„Tink@School“: Munur á milli breytinga

Úr Kennarakvikan

Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 10: Lína 10:
{{Spjald|/Hreyfanlegt skilti||Mynd:MinniSkilti.png }}
{{Spjald|/Hreyfanlegt skilti||Mynd:MinniSkilti.png }}
{{Spjald|/Regnsafnari||Mynd:MinniRegn.jpg}}
{{Spjald|/Regnsafnari||Mynd:MinniRegn.jpg}}
{{Spjald|/Poki fyrir jörðina||Mynd:Poki1.png}}
{{Spjald|/Poki fyrir jörðina||Mynd:MinniPoki.jpg}}
{{Spjald|/Skuggalist með (sjávar) rusli||Mynd:MinniSkuggi.jpg}}
{{Spjald|/Skuggalist með (sjávar) rusli||Mynd:MinniSkuggi.jpg}}
{{Spjald|/Sjálfbært skraut||Mynd:Tinker at School - Sjálfbært skraut.webp}}
{{Spjald|/Sjálfbært skraut||Mynd:Tinker at School - Sjálfbært skraut.webp}}

Útgáfa síðunnar 14. febrúar 2025 kl. 11:28

Tinkering má lýsa sem aðferð sem felur í sér að „fikta og fikra sig áfram“ og hefur hún notið vaxandi vinsælda bæði í formlegu og óformlegu námi. Tinkering byggir á skapandi hugsun þar sem nemendur vinna saman að því að leysa ákveðin vandamál, þar sem þeir öðlast ekki bara tiltekna þekkingu heldur efla einnig gagnrýna hugsun, og  samstarfs- og samskiptahæfni. Aðferðin styður nemendur í að takast á við óvissu, þar sem mörg viðfangsefnin sem unnið er að eiga sér enga augljósa lausn. Tink@school samstarfsverkefninu (Erasmus +) voru þróuð 11 kennsluverkefni um sjálfbærni og loftslagsmál fyrir miðstig grunnskóla (nemendur á aldrinum 8 til 12 ára). Verkefnin má auðveldlega aðlaga að fleiri aldurshópum og henta til dæmis í kennslustundum, sköpunarsmiðjum og í tómstundastarfi. Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins - https://tinkeringschool.eu/


Tinkering verkefnin (11 verkefni)