Klassísk efnahvörf/Kolefnissnákur

Úr Kennarakvikan

Útgáfa frá 5. desember 2024 kl. 10:22 eftir Krilli (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. desember 2024 kl. 10:22 eftir Krilli (spjall | framlög) (Ný síða: === '''Kolefnissnákurinn (þessi síða eru drög - í vinnslu)''' === Í þessari tilraun notum við sykur og brennisteinssýru til að framkalla niðurbrot sykurs í kolefni og vatnsgufu. Hvarfið framleiðir stóran, svartan „snák“. ---- === '''Efni og áhöld''' === {| class="wikitable" !'''Endurnýtanlegur búnaður''' !'''Nothæf efni''' |- |Glerkrukka eða bikarglas |Strásykur (C₁₂H₂₂O₁₁) |- |Hlífðargleraugu |Brennisteinssýra (H₂SO₄, 98%) |- |H...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)

Kolefnissnákurinn (þessi síða eru drög - í vinnslu)

Í þessari tilraun notum við sykur og brennisteinssýru til að framkalla niðurbrot sykurs í kolefni og vatnsgufu. Hvarfið framleiðir stóran, svartan „snák“.


Efni og áhöld

Endurnýtanlegur búnaður Nothæf efni
Glerkrukka eða bikarglas Strásykur (C₁₂H₂₂O₁₁)
Hlífðargleraugu Brennisteinssýra (H₂SO₄, 98%)
Hanskar
Mæliglas

Leiðbeiningar

  1. Undirbúningur:
    • Notið hlífðargleraugu, hanska og hlífðarfatnað.
    • Framkvæmið tilraunina í loftræstu rými eða úti. Hvarfið gefur frá sér mikið magn af vatnsgufum og koltvíoxíð.
  2. Setjið upp tilraunina:
    • Setjið um það bil 50 g af strásykri í krukkuna/bikarglasið (gott að miða við 2/3 af ílátinu) og dreifið honum jafnt.
  3. Framkvæmið tilraunina:
    • Notið mæliglasið til að mæla 10-15 ml af brennisteinssýru og hellið því rólega yfir sykurinn. Gætið þess að nota ekki of mikið.
    • Gott er að hræra sykurinn og sýruna saman með glerstaf en sykurinn fer fljót að brúnast og mun líta út eins og púðursykur og hægt og rólega verður hann svartur. Farið varlega í að hræra þetta saman því þetta er útvermið efnahvarf og getur ílátið hitnað mikið og passið að ekkert fari útfyrir ílátið.
    • Bíðið þangað til að sykurinn fer að þenjast út í stóran, svartan „snák“ (getur tekið allt að 15 mín). Þetta er vegna þess að brennisteinssýran brýtur niður sykurinn í kolefni og vatnsgufu.
  4. Eftir meðhöndlun
    • Látið kolefnissnákinn kólna alveg áður en honum er fargað.
    • Hreinsið glerskálina með sápu og miklu vatni.

Útskýring á efnahvarfi

Brennisteinssýran fjarlægir vatnið (H₂O) úr sykrinum og skilur eftir sig kolefni (C). Þetta útverma efnahvarf veldur því að snákurinn þenst út og losar vatnsgufu.

Efnajafna:

C12​H22​O11​H2​SO4​​12C+11H2​O


Öryggisráðleggingar

  • Brennisteinssýra er mjög ætandi. Forðist snertingu við húð og augu.
  • Framkvæmið þessa tilraun með eftirliti kennara eða sérfræðings.
  • Hafið hlutleysandi efni, eins og natríumbíkarbónat, tiltækt ef sýra hellist niður.