Notandi:Martin/Einfaldar mælingar/Rúmmál vökva

Úr Kennarakvikan

Útgáfa frá 4. febrúar 2025 kl. 23:47 eftir Martin (spjall | framlög) Útgáfa frá 4. febrúar 2025 kl. 23:47 eftir Martin (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)

Rúmmál vökva er einfalt að mæla með því að hella þeim í ílát af ákveðinni stærð. Þannig gætir þú hellt vatni úr stórri fötu í eins líters (1 L) fernur til að mæla hversu margir lítrar vatnið er. Fyrir vöka af minna rúmmáli mundum við vilja nota smærri mælistærðir, og fyrir meiri nákvæmni mundum við vilja geta metið hluta úr mælistærðinni (hálf ferna, 0,1 ferna o.s.frv.). Þetta má gera með mæliglasi en á því er kvarði sem við getum lesið rúmmál vökvans sem í því er af.

Markmið

Að mæla rúmmál nokkurra vökva.

Efni og áhöld

Framkvæmd

Helltu bikarglasinu með einum vökvanum í mæliglasið. Gættu þess að hella varlega í mæliglasið svo það skvettist lítið og ekki verði margir dropar eftir innan á veggjum mæliglassins.
Lestu rúmmálið af kvarðanum. Mundu að það þarf að horfa þvert á mæliglasið og lesa af þeim stað sem miðja vökvans ber við, ekki jaðrarnir.
Skráðu rúmmálið í töflu hér að neðan.


Niðurstöður

Skráðu niðurstöðurnar í töflu sambærilega þessari:
Vökvi Rúmmál
Rauður 48 ml
Grænn 73 ml
... ...