Efnisheimurinn/Mjólk og borðedik

Úr Kennarakvikan

Mjólk er efnablanda sem samanstendur af mörgum efnum. Að miklu leyti vatni en einnig ýmsum próteinum, fitu, og kolvetnum, en einnig vítamínum og steinefnum. Það er ekki einfalt mál að einangra efnin úr mjólkinni en hægt er að sía stóran hluta próteinanna frá með því að ysta mjólkina annað hvort með því að hita hana eða, eins og við ætlum að gera hér, lækka sýrustigið (og þar með gera blönduna súrari) með því að bæta veikri sýru út í.

Framkvæmdalýsing[breyta | breyta frumkóða]

Efni og áhöld[breyta | breyta frumkóða]

Framkvæmd[breyta | breyta frumkóða]

Helltu um 50-100 ml af mjólk í bikarglas, bættu svo um einni matskeið af borðediki (4% ediksýra í vatni) í mjólkina, og hrærðu aðeins í.
Þegar blandan er búin að kekkjast skaltu stilla upp trekt með síupappír ofan í keiluflösku og helltu blöndunni í trektina til að sía próteinkekkina frá blöndunni.
Fylgstu með hvernig vökvinn sem rennur niður í keiluflöskuna lítur út og ræddu við bekkjarfélagana hvaða efni kunni að vera í blöndunni nú þegar próteinin hafa verið skilin frá.


Ítarefni[breyta | breyta frumkóða]

Hvað er að gerast?[breyta | breyta frumkóða]

Úr skýringum við myndband: "Myndskeiðið talar sínu máli. Vert er að benda nemendum á að mjólk er að mestum hluta vatn og að það sem sést renna gegnum síupappírinn er að mestu leyti vatn. (Sumir nemendur halda að þetta sé bara borðedikið sem notað var í byrjun.)"

Þegar ediksýrunni er bætt út í mjólkina lækkar sýrustigið (blandan verður súrari). Sameindir sem kallast kasín eða ostefni dragast að hvor annarri og mynda við það kekki sem svífa um í blöndunni sem eftir stendur og kallast mysa.

Ostefnið má, eins og nafnið ber með sér, nota til að búa til ost. Það hefur hins vegar margvísleg önnur not, t.a.m. lím- og plastgerðar.

Leiðbeiningar á öðrum síðum[breyta | breyta frumkóða]

Lesefni um efnahvarfið[breyta | breyta frumkóða]