Efnisheimurinn/Vertu gul

Úr Kennarakvikan

Útgáfa frá 6. janúar 2025 kl. 15:53 eftir Martin (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. janúar 2025 kl. 15:53 eftir Martin (spjall | framlög) (Ný síða: :'''''Úr skýringum við myndband:''' "Þessi tilraun byggist á sýrustigi. Kranavatn á Íslandi er alla jafnan basískt, sýrustig (pH) þess 8 eða hærra. Í loftinu sem við öndum frá okkur er talsvert magn af koltvíoxíði (CO 2). Þegar koltvíoxíð kemur í vatn myndast kolsýra (H2CO3): :: <chem>CO2(g) + H2 O(l) -> H2CO3(aq)</chem> : ''Við þetta lækkar sýrustig vatnsins. Í sýnitilrauninni er notaður sérstakur litvísir, fenólrautt. Líkt og á við um að...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)

Úr skýringum við myndband: "Þessi tilraun byggist á sýrustigi. Kranavatn á Íslandi er alla jafnan basískt, sýrustig (pH) þess 8 eða hærra. Í loftinu sem við öndum frá okkur er talsvert magn af koltvíoxíði (CO 2). Þegar koltvíoxíð kemur í vatn myndast kolsýra (H2CO3):
Við þetta lækkar sýrustig vatnsins. Í sýnitilrauninni er notaður sérstakur litvísir, fenólrautt. Líkt og á við um aðra litvísa er litur þessa litvísis háður sýrustigi. Í basísku vatni er fenólrautt rautt á litinn en þegar sýrustigið fer niður fyrir 7 verður það gult. Með því einu að anda vel ofan í lausnina (vatnið) lækkar maður sýrustigið nógu mikið til að litur litvísisins breytist."