Klassísk efnahvörf/Fílatannkrem

Úr Kennarakvikan

Útgáfa frá 1. júlí 2024 kl. 15:30 eftir Martin (spjall | framlög) Útgáfa frá 1. júlí 2024 kl. 15:30 eftir Martin (spjall | framlög) (→‎Framkvæmd: Uppfært með byrja og ljúka.)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)

Fílatannkrem[breyta | breyta frumkóða]

Efni og áhöld[breyta | breyta frumkóða]

  • Stórt tilraunaglas
  • Lítið bikarglas
  • Vetnisperoxíð () 30%
  • Kalíumjoðíð ()
  • Uppþvottalögur
  • Vatn
  • Sloppur
  • Öryggisgleraugu
  • Hanskar

Framkvæmd[breyta | breyta frumkóða]

Mælið 50ml af vetnisperoxíði í stóra mæliglasið. Blandið um matskeið af uppþvottalegi í glasið. Blandið með því að sveifla glasinu gætilega í hringi.
Mælið 25ml af vatni í lítið bikarglas. Bætið Kalíumjoðíði við þar til lausnins er mettuð.
Farið út með glösin og stillið þeim upp. Einn nemandi þarf að hella kalíumjoðíðlausninni út í vetnisperoxíðblönduna. Fylgist með hvað gerist.


Ítarefni[breyta | breyta frumkóða]

Hvað er að gerast?[breyta | breyta frumkóða]

Vetnisperoxíð brotnar náttúrulega niður í vatn og súrefni sem myndar froðu en niðurbrotsefnahvarfið er hægt.

Því má hins vegar hraða með því að bæta hvata út í það. Joðíðið úr kalíumjoðíðinu leikur þetta hlutverk í fílatannkremsefnahvarfinu. Það hjálpar til við að losa súrefnissameind frá tveimur vetnisperoxíðssameindum en er ekki hluti af lokasameindunum og er því óbreytt að endingu.

Uppþvottalögurinn lætur froðuna endast lengur.

Efnahvarfið er útvermið svo froðan er nokkuð heit eftir niðurbrotið. Sýna má að froðan inniheldur súrefni með því að bera glóð eða eld að henni.

Hvatar (eða efnahvatar) eru efni sem hjálpa til við efnahvörf með því að lækka orkuþröskuldinn sem þarf til þess að efnahvörf geti átt sér stað.

Leiðbeiningar á öðrum síðum[breyta | breyta frumkóða]

Lesefni um efnahvarfið[breyta | breyta frumkóða]

Myndbönd af efnahvarfinu[breyta | breyta frumkóða]