkun
|
beitt töluðu máli og rituðu af nokkru öryggi og með orðaforða og málskilningi sem hæfir aldri [FMN (4)]
|
notað góðan orðaforða í ræðu og riti og nýtt sér fjölbreytt málsnið við orðmyndun, tal og ritun [FMN (7)]
|
áttað sig á fjölbreyttum tilbrigðum í orðaforða og málnotkun og beitt mismunandi málsniði eftir efni og tilefni í ræðu og riti [FMN (10)]
|
Sköpunarkraftur
|
áttað sig á sköpunarmætti tungumálsins svo sem með því að ríma og fara í orðaleiki [SKP (4)]
|
nýtt orðaforða sinn til að skapa ný orð og orðasambönd og notað þau í texta [SKP (7)]
|
áttað sig á og beitt sköpunarmætti tungumálsins og nýtt það m.a. við ritun, tal, nýyrðasmíð, í orðaleikjum og skáldskap [SKP (10)]
|
Orðflokkar
|
áttað sig á mismunandi hlutverki nafnorða, lýsingarorða og sagnorða [FLO (4)]
|
áttað sig á hvernig orðaforðinn skiptist í sagnorð, fallorð og óbeygjanleg orð og greint hlutverk og helstu einkenni þeirra [FLO (7)]
|
áttað sig á beygingarlegum og merkingarlegum einkennum orðflokka og gert sér grein fyrir hlutverki þeirra í eigin texta og annarra [FLO (10)]
|
Orðtök og málshættir
|
leikið sér með margræðni tungumálsins svo sem í gegnum orðtök, einfalda málshætti og föst orðasambönd [ORM (4)]
|
notað algeng orðtök og málshætti í töluðu máli og rituðu og greint notagildi þeirra í texta [ORM (7)]
|
beitt fleygum orðum, algengum orðtökum, málsháttum og föstum orðasamböndum í máli sínu [ORM (10)]
|
Gögn og hjálpartæki
|
raðað í stafrófsröð og gert sér grein fyrir notagildi þess við leit og skipulag [GHJ (4)]
|
nýtt sér kunnáttu og færni til að fletta upp orðum í orðabókum og öðrum gagnabrunnum um tungumál [GHJ (7)]
|
nýtt fjölbreytt hjálpartæki til að afla sér upplýsinga um tungumálið og styðja við notkun þess [GHJ (10)]
|