Heillandi verkefni í náttúruvísindum/Hreyfum vegg

Úr Kennarakvikan

Útgáfa frá 12. nóvember 2024 kl. 22:31 eftir Martin (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. nóvember 2024 kl. 22:31 eftir Martin (spjall | framlög) (Ný síða: right|400px == Markmið == Þetta verkefni snýst um það að greina örlitla hreyfingu á vegg eða annarri álíka fyrirstöðu. == Áhöld og efni == * Sívalningslaga öxull * Leisigeisli * Speglandi flötur (hvers kyns plastbútur sem speglar hluta leisigeislans dugar) * Kennaratyggjó * Spýta til að festa við vegginn * Undirstaða (t.d. kollur eða lítið borð) == Framkvæmd == <div class="skref-listi"> {{skref|Undirst...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)

Markmið[breyta | breyta frumkóða]

Þetta verkefni snýst um það að greina örlitla hreyfingu á vegg eða annarri álíka fyrirstöðu.

Áhöld og efni[breyta | breyta frumkóða]

  • Sívalningslaga öxull
  • Leisigeisli
  • Speglandi flötur (hvers kyns plastbútur sem speglar hluta leisigeislans dugar)
  • Kennaratyggjó
  • Spýta til að festa við vegginn
  • Undirstaða (t.d. kollur eða lítið borð)

Framkvæmd[breyta | breyta frumkóða]

Undirstöðunni er komið fyrir nærri fyrirstöðunni (veggnum) sem mæla skal hreyfinguna á og öxullinn lagður á hana.
Spýtan lagð á öxulinn og fest við fyrirstöðuna (vegginn) með kennaratyggjói.
Speglandi flötur festur við öxulinn og leisigeislinn látinn lýsa á spegilinn þannig að geilsinn lendi á einhverjum fleti (t.d. öðrum vegg).
Ýtt er á vegginn og fylgst með þegar leisigeislinn hreyfist.


Ítarefni[breyta | breyta frumkóða]

Hvað er að gerast?[breyta | breyta frumkóða]

Öll efni, hversu stíf sem þau virðast, gefa eitthvað eftir þegar verkað er á þau með krafti. Þegar við þrýstum á steinvegg eða stálsúlu tökum við hins vegar afar lítið eftir nokkurri aflögun því hún er afar lítil. Í tilfelli uppstillingarinnar hér að ofan veldur færslan því að öxullinn veltur um örlítið horn, en þar sem leisigeislinn speglast um nokkuð langa vegalengd veldur þetta ofursmáa horn sjáanlegri breytingu á því hvar leisigeislinn lendir.