Efnisheimurinn/Athugun á stálull og álpappír
Úr Kennarakvikan
- Úr skýringum við myndband: "Myndskeiðið talar sínu máli. Því má e.t.v. bæta við að ryðmyndun felur í sér að járn gengur í efnasamband við súrefni og vatn. Við þetta oxast járnið en það þýðir að það verður að jónum (Fe 2+ og Fe3+). Þetta á almennt við þegar málmar oxast, þ.e. málmurinn fer yfir á jónir. Þetta gerist til dæmis í náttúrunni þar sem grunnvatn rennur um berg. Það leysir upp málma í berginu. Málmarnir ummyndast þá í jónir sem berast með vatninu, gjarnan langar leiðir. Þetta skýrir þá staðreynd að í venjulegu vatni er alltaf eitthvert magn af málmjónum."