Hér má finna yfirlit yfir hæfniviðmið kafla Aðalnámsskrár grunnskóla fyrir erlend tungumál ásamt hlekkjum á undirsíður þar sem koma má fyrir ítarfefni fyrir hvert hæfniviðmið. Markmiðið er ekki að hægt sé að fara í hæfniviðmið og „tikka í boxin“ heldur frekar að gefa dæmi um hvers kyns verkefni megi nýta til að ná þess lags hæfniviðmiði. Slíkt styður við heildstæðari skoðun á efni og þeim kröfum sem kennarar gera til nemenda. Eins er vert að benda á ágæta áminningu úr tillögunni:
„Þegar sjónum er beint sérstaklega að einu hæfniviðmiði þarf að hafa í huga að nám er samfellt ferli og skapandi athöfn, fremur en söfnun afmarkaðrar þekkingar og þjálfun í tiltekinni leikni.“
Hlustun og áhorf
Yfirheiti
|
Við lok 1. stigs getur nemandi
|
Við lok 2. stigs getur nemandi
|
Við lok 3. stigs getur nemandi
|
Frásagnir og kynningar
|
skilið algeng orð, einföld fyrirmæli og frásagnir og brugðist við þeim [HFK (1)]
|
skilið talað mál og frásagnir um efni tengt námi hans og daglegu lífi, brugðist við þeim og nýtt sér í námi sínu [HFK (2)]
|
skilið aðalatriði úr kynningum og frásögnum um margvísleg málefni, unnið úr þeim eða nýtt sér á annan hátt [HFK (3)]
|
Fjöl- og myndmiðlar
|
fylgt meginþræði í einföldu efni sem höfðar til barna og unglinga [FMM (1)]
|
fylgt þræði í efni við hæfi á margvíslegum miðlum og nýtt í námi sínu [FMM (2)]
|
fylgst með fjölbreyttu efni í fjöl- og myndmiðlum, unnið úr því eða nýtt sér á annan hátt [FMM (3)]
|
Greining upplýsinga
|
hlustað eftir einföldum upplýsingum og nýtt sér í námi sínu [UPP (1)]
|
hlustað eftir aðalatriðum, greint þau og nýtt sér í námi sínu [UPP (2)]
|
hlustað eftir upplýsingum, valið þær sem eiga við hverju sinni og unnið úr þeim [UPP (3)]
|
Lestur og lesskilningur
Yfirheiti
|
Við lok 1. stigs getur nemandi
|
Við lok 2. stigs getur nemandi
|
Við lok 3. stigs getur nemandi
|
Greining aðalatriða
|
fundið afmarkaðar upplýsingar í einföldum texta og nýtt sér í verkefnavinnu [AÐL (1)]
|
fundið lykilupplýsingar í texta og nýtt sér í verkefnavinnu [AÐL (2)]
|
aflað sér upplýsinga úr texta, greint aðalatriði frá aukaatriðum og nýtt sér í verkefnavinnu [AÐL (3)]
|
Rauntextar
|
skilið megininntak einfaldra rauntexta með stuðningi ef þarf [RTX (1)]
|
skilið megininntak rauntexta og unnið úr efni þeirra [RTX (2)]
|
lesið sér til fróðleiks rauntexta af fjölbreyttum miðlum, brugðist við efni þeirra eða unnið úr þeim á annan hátt [RTX (3)]
|
Bókmenntir
|
lesið stuttar sögur og bækur á einföldu máli sér til ánægju [BKM (1)]
|
lesið sér til gagns og ánægju einfaldar smásögur og skáldsögur og unnið með efni þeirra [BKM (2)]
|
lesið sér til gagns og ánægju fjölbreyttar bókmenntir við hæfi, unnið með efni þeirra og gert sér grein fyrir gildi bókmennta [BKM (3)]
|
Aðrar námsgreinar
|
lesið stutt og auðlesið efni tengt öðrum námsgreinum [ANG (1)]
|
lesið og skilið auðlesið efni og hugtök tengt öðrum námsgreinum [ANG (2)]
|
lesið, skilið og unnið með efni og hugtök tengt öðrum námsgreinum [ANG (3)]
|
Orðaforði
|
lesið og skilið stutta texta með grunnorðaforða daglegs lífs [ORF (1)]
|
lesið og skilið texta við hæfi sem innihalda algengan orðaforða [ORF (2)]
|
lesið, skilið og unnið með fjölbreyttan orðaforða úr ýmsum textum [ORF (3)]
|
Samskipti
Yfirheiti
|
Við lok 1. stigs getur nemandi
|
Við lok 2. stigs getur nemandi
|
Við lok 3. stigs getur nemandi
|
Óformlegt samtал
|
spurt og svarað á einfaldan hátt um það sem stendur honum næst [ÓFS (1)]
|
tekið þátt í óformlegu samtali um áhugamál sín og daglegt líf [ÓFS (2)]
|
tekið þátt í óformlegu samtali með því að umorða og nota föst orðasambönd úr daglegu máli [ÓFS (3)]
|
Almenn samskipti
|
tekist á við aðstæður í skólastofunni í einföldum samskiptum [ALS (1)]
|
bjargað sér við algengar aðstæður og notað almennar kurteisis- og samskiptavenjur [ALS (2)]
|
tekist á við margs konar aðstæður í almennum samskiptum, miðlað og tekið á móti upplýsingum [ALS (3)]
|
Samræður
|
tekið þátt í einföldum samræðum í skólastofunni [SMR (1)]
|
notað málið til samskipta í kennslustundum og undirbúið, tekið og veitt viðtal [SMR (2)]
|
tekið þátt í samræðum um kunnugleg málefni og látið skoðun sína í ljós [SMR (3)]
|
Frásögn
Yfirheiti
|
Við lok 1. stigs getur nemandi
|
Við lok 2. stigs getur nemandi
|
Við lok 3. stigs getur nemandi
|
Tjáning
|
tjáð sig á einfaldan hátt um sjálfan sig og líf sitt [TJÁ (1)]
|
tjáð sig um reynslu sína og skoðanir og brugðist við einföldum spurningum [TJÁ (2)]
|
tjáð sig skipulega um efni sem hann þekkir eða hefur unnið með í námi sínu og brugðist við spurningum [TJÁ (3)]
|
Frásögn og kynning
|
undirbúið og flutt einfalda frásögn eða kynningu um efni sem hann þekkir vel [FKY (1)]
|
undirbúið og flutt frásögn eða kynningu og brugðist við einföldum spurningum [FKY (2)]
|
flutt frásögn eða kynningu um undirbúið efni af öryggi og svarað spurningum [FKY (3)]
|
Flutningur
|
flutt einfalt atriði sem hann hefur haft tækifæri til að æfa [FLT (1)]
|
flutt tilbúið eða frumsamið efni, einn eða í félagi við aðra [FLT (2)]
|
samið, æft og flutt eigið efni, einn eða í félagi við aðra [FLT (3)]
|
Framsögn
|
tjáð sig nokkuð skiljanlega hvað varðar framburð og áherslur [FRS (1)]
|
beitt málinu með nokkuð eðlilegum framburði og áherslum [FRS (2)]
|
beitt málinu með eðlilegum framburði, áherslum og hrynjandi [FRS (3)]
|
Ritun
Yfirheiti
|
Við lok 1. stigs getur nemandi
|
Við lok 2. stigs getur nemandi
|
Við lok 3. stigs getur nemandi
|
Samfelldur texti
|
skrifað einfaldan texta með orðaforða úr efnisflokkum sem fengist er við [SMT (1)]
|
skrifað texta af mismunandi gerðum með inntak og lesanda í huga [SMT (2)]
|
skrifað lipran, samfelldan texta af ólíkum gerðum í samræmi við inntak og tilgang með skrifunum [SMT (3)]
|
Málnotkun
|
byggt upp einfaldar setningar, stafsett algeng orð og notað algeng greinarmerki [MNT (1)]
|
beitt grunnreglum málfræði og stafsetningar nokkuð rétt og skapað samhengi í texta [MNT (2)]
|
sýnt góð tök á orðaforða, meginreglum málnotkunar og notað tengiorð við hæfi [MNT (3)]
|
Endursögn
|
skrifað einfalda texta um efni sem tengist námi hans [ENS (1)]
|
skrifað einfalda texta um það sem hann hefur lesið, séð eða heyrt [ENS (2)]
|
skrifað skilmerkilega um efni sem hann hefur lesið, séð eða heyrt [ENS (3)]
|
Persónuleg reynsla
|
skrifað á einföldu máli um efni sem hann þekkir vel [PER (1)]
|
lýst atburðarás eða reynslu með orðaforða sem unnið hefur verið með [PER (2)]
|
skrifað um skoðanir sínar, tilfinningar, reynslu og þekkingu með fjölbreyttum orðaforða [PER (3)]
|
Skapandi ritun
|
samið stutta texta frá eigin brjósti [SKR (1)]
|
samið einfalda texta þar sem ímyndunaraflið fær að njóta sín [SKR (2)]
|
samið texta og leikið sér með málið þar sem sköpunargáfan og ímyndunaraflið fá að njóta sín [SKR (3)]
|
Menningarlæsi
Yfirheiti
|
Við lok 1. stigs getur nemandi
|
Við lok 2. stigs getur nemandi
|
Við lok 3. stigs getur nemandi
|
Samfélag
|
sýnt að hann þekkir til ýmissa sérkenna menningarsvæðisins [SAM (1)]
|
sýnt að hann þekkir til ýmissa þátta sem einkenna menningu og daglegt líf [SAM (2)]
|
sýnt að hann þekkir til samfélagsgerðar, menningar og einkenna þjóðfélagsins [SAM (3)]
|
Fjölbreytileiki
|
gert sér grein fyrir mismunandi siðum og hefðum á viðkomandi málsvæði [FJB (1)]
|
sett sig í spor fólks á viðkomandi málsvæði og gert sér grein fyrir hvað er líkt eða ólíkt með hans eigin aðstæðum [FJB (2)]
|
gert sér grein fyrir fjölbreyttum uppruna íbúa á viðkomandi málsvæði og áhrifum fordóma [FJB (3)]
|
Skyldleiki og afbrigði tungumála
|
sýnt að hann áttar sig á að mörg algeng orð í erlenda tungumálinu eru lík og skyld öðrum sem hann þekkir [SKT (1)]
|
sýnt að hann áttar sig á skyldleika erlenda málsins við íslensku, eigið móðurmál eða önnur tungumál sem hann er að læra [SKT (2)]
|
greint á milli helstu afbrigði tungumálsins [SKT (3)]
|