Hæfniviðmið skólaíþrótta

Úr Kennarakvikan

Útgáfa frá 23. mars 2025 kl. 07:48 eftir Martin (spjall | framlög) Útgáfa frá 23. mars 2025 kl. 07:48 eftir Martin (spjall | framlög) (Martin færði Verkefni fyrir hæfniviðmið skólaíþrótta á Hæfniviðmið skólaíþrótta án þess að skilja eftir tilvísun: Útvíkkun hlutverks)

Hér má finna yfirlit yfir hæfniviðmið íslenskukafla Aðalnámsskrár grunnskóla ásamt hlekkjum á undirsíður þar sem koma má fyrir ítarfefni fyrir hvert hæfniviðmið. Markmiðið er ekki að hægt sé að fara í hæfniviðmið og „tikka í boxin“ heldur frekar að gefa dæmi um hvers kyns verkefni megi nýta til að ná þess lags hæfniviðmiði. Slíkt styður við heildstæðari skoðun á efni og þeim kröfum sem kennarar gera til nemenda. Eins er vert að benda á ágæta áminningu úr tillögunni:

„Þegar sjónum er beint sérstaklega að einu hæfniviðmiði þarf að hafa í huga að nám er samfellt ferli og skapandi athöfn, fremur en söfnun afmarkaðrar þekkingar og þjálfun í tiltekinni leikni.“

Líkamsvitund, færni og afkastageta

Yfirheiti Við lok 4. bekkjar getur nemandi Við lok 7. bekkjar getur nemandi Við lok 10. bekkjar getur nemandi
Þol gert æfingar sem reyna á þol í íþróttum [] gert æfingar sem reyna á loftháð þol í íþróttum [] gert æfingar sem reyna á loftháð og loftfirrt þol í íþróttum []
Styrkur gert æfingar sem styrkja hreyfifærni líkamans [] gert æfingar með eigin líkamsþyngd sem reyna á styrk og stöðugleika [] sýnt og framkvæmt styrktaræfingar sem bæta líkamsstöðu, kraftúthald og styrk bæði í kyrrstöðu og á hreyfingu []
Liðleiki gert almennar liðleikaæfingar [] gert æfingar sem reyna á liðleika og hreyfigetu [] gert liðleikaæfingar sem reyna á hreyfivídd og hreyfigetu []
Samhæfing gert hreyfingar sem styðja við samhæfingu hægri og vinstri [] sýnt útfærslu hreyfinga þannig að þær renni vel saman [] sýnt útfærslu flókinna hreyfinga þannig að þær renni vel saman []
Taktur gert einfaldar rytmískar æfingar [] gert einfaldar rytmískar æfingar og fylgt takti [] gert rytmískar æfingar og fylgt takti []
Hópíþróttir tekið þátt í boltaleikjum og sýnt boltafærni [] tekið þátt í mismunandi hópíþróttagreinum [] tekið þátt í hópíþróttum []
Einstaklings-íþróttir tekið þátt í æfingum með áherslu á mótun hreyfiþroska [] tekið þátt í einstaklingsíþróttum [] tekið þátt í einstaklingsíþróttum og heilsurækt []
Stöðluð próf tekið þátt í stöðluðum prófum [] nýtt sér stöðluð próf í íþróttum til að meta eigið þrek og hreysti [] nýtt sér stöðluð próf í íþróttum til að meta eigið þrek og hreysti, lipurð og samhæfingu []

Félagslegir þættir

Yfirheiti Við lok 4. bekkjar getur nemandi Við lok 7. bekkjar getur nemandi Við lok 10. bekkjar getur nemandi
Tilfinningar skilið þær tilfinningar sem fylgja því að vinna og tapa í leik [] skilið mikilvægi jákvæðra samskipta [] skilið mikilvægi gagnkvæmrar virðingar og góðrar framkomu til að efla liðsandann []
Virkni sýnt virkni og vinnusemi í æfingum og leikjum [] skilið mikilvægi stundvísi, aga og sjálfstæðra vinnubragða í tengslum við góðan árangur [] skilið mikilvægi góðrar ástundunar og sjálfsaga í tengslum við góðan árangur []
Leikreglur skilið einfaldar leikreglur og tekið þátt í leikjum [] þekkt helstu leikreglur í leikjum, hóp- og einstaklingsíþróttum [] þekkt mismunandi tegundir leikreglna í hóp- og einstaklingsíþróttum []
Háttvísi skilið mikilvægi leikreglna og farið eftir þeim [] farið eftir leikreglum og sýnt háttvísi í leik [] farið eftir leikreglum og sýnt háttvísi í leik og hvatt til jákvæðrar framkomu við samherja og mótherja []

Heilsa og heilsuefling

Yfirheiti Við lok 4. bekkjar getur nemandi Við lok 7. bekkjar getur nemandi Við lok 10. bekkjar getur nemandi
Markmiðasetning, íþróttir sett sér einföld markmið í íþróttum [] sett sér langtímamarkmið í íþróttum [] unnið með og sett sér skammtíma- og langtímamarkmið í íþróttum []
Markmiðasetning, heilsurækt sett sér einföld markmið í heilsurækt [] sett sér langtímamarkmið í heilsurækt [] unnið með og sett sér skammtíma- og langtímamarkmið í heilsurækt og metið árangur []
Markmiðasetning, hreyfifærni nýtt sér niðurstöður úr stöðluðum prófum til að vinna að bættri hreyfifærni [] nýtt sér niðurstöður úr stöðluðum prófum til að vinna að eflingu hreyfingar [] nýtt sér niðurstöður úr stöðluðum prófum til að móta eigin þjálfunaráætlun []
Líffræðiþekking þekkt helstu líkamshluta [] tengt hlutverk taugakerfis, hjarta, blóðrásar og lungna við líkamlega áreynslu [] vitað hvaða hlutverk helstu vöðvahópar hafa í tengslum við þjálfun líkamans []
Útivistarbúnaður skilið gildi viðeigandi fatnaðar og búnaðar til útivistar og notkunar hans [] valið viðeigandi fatnaðar og mikilvægan búnað til útivistar og nýtt hann [] valið og nýtt sér viðeigandi fatnað og nauðsynlegan búnað sem hæfir valinni útivist []
Útivist tekið þátt í skipulagðri útivist í náttúrunni og áttað sig á og varast hættur sem fylgt geta [] skipulagt að einhverju leyti útivist í fjölbreyttu landslagi, tekið þátt, fylgt áætlunum og varast hættur sem fylgt geta [] skipulagt, tekið þátt og fylgt áætlun um útivist í mismunandi aðstæðum og varast hættur sem fylgt geta []
Heilsuefling þekkt hvað felst í heilsueflandi líferni [] sýnt almenna þekkingu á heilsueflandi líferni [] sýnt og skilið mikilvægi eigin ábyrgðar á líkamlegu og andlegu heilbrigði og líkamlegu ásigkomulagi []
Heilsurækt tekið þátt í heilsurækt í nærumhverfi [] tekið þátt í alhliða heilsurækt sem er í boði utan skóla [] sótt og nýtt sér upplýsingar um alhliða heilsurækt sem er í boði utan skóla []
Mælingar gert einfaldar mælingar og talningar í leikjum eða æfingum [] notað mælingar til að leggja mat á lipurð og samhæfingu [] notað mælingar til að leggja mat á eigin afkastagetu með tilliti til þreks, hreysti, lipurðar og samhæfingar []
Virkni tekið þátt í leikjum [] tekið þátt og sýnt virkni í leikjum [] tekið þátt í leikjum af margvíslegu tagi []

Öryggi og hreinlæti

Yfirheiti Við lok 4. bekkjar getur nemandi Við lok 7. bekkjar getur nemandi Við lok 10. bekkjar getur nemandi
Öryggisreglur Þekkt til helstu öryggisreglna í skólaíþróttum [] gert sér grein fyrir mikilvægi helstu öryggis- og umgengnisreglna og brugðist við óhöppum [] tekið ákvarðanir á grundvelli öryggis- og umgengnisreglna og brugðist við óvæntum aðstæðum []
Skyndihjálp gert viðvart ef óhapp verður [] framkvæmt grunnatriði skyndihjálpar [] framkvæmt og útskýrt helstu atriði skyndihjálpar, endurlífgunar og björgunar []
Hreinlæti skilið mikilvægi hreinlætis í tengslum allar við íþróttir [] skilið mikilvægi eigin ábyrgðar á hreinlæti og heilbrigði við alla íþróttaiðkun [] fundið til eigin ábyrgðar á hreinlæti og heilbrigði við alla íþróttaiðkun []

Sund

Yfirheiti Við lok 4. bekkjar getur nemandi Við lok 7. bekkjar getur nemandi Við lok 10. bekkjar getur nemandi
Fjölbreyttar sundaðferðir tekið þátt í fjölbreyttum leikjum í vatni [] beitt fjölbreyttum sundaðferðum [] sýnt leikni í vatni og beitt fjölbreyttum sundaðferðum []
Heilsuefling notið sín í vatni [] eflt eigin heilsu í vatni [] tekið þátt í fjölbreyttum leiðum til að efla eigin heilsu í vatni []
Þolsund gert æfingar sem reyna á þol í 100 metra sundi [] gert æfingar sem reyna á loftháð þol í 300 metra sundi [] gert æfingar sem reyna á loftháð þol í 600 metra sundi []
Sprettsund gert æfingar sem reyna á loftfirrt þol í 8 metra sundi [] gert æfingar sem reyna á loftfirrt þol í 12 metra sundi [] gert æfingar sem reyna á loftfirrt þol í 25 metra sprettsundi []
Bringusund synt 12 metra bringusund með eða án hjálpartækja [] sýnt leikni og synt 25 metra bringusund viðstöðulaust [] sýnt leikni og synt 50 metra bringusund viðstöðulaust []
Baksund synt 12 metra skólabaksund og baksund með eða án hjálpartækja [] sýnt leikni og synt 25 metra baksund viðstöðulaust [] sýnt leikni og synt 50 metra baksund viðstöðulaust []
Skriðsund synt 12 metra skriðsund með eða án hjálpartækja [] sýnt leikni og synt 25 metra skriðsund viðstöðulaust [] sýnt leikni og synt 50 metra skriðsund viðstöðulaust []
Kafsund synt 5 metra kafsund viðstöðulaust [] sýnt leikni og synt 8 metra kafsund viðstöðulaust [] sýnt leikni og synt 15 metra kafsund viðstöðulaust []
Björgunarsund bjargað sér í vatni [] synt björgunarsund með jafningja að lágmarki 12 metra [] synt björgunarsund með jafningja að lágmarki 25 metra []
Björgun framkvæmt björgun úr vatni og notast við björgunaráhöld []
Þol í vatni troðið marvaða í hálfa mínútu [] troðið marvaða í eina mínútu []