„Hæfniviðmið skólaíþrótta“: Munur á milli breytinga
Úr Kennarakvikan
(Ný síða: <div style="float: right">__TOC__</div> Hér má finna yfirlit yfir hæfniviðmið [https://adalnamskra.is/adalnamskra-grunnskola/kafli-19 íslenskukafla Aðalnámsskrár grunnskóla] ásamt hlekkjum á undirsíður þar sem koma má fyrir ítarfefni fyrir hvert hæfniviðmið. Markmiðið er ekki að hægt sé að fara í hæfniviðmið og „tikka í boxin“ heldur frekar að gefa dæmi um hvers kyns verkefni megi nýta til að ná þess lags hæfniviðmiði. Slíkt styður v...) |
m (Martin færði Verkefni fyrir hæfniviðmið skólaíþrótta á Hæfniviðmið skólaíþrótta án þess að skilja eftir tilvísun: Útvíkkun hlutverks) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 23. mars 2025 kl. 07:48
Hér má finna yfirlit yfir hæfniviðmið íslenskukafla Aðalnámsskrár grunnskóla ásamt hlekkjum á undirsíður þar sem koma má fyrir ítarfefni fyrir hvert hæfniviðmið. Markmiðið er ekki að hægt sé að fara í hæfniviðmið og „tikka í boxin“ heldur frekar að gefa dæmi um hvers kyns verkefni megi nýta til að ná þess lags hæfniviðmiði. Slíkt styður við heildstæðari skoðun á efni og þeim kröfum sem kennarar gera til nemenda. Eins er vert að benda á ágæta áminningu úr tillögunni:
„Þegar sjónum er beint sérstaklega að einu hæfniviðmiði þarf að hafa í huga að nám er samfellt ferli og skapandi athöfn, fremur en söfnun afmarkaðrar þekkingar og þjálfun í tiltekinni leikni.“
Líkamsvitund, færni og afkastageta
Yfirheiti | Við lok 4. bekkjar getur nemandi | Við lok 7. bekkjar getur nemandi | Við lok 10. bekkjar getur nemandi |
---|---|---|---|
Þol | gert æfingar sem reyna á þol í íþróttum [] | gert æfingar sem reyna á loftháð þol í íþróttum [] | gert æfingar sem reyna á loftháð og loftfirrt þol í íþróttum [] |
Styrkur | gert æfingar sem styrkja hreyfifærni líkamans [] | gert æfingar með eigin líkamsþyngd sem reyna á styrk og stöðugleika [] | sýnt og framkvæmt styrktaræfingar sem bæta líkamsstöðu, kraftúthald og styrk bæði í kyrrstöðu og á hreyfingu [] |
Liðleiki | gert almennar liðleikaæfingar [] | gert æfingar sem reyna á liðleika og hreyfigetu [] | gert liðleikaæfingar sem reyna á hreyfivídd og hreyfigetu [] |
Samhæfing | gert hreyfingar sem styðja við samhæfingu hægri og vinstri [] | sýnt útfærslu hreyfinga þannig að þær renni vel saman [] | sýnt útfærslu flókinna hreyfinga þannig að þær renni vel saman [] |
Taktur | gert einfaldar rytmískar æfingar [] | gert einfaldar rytmískar æfingar og fylgt takti [] | gert rytmískar æfingar og fylgt takti [] |
Hópíþróttir | tekið þátt í boltaleikjum og sýnt boltafærni [] | tekið þátt í mismunandi hópíþróttagreinum [] | tekið þátt í hópíþróttum [] |
Einstaklings-íþróttir | tekið þátt í æfingum með áherslu á mótun hreyfiþroska [] | tekið þátt í einstaklingsíþróttum [] | tekið þátt í einstaklingsíþróttum og heilsurækt [] |
Stöðluð próf | tekið þátt í stöðluðum prófum [] | nýtt sér stöðluð próf í íþróttum til að meta eigið þrek og hreysti [] | nýtt sér stöðluð próf í íþróttum til að meta eigið þrek og hreysti, lipurð og samhæfingu [] |
Félagslegir þættir
Yfirheiti | Við lok 4. bekkjar getur nemandi | Við lok 7. bekkjar getur nemandi | Við lok 10. bekkjar getur nemandi |
---|---|---|---|
Tilfinningar | skilið þær tilfinningar sem fylgja því að vinna og tapa í leik [] | skilið mikilvægi jákvæðra samskipta [] | skilið mikilvægi gagnkvæmrar virðingar og góðrar framkomu til að efla liðsandann [] |
Virkni | sýnt virkni og vinnusemi í æfingum og leikjum [] | skilið mikilvægi stundvísi, aga og sjálfstæðra vinnubragða í tengslum við góðan árangur [] | skilið mikilvægi góðrar ástundunar og sjálfsaga í tengslum við góðan árangur [] |
Leikreglur | skilið einfaldar leikreglur og tekið þátt í leikjum [] | þekkt helstu leikreglur í leikjum, hóp- og einstaklingsíþróttum [] | þekkt mismunandi tegundir leikreglna í hóp- og einstaklingsíþróttum [] |
Háttvísi | skilið mikilvægi leikreglna og farið eftir þeim [] | farið eftir leikreglum og sýnt háttvísi í leik [] | farið eftir leikreglum og sýnt háttvísi í leik og hvatt til jákvæðrar framkomu við samherja og mótherja [] |
Heilsa og heilsuefling
Yfirheiti | Við lok 4. bekkjar getur nemandi | Við lok 7. bekkjar getur nemandi | Við lok 10. bekkjar getur nemandi |
---|---|---|---|
Markmiðasetning, íþróttir | sett sér einföld markmið í íþróttum [] | sett sér langtímamarkmið í íþróttum [] | unnið með og sett sér skammtíma- og langtímamarkmið í íþróttum [] |
Markmiðasetning, heilsurækt | sett sér einföld markmið í heilsurækt [] | sett sér langtímamarkmið í heilsurækt [] | unnið með og sett sér skammtíma- og langtímamarkmið í heilsurækt og metið árangur [] |
Markmiðasetning, hreyfifærni | nýtt sér niðurstöður úr stöðluðum prófum til að vinna að bættri hreyfifærni [] | nýtt sér niðurstöður úr stöðluðum prófum til að vinna að eflingu hreyfingar [] | nýtt sér niðurstöður úr stöðluðum prófum til að móta eigin þjálfunaráætlun [] |
Líffræðiþekking | þekkt helstu líkamshluta [] | tengt hlutverk taugakerfis, hjarta, blóðrásar og lungna við líkamlega áreynslu [] | vitað hvaða hlutverk helstu vöðvahópar hafa í tengslum við þjálfun líkamans [] |
Útivistarbúnaður | skilið gildi viðeigandi fatnaðar og búnaðar til útivistar og notkunar hans [] | valið viðeigandi fatnaðar og mikilvægan búnað til útivistar og nýtt hann [] | valið og nýtt sér viðeigandi fatnað og nauðsynlegan búnað sem hæfir valinni útivist [] |
Útivist | tekið þátt í skipulagðri útivist í náttúrunni og áttað sig á og varast hættur sem fylgt geta [] | skipulagt að einhverju leyti útivist í fjölbreyttu landslagi, tekið þátt, fylgt áætlunum og varast hættur sem fylgt geta [] | skipulagt, tekið þátt og fylgt áætlun um útivist í mismunandi aðstæðum og varast hættur sem fylgt geta [] |
Heilsuefling | þekkt hvað felst í heilsueflandi líferni [] | sýnt almenna þekkingu á heilsueflandi líferni [] | sýnt og skilið mikilvægi eigin ábyrgðar á líkamlegu og andlegu heilbrigði og líkamlegu ásigkomulagi [] |
Heilsurækt | tekið þátt í heilsurækt í nærumhverfi [] | tekið þátt í alhliða heilsurækt sem er í boði utan skóla [] | sótt og nýtt sér upplýsingar um alhliða heilsurækt sem er í boði utan skóla [] |
Mælingar | gert einfaldar mælingar og talningar í leikjum eða æfingum [] | notað mælingar til að leggja mat á lipurð og samhæfingu [] | notað mælingar til að leggja mat á eigin afkastagetu með tilliti til þreks, hreysti, lipurðar og samhæfingar [] |
Virkni | tekið þátt í leikjum [] | tekið þátt og sýnt virkni í leikjum [] | tekið þátt í leikjum af margvíslegu tagi [] |
Öryggi og hreinlæti
Yfirheiti | Við lok 4. bekkjar getur nemandi | Við lok 7. bekkjar getur nemandi | Við lok 10. bekkjar getur nemandi |
---|---|---|---|
Öryggisreglur | Þekkt til helstu öryggisreglna í skólaíþróttum [] | gert sér grein fyrir mikilvægi helstu öryggis- og umgengnisreglna og brugðist við óhöppum [] | tekið ákvarðanir á grundvelli öryggis- og umgengnisreglna og brugðist við óvæntum aðstæðum [] |
Skyndihjálp | gert viðvart ef óhapp verður [] | framkvæmt grunnatriði skyndihjálpar [] | framkvæmt og útskýrt helstu atriði skyndihjálpar, endurlífgunar og björgunar [] |
Hreinlæti | skilið mikilvægi hreinlætis í tengslum allar við íþróttir [] | skilið mikilvægi eigin ábyrgðar á hreinlæti og heilbrigði við alla íþróttaiðkun [] | fundið til eigin ábyrgðar á hreinlæti og heilbrigði við alla íþróttaiðkun [] |
Sund
Yfirheiti | Við lok 4. bekkjar getur nemandi | Við lok 7. bekkjar getur nemandi | Við lok 10. bekkjar getur nemandi |
---|---|---|---|
Fjölbreyttar sundaðferðir | tekið þátt í fjölbreyttum leikjum í vatni [] | beitt fjölbreyttum sundaðferðum [] | sýnt leikni í vatni og beitt fjölbreyttum sundaðferðum [] |
Heilsuefling | notið sín í vatni [] | eflt eigin heilsu í vatni [] | tekið þátt í fjölbreyttum leiðum til að efla eigin heilsu í vatni [] |
Þolsund | gert æfingar sem reyna á þol í 100 metra sundi [] | gert æfingar sem reyna á loftháð þol í 300 metra sundi [] | gert æfingar sem reyna á loftháð þol í 600 metra sundi [] |
Sprettsund | gert æfingar sem reyna á loftfirrt þol í 8 metra sundi [] | gert æfingar sem reyna á loftfirrt þol í 12 metra sundi [] | gert æfingar sem reyna á loftfirrt þol í 25 metra sprettsundi [] |
Bringusund | synt 12 metra bringusund með eða án hjálpartækja [] | sýnt leikni og synt 25 metra bringusund viðstöðulaust [] | sýnt leikni og synt 50 metra bringusund viðstöðulaust [] |
Baksund | synt 12 metra skólabaksund og baksund með eða án hjálpartækja [] | sýnt leikni og synt 25 metra baksund viðstöðulaust [] | sýnt leikni og synt 50 metra baksund viðstöðulaust [] |
Skriðsund | synt 12 metra skriðsund með eða án hjálpartækja [] | sýnt leikni og synt 25 metra skriðsund viðstöðulaust [] | sýnt leikni og synt 50 metra skriðsund viðstöðulaust [] |
Kafsund | synt 5 metra kafsund viðstöðulaust [] | sýnt leikni og synt 8 metra kafsund viðstöðulaust [] | sýnt leikni og synt 15 metra kafsund viðstöðulaust [] |
Björgunarsund | bjargað sér í vatni [] | synt björgunarsund með jafningja að lágmarki 12 metra [] | synt björgunarsund með jafningja að lágmarki 25 metra [] |
Björgun | framkvæmt björgun úr vatni og notast við björgunaráhöld [] | ||
Þol í vatni | troðið marvaða í hálfa mínútu [] | troðið marvaða í eina mínútu [] |