Efnisheimurinn/Áhrif koltvíoxíðs á sýrustig vatns

Úr Kennarakvikan
Úr skýringum við myndband: "Þetta er leikur með sýrustig og litvísi, í þessu tilviki BTB sem er blátt í basísku vatni en gult í súru vatni. Þegar lofti er dælt í gegnum blátt (basískt) BTB-vatn verður engin breyting. Blási maður hins vegar í gegnum slíka lausn með sogröri verður vatnið gult (súrt). Þetta stafar af því að í útöndunarlofti er mun meira (4%) af koltvíoxíði () en í andrúmslofti (0,004%). Þegar koltvíoxíðið kemur í vatn myndast kolsýra (H 2CO3) sem gerir vatnið eilítið súrt:
Þetta skýrir litabreytinguna. Útöndunarloftið geymir nægilega mikið af koltvíoxíði til að hafa áhrif á sýrustig vatnsins."